Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Page 13
ekki beint skynsemin uppmáluð.“ Jón Páll: „Uglur eru samt frábær dýr og það þarf ekki mikið að hafa fyrir þeim.“ Birta: „Hún fékk svo stundum að vera inni hjá okkur í húsinu líka og þar gat hún flogið frjáls um. Óspenn- andi hluturinn í ugluhaldinu er hins vegar fæðið þeirra, niðursneiddir hamstrar og svoleiðis sem maður vill helst ekki nefna. En Jón Páll sá um það.“ Ástæðan fyrir því að heimili þeirra Birtu og Jóns Páls er ekki eins og lif- andi regnskógur þessa dagana er ein- faldlega sú að þau festu kaup á gömlu húsi sem þau ákváðu að taka algjör- lega í gegn. Einbýlishúsi í um það bil hálftíma akstursfjarlæg frá Barce- lona, í litlu rólegu hverfi uppi í fjöll- unum. Svo það hefur verið minna pláss fyrir dýrin, en þetta er þó bara „tímabundið“ að þeirra sögn. Sólin skín úti og í febrúarmánuði viðrar til að snæða hádegisverðinn úti. Börnin þeirra, Stormur og Ylfa, eru í skólanum þangað til síðdegis. Í þriggja hæða húsinu eru Jón Páll og Birta með sína vinnustofuna hvort, þar sem Birta hannar föt, saumar og málar og Jón Páll er einkum að teikna þessa dagana. Teiknimyndasögubók hans og Þórhalls Arnórssonar, Varg- öld, sem kom út fyrir jólin, var til- nefnd til Íslensku bókmenntaverð- launanna og er þetta fyrsta bókin í sex bóka bálki. Jón Páll er önnum kaf- inn við að vinna þá næstu og húð- flúrar einnig inni í Barcelona. Birta hefur þá komið nýju fatamerki á koppinn eftir að hafa sagt skilið við Júníform fyrir nokkrum árum og heitir nýja merkið By Birta. Hvað varð til þess að þið ákváðuð að gera þessar breytingar á lífinu? Birta: „Við vorum búin að hugsa þetta í mörg ár, langaði að prófa eitt- hvað nýtt og vorum með ævintýraþrá, að fara eitthvað, vissum bara ekki hvert. Sérstaklega þegar sólin hafði varla sést í marga mánuði í skamm- deginu, þá spurðum við hvort annað hvað við værum eiginlega að gera hérna. Einn daginn ákváðum við bara að drífa í þessu og völdum Barcelona, einfaldlega vegna þess að okkur þótti hún svo falleg og byrjuðum á að búa í borginni sjálfri í eitt ár. Þá bauðst okkur að leigja hús hérna uppi í fjöll- unum og að lokum festum við svo kaup á húsinu sem við búum í nú, í 10.000 manna samfélagi, en okkur finnst betra að vera svona nær nátt- úrunni en inni í miðri borg með börn.“ Jón Páll: „Við erum svolítið úti í skógi, umkringd fjallasýn. Hér horf- um við til dæmis á Montserrat,“ segir Jón Páll og beinir myndavélinni að ótrúlegri fjallasýn af veröndinni hjá þeim. „Þar sem við erum uppi í fjalls- hlíðum eru húsin öll byggð á pöllum og skipulag þeirra því oft ekki hent- ugt. Þetta hús er hins vegar óvenju- lega vel skipulagt og þess vegna varð það fyrir valinu. Það var hins vegar komið til ára sinna og við urðum að vinna okkur í gegnum kóngulóarvef- ina þegar við tókum við því.“ Birta: „Það er hins vegar allt öðru vísi að gera upp hús hér úti en á Ís- landi vegna þess að maður er alltaf að vinna í góðu veðri. Og svo er maður ekki að planta niður grenitrjám held- ur pálmatrjám og smíða útipalla og slíkt.“ Opnir Spánverjar Gott veður er góð og gild ástæða til að búa á Spáni – en hvað annað finnst þeim dvölin úti hafa fram yfir það að vera heima? Jón Páll: „Við höfum einmitt svolít- ið verið að tala um það hvað það er sem heldur einna mest í okkur og það er held ég víðáttan. Lífið okkar heima var einhvern veginn alltaf í sömu sápukúlunni. Við bjuggum niðri í miðbæ, unnum niðri í miðbæ og ef maður þurfti að útrétta eitthvað fór maður sjaldnast í lengri bíltúra en upp í Skeifu. Kannski göngutúr út á Gróttu. Manni var farið að líða eins og maður væri alltaf að sjá sömu hlutina. Mér finnst víðáttan gefa frelsistilfinn- ingu. Bara það að geta sest upp í bíl- inn, keyrt eitthvað í klukkutíma og vera svo kominn á einhverja strönd eða í eitthvert þorp sem maður hefur aldrei komið í fyrr.“ Birta: „Við ferðuðumst sérstaklega mikið fyrstu þrjú árin og notuðum helgarnar í það. En svo eru það bara þessi litlu atriði eins og að vera að keyra hraðbrautina inn í Barcelona en ekki Suðurlandsbrautina.“ Jón Páll: „Auk þess að vera alltaf að sjá eitthvað nýtt þá er það líka fólkið, að kynnast forvitnilegum og skemmtilegum einstaklingum og þar gerist allt líka frekar spondant. Mað- ur er kannski allt í einu búinn að leigja eitthvert hús úti í sveit og byrj- aður að elda þar mat með fólki og börnunum þess sem maður hefur ný- kynnst.“ Er auðvelt að kynnast Spánverj- um? Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Birta og Jón Páll er fólk sem maður þyrfti helst að heyra í nokkrum sinnum á ári. Framkvæmdagleði þeirra og kraftur er smitandi. Undirrituð horfði til dæmis ekki á sjónvarpið í gærkvöldið heldur slökkti og spreyjaði blómapott. Það er auðvitað ekki það sama og skrifa myndasögubækur, flota gólf eftir youtube og hanna föt en einhvers staðar þarf að byrja. Svona fólk veitir innblástur til verka. ’Maður var svo oft upptekinn við það að vera að bíðaeftir sumrinu, bíða eftir því að komast til útlanda, bíðaeftir því að snjórinn færi. Við erum hætt því og njótumfrekar hvers dags þar sem mér finnst við alltaf, á hverjum degi, vera að upplifa einhver ævintýri sem eru úti um allt. 19.2. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Kaka ársins Lagskipt með kókosbotnum, límónu- skyr-mousse og hindberjahlaupi BroskallarDívur Hrákonfekt með döðlum, gráfíkjum og pekanhnetum Bailey’ s terta Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut Verið hjartanlega velkomin. Konudagur að hætti Jóa Fel Fullt af kökum og kruðeríi til að gleðja elskuna sína. Pekanpæ Jarðarberjapæja Sörur Steinbökuð súrdeigsbrauð heilkorna, án viðbættum sykri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.