Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 62
Vikublað 3. nóvember 2017 14
He
lgar
ma
tur
inn
Ég las einhvers staðar að það væri fljótlegra að búa til indverska kássu en að
ákveða hvernig pítsu maður vill,
panta hana og bíða eftir henni,“
segir Jóhanna Jakobsdóttir, einn
eigenda veitingastaðarins Nostra
við Laugaveg, en hún gefur okkur
girnilega uppskrift að helgarmat
sem hún segir að taki ekki nema
um hálftíma að útbúa. Minni tíma
en það tekur að bíða eftir pítsu.
„Þessi réttur slær alltaf í gegn hjá
gestum og það má útfæra hann og
breyta honum eins og manni sýnist.
Það er ekkert mál að nota kartöflur,
blómkál og lauk (eða annað græn-
meti og baunir) í stað kjúklings og
sleppa rjómanum fyrir vegan-væna
útgáfu eða nota mildara krydd
fyrir börnin. Aðalatriðið er að nota
gæðakrydd, karrí og mango chut-
ney,“ segir hún og hvetur lesendur
til að leika af fingrum fram með
hlutföllin og láta ekki á sig fá þótt
eitthvað vanti í ísskápinn. „Þessi
uppskrift gefur slatta af sósu en
mér finnst gott að geta hellt vel yfir
hrísgrjónin og dýft brauðinu í. Svo
er þessi réttur guðdómlegur daginn
eftir þegar bragðið er aðeins búið að
fá að taka sig.“
Indverskt kjúklIngakarrí
með engIfer og kókos
Jóhanna Jakobsdóttir
segir að maður sé fljótari
að útbúa þennan rétt en
að bíða eftir pítsu
uPPSkRiFT
Fyrir fjóra
n Fjórar kjúklingabringur skornar í bita
og kryddaðar með garam masala,
eða öðru indversku kryddi, auk
svarts pipars
n Fimm hvítlauksgeirar (eða eftir
smekk, kreistir með hvítlaukspressu)
n 3 msk. masala karrí (ég nota mest það
sterkasta en hægt að sníða eftir þörfum)
n 2–3 kúfaðar msk. mango chutney
n 2 dl rjómi
n 2 dl kókosmjólk eða -rjómi (má líka
nota ab-mjólk eða sýrðan rjóma ef
maður vill réttinn minna sætan)
n 1–2 msk. rifinn ferskur engifer
n 5 ananashringir úr dós, skornir í bita
(eða einhverjir aðrir ávextir ef fólk
vill ekki ananas, svo sem þurrkað
mangó)
n Svartur pipar og chili-flögur eftir
smekk, salt ef vill
n Kókosmjöl eftir smekk (til að þykkja
sósuna, en athugið að þetta gerir
hana aðeins sætari)
n Túrmerik eftir smekk, til þess að gera
sósuna fallega gula og hollari
n Knippi af ferskum kóríander (fyrir þá
sem það vilja, annars hægt að nota
steinselju eða hreinlega sleppa)
n Ristaðar og saltaðar kasjúhnetur (má
líka nota kókósflögur eða aðrar hnetur)
Kjúklingabringur brúnaðar á öllum hlið-
um á pönnu í ólífuolíu. Hvítlaukur press-
aður yfir og svitaður, karrí dreift yfir.
Mango chutney, kókosmjólk og rjóma
hellt yfir. Suðan látin koma upp. Engifer
bætt út í og svo ananas. Kókosmjöl og
túrmerik sett út í ef vill. Látið malla þar
til kjúklingur er passlega eldaður. Sett
á fat og skreytt með kóríander, hnetum
og kókosflögum ef vill.
Best með hrísgrjónum og hvítlauks-
brauði en gengur líka vel með kartöfl-
um eða bökuðu grænmeti og salati
fyrir þá sem vilja vera í hollustunni.
„Þessi réttur
slær alltaf í
gegn hjá gestum og
það má útfæra hann
og breyta honum
eins og manni sýnist.
Föstudaginn 3. nóvember kl. 20.00
Dagbók Bridgetar Jones –
Partísýning í Bíó Paradís
Hin seinheppna Bridget Jones held-
ur úti dagbók til þess að koma lífi
sínu í lag. Ógleymanleg og ljúfsár,
stórskemmtileg gamanmynd með
þeim Renée Zellweger, Colin
Firth og Hugh Grant í aðalhlut-
verkum. Myndin er af þeirri gerð
sem margir vilja sjá aftur og aftur
og því er tilvalið að mæta á
Partísýningu í Bíó Paradís,
þiggja tilboð á barnum og
dreypa jafnvel á
rauðu eða hvítu en
á partísýningum
má taka
alls konar
drykki
með inn
í sal.
Sunnudaginn 5. nóvember kl. 13.00–15.00
Airwaves fyrir unga fólkið –
og foreldra þeirra
Í Norræna húsinu verður boðið
upp á lifandi tónlist
fyrir
alla
aldurs-
hópa
ásamt kynningu
á tónlistarleikn-
um Mussila
Musical monster
adventure. Dag-
skráin hefst á tón-
listaratriði fyrir yngstu
kynslóðina með lögun-
um af vísnaplötunum,
Einu sinni var og Út um græna
grundu í útsetningum Gunnars
Þórðarsonar. Eftir pásu stígur á svið
Góði Úlfurinn sem flytur tvö lög,
því næst tekur Vegan klíkan við
sviðinu og flytur músíkalskt rapp.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20.00–21.30
Líðan unglinga – fyrirlestur í
Seljakirkju
Álfheiður Guðmundsdóttir,
sálfræðingur hjá þjónustumið-
stöð Breiðholts, mun fjalla um
líðan unglinga á fræðslukvöldi
Seljakirkju. Margir unglingar glíma
við kvíða, depurð og þunglyndi
og mun Álfheiður ræða einkenni
og hvernig best sé að styðja við og
sporna gegn erfiðri líðan. Fræðslu-
kvöldið er öllum opið og þátttak-
endum að kostnaðarlausu.
Hvað er á seyði?!
krakkarokk í norræna húsinu, partísýning í Bíó
Paradís og fyrirlestur um líðan unglinga