Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Blaðsíða 35
19.2. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Fyrsti leikur Íslands á Evrópumótinu verður þriðju-
daginn 18. júlí á móti Frakklandi í Tilburg. Borgin er
sunnarlega í landinu, skammt norðan landamæranna
að Belgíu. Fyrir þá sem íhuga að fljúga út fyrir fyrsta
leik má nefna að álíka langt er til Tilburg frá Amst-
erdam og Brussel, sunnan landamæranna: liðlega
100 km og um það bil eins og hálfs klukkutíma akstur.
Flogið er beint frá Íslandi til beggja borga.
Íbúar í Tilburg eru um 200.000 og borgin sú sjötta
stærsta í Hollandi. Icelandair, Gaman ferðir og Úrval
Útsýn bjóða upp á hópferðir á EM en ef menn vilja
fara á eigin vegum er tiltölulega einfalt fyrir netvana
að skipuleggja það. Hótel af ýmsum stærðum og
gerðum eru í borginni og miðað við bókunarsíður í
vikunni er enn hægt að fá gistingu þar á býsna hag-
stæðu verði á þeim tíma sem íslenska liðið leikur í
Tilburg.
Hér eru dæmi um mögulegt flug til Amsterdam
mánudaginn 17. júlí, daginn fyrir fyrsta leik Íslands.
EasyJet flýgur til Amsterdam með millilendingu á
Gatwick-flugvelli í London. Nærri fjögurra tíma bið
þar – 21.228 krónur. Greitt aukalega fyrir farangur.
Beint flug með WOW frá Keflavík til Amsterdam,
bæði í bítið og síðdegis, á 30.000 krónur. Greitt er
aukalega fyrir farangur. Tveimur dögum fyrr, laug-
ardaginn 15. júlí, er hægt að fá beint flug með WOW
fyrir 17.000 krónur.
Beint flug með Icelandair til Amsterdam 17. júlí
kostar 36.615 kr. svk. vefsíðu fyrirtækisins í vikunni.
Laugardaginn 15. júlí er hægt að fljúga sömu leið fyrir
29.615. kr.
Vert er að geta þess að WOW flýgur til Brussel 17.
júlí. Beint flug þangað í bítið kostar 28.000 kr. Greitt
aukalega fyrir farangur. Icelandair flýgur líka til
Brussel 17. júlí. Fargjaldið er 33.315 kr.
TILBURG
Leikið á velli
Willems kóngs
Koning Willem II-leikvangurinn í Tilburg. Hann rúmar um
14.500 áhorfendur. Völlur úrvalsdeildarliðsins er nefndur
eftir konungi sem ríkti í Belgíu í áratug um miðja 19. öld.
Annar leikur Íslands í riðlinum er laugardaginn 22.
júlí gegn Sviss. Leikið verður á Stadium De Vijver-
berg í borginni Doetinchem, heimavelli úrvalsdeild-
arliðsins De Graafschap BV. Völlurinn rúmar 12.600
áhorfendur.
Til gamans má geta þess að einn landsleikur Íslands
hefur farið fram á vellinum. Ólympíulið Íslands og
Hollands mættust þar í karlaflokki í undankeppni ÓL
í Suður-Kóreu. Holland vann 1:0 27. apríl 1988. Þá
spilaði karlalið Íslands í handbolta í borginni í
B-heimsmeistarakeppninni árið 1983; vann Búlgaríu
26:24.
Þeim, sem vilja sjá tvo seinni leiki Íslands í riðlinum,
standa nokkrar hópferðir til boða héðan að heiman.
Úrval-Útsýn býður til dæmis upp á fimm daga
pakkaferð á 149.900 kr. fyrir manninn í fjórbýli en
159.900 í tveggja manna herbergi: Innifalið er beint
flug með Icelandair til Amsterdam, ein 23 kg taska,
gisting í fimm nætur á þriggja stjarna hóteli, morg-
unverður, akstur til og frá flugvelli erlendis, akstur á
leiki í Doetinchem og Rotterdam og íslensk farar-
stjórn.
Gaman ferðir bjóða upp á tveggja nátta ferð á
99.900 kr. á leikinn gegn Sviss. Innifalið beint flug til
Amsterdam 21. júlí og heim 23. júlí, 20 kg taska, ferð-
ir til og frá leikvelli og gisting á fjögurra stjarna hóteli
í tvær nætur með morgunmat.
Þá býður Icelandair þriggja daga pakka með gist-
ingu, akstri og miða á leikinn gegn Sviss á 169.000
krónur. Einnig er hægt að kaupa flug og miða á leikinn
(án gistingar) af Icelandair á 53.900 krónur.
DOETINCHEM
Nokkrar ferðir
standa til boða
F́rá Doetinchem, tæplega 60.000 manna borgar í austur-
hluta Hollands, skamt frá landamærunum að Þýskalandi.
Iðngarðar 21 | 250 Garði
Sími: 422 7103
RAFLAGNIR
fyrir heimili,
iðnaðar- og
verslunar-
húsnæði
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST