Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017
Sæti fjölmiðlar skipulögðum
árásum af hálfu stjórnmála-
manna í Frakklandi, hvað
má þá segja um Bandaríkin?
Sennilega er ekki hægt að
finna betra orð en „stríð“
um samskipti nýkjörins for-
seta, Donalds Trump, og
helstu fjölmiðla landsins.
Trump hefur ítrekað haldið
því fram að fjölmiðlum sé
uppsigað við sig og eigi enga
ósk heitari en að
koma sér á kné.
Þannig var það í
kosningabarátt-
unni og hefur
ágerst eftir
að hann
tók við
embætti.
Samtökin Fréttamenn án landa-mæra sendu í vikunni frá sérfréttatilkynningu þar sem lýst
er vaxandi áhyggjum vegna árása
sem blaða- og fréttamenn hafa þurft
að sæta í Frakklandi að undanförnu.
Ekki hefur aðeins verið veist að þeim
með orðum, heldur hafa þeir líka ver-
ið beittir líkamlegu ofbeldi.
Bent er á að François Fillon, for-
setaframbjóðandi franska Repúblik-
anaflokksins, og stuðningsmenn hans
hafi móðgað og baulað á blaðamenn á
kosningafundum allar götur frá því
að fjölmiðlar héldu því fram að eigin-
kona Fillons hefði þegið greiðslur
fyrir starf sem hún aldrei gegndi. Fil-
lon hefur sem kunnugt er vísað þessu
á bug en á hinn bóginn beðist afsök-
unar á því að hafa ráðið hana sem að-
stoðarmann sinn á franska þinginu.
„Á kosningafundi Fillons í Poitiers
9. febrúar síðastliðinn fékk Jean-
Pierre Raffarin, fyrrverandi for-
sætisráðherra, mannfjöldann til að
baula hressilega á blaðamenn. Fáein-
um mínútum síðar hirti Fillon sjálfur
fjölmiðla og kenndi þeim um fylgis-
tap sitt að undanförnu,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Þar kemur einnig fram að svo virð-
ist sem groddaleg orðræða stjórn-
málamanna í garð fjölmiðla sé farin
að smita út frá sér; til dæmis til að-
gerðasinna. Þannig mun aðgerða-
sinni á kosningafundi téðs Fillons,
hafa líkt fréttaflutningi Hugo Clé-
ments, sem starfar við sjónvarps-
þáttinn Quotidien, við það þegar nas-
istar fluttu gyðinga í stórum stíl í
útrýmingarbúðir í seinna stríði.
„Fréttamenn án landamæra for-
dæma þessar árásir á blaðamenn
harkalega. Þeir verða að geta sinnt
störfum sínum án hótana og
þvingana, ekki síst meðan á kosn-
ingum stendur,“ segir Pauline Adès-
Mével, forstöðukona Evrópusam-
bandsskrifstofu samtakanna.
„Þetta ömurlega og skaðlega and-
rúmsloft er ógn við frelsi fjölmiðla,
einkum þegar reyndir stjórn-
málamenn stuðla að því. Með þeim
hætti senda þeir skýlaus skilaboð til
almennings þess efnis að hver sem er
geti veist að fjölmiðlum án þess að við
því séu viðurlög,“ heldur hún áfram.
Skemmst er að minnast þess að ör-
yggisverðir vörpuðu öðrum frétta-
manni Quotidien á dyr á dögunum
þegar hann spurði Marine Le Pen,
forsetaframbjóðanda Frönsku þjóð-
fylkingarinnar, óþægilegrar spurn-
ingar.
Þá fordæma Fréttamenn án landa-
mæra ofbeldisverk gegn blaða- og
fréttamönnum. Þannig skemmdu
mótmælendur bifreiðar sjónvarps-
stöðvanna RTL og Europe 1 í Bob-
igny fyrr í þessum mánuði meðan
þeir áttu í útistöðum við lögreglu.
Mótmælin voru skipulögð til stuðn-
ings ungum þeldökkum manni sem
sakað hefur lögreglu um að nauðga
sér með priki við venjubundið eftirlit.
Einnig var ráðist á fréttamann í Arg-
enteuil nýlega.
„Fréttamenn án landmæra minna
á að fréttamenn hafa mikilvægu hlut-
verki að gegna sem vitni á vettvangi
og að hjálpa til við að tryggja sann-
gjarna og óhlutdræga umfjöllun,“
segir Adès-Mével.
Mikilvægt hlutverk
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, segir það
gamla sögu og nýja að blaða-
mennska sé erfitt starf og umdeilt.
„Blaðamenn gegna gríð-
arlega mikilvægu hlut-
verki í löndum sem
kenna sig við lýðræði og
það er skylda lýðræð-
islega kjörinna full-
trúa, sem sækja völd sín til fólksins,
að standa fyrir máli sínu og svara
fjölmiðlum; hvort sem þeim líkar
spurningarnar vel eða illa. Sú vísa
verður aldrei of oft kveðin,“ segir
hann.
Hjálmar segir heldur ekkert nýtt
að kjörnir fulltrúar hafi horn í síðu
blaðamanna. „Það sem hefur hins
vegar breyst er tæknin. Með tilkomu
samfélagsmiðla er mun einfaldara að
dreifa fölskum fregnum og róta upp
moldviðri. Fyrir 25 árum komu allar
fréttir gegnum ritstýrða fjölmiðla;
sem stýrt var af fólki sem þekkti vel
til og lagði mat á upplýsingar hverju
sinni. Auðvitað lítur hver sínum aug-
um á silfrið en menn verða að geta
rætt málin og tekið gagnrýni. Það á
ekkert síður við um fjölmiðla en
kjörna fulltrúa.“
Hann segir okkur lifa merkilega
tíma en trúir því að jafnvægi muni
fyrr en síðar komast á í fréttaflutn-
ingi. „Tíu ár af samfélagsmiðlum er
ekki langur tími og það tekur okkur
tíma að fóta okkur í þessum nýja
heimi. Það eru ýmsar viðsjár uppi í
heiminum sem kalla á ný viðhorf.“
Ógn
við frelsi
fjölmiðla
Það er tíska hjá kjörnum fulltrúum þessa heims að
veitast harkalega að fjölmiðlum og kenna þeim
jafnvel um ófarir sínar. Samtökin Fréttamenn án
landamæra gjalda varhug við þessari þróun.
Donald
Trump
Í stríði við
fjölmiðla
AFP
François Fillon, forsetaframbjóðandi í Frakklandi, á fundi með „vinum sínum“ blaðamönnum í Compiegne í vikunni.
’
Með tilkomu samfélagsmiðla er mun einfaldara
að dreifa fölskum fregnum og róta upp moldviðri.
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
KANADA
QUEBEC
Háskólaprófessor
nokkur kveðst
hafa fundið einu
hreyfimyndina sem
til er af franska rit-
höfundinum Marcel
Proust Myndin var.
tekin upp í brúðkaupi árið 1904 og
sýnir mann á fertugsaldri með yfirvarar-
skegg og harðkúluhatt ganga niður stiga.
Prófessorinn er ekki í vafa um að þarna
sé Proust á ferð en myndina fann hann í
kanadíska kvikmyndasafninu.
RÚSSLAND
MOSKVA Gianni Infantino, forseti alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, FIFA, hefur ekki áhyggjur af
mögulegum dólgslátum knattspyrnu-
áhugamanna á heimsmeistaramótinu,
sem fram fer í landinu á næsta ári,
en BBC hefur það eftir sparkelskum
ð það sé 100% öruggt aðRússa a
í uppsiglingu. Infantinovandræði séu
ra fullt traust til rússneskrakveðst be
yfirvalda sem séu vandanum vaxin.
BANDARÍKIN
WASHINGTON Fjöldi hópa sem kenna
sig við hatur á múslimum jókst um þriðjung
í landinu á síðasta ári, úr 34 í 100, að sögn
samtakanna Southern Poverty Law Center,
sem fylgist með öfgahópum. Samtökin gera
því skóna að annars vegar sé þetta vegna
orðræðunnar sem Donald Trump stóð fyrir
í konsingabaráttu sinni og hins vegar vegna
fjöldamorðanna í Orlando í júní síðastliðnum.
SPÁNN
BURGOS 64 ára gömul kona ól í vikunni
tvíbura á sjúkrahúsi í borginni. Börnin voru
tekin með keisaraskurði eins og jafnan tíðkast
með mæður á þessum aldri. Konan hafði áður
undirgengist frjósemisaðgerð í Bandaríkjunum.
Fyrir fimm árum ól
konan stúlku sem
félagsmálayfirvöld tóku
síðar í sína vörslu þar
sem ekki þótti nægilega
vel um hana hugsað.