Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Side 16
DANSKÆTTUÐ VELLÍÐAN
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017
Þ
að er kósíkvöld í kvöld og við ætl-
um að hafa það huggulegt. Allir
Íslendingar ættu að vita hvað það
þýðir. Huggulegt er eitthvað sem
Íslendingar hafa tilfinningu fyrir.
Uppeldisþjóð okkar, fyrrverandi herraþjóðin
Danir, er nefnilega heimsmeistarar í huggu-
legheitum.
Orðið hygge er hreinlega búið að fara sigur-
för um heiminn, rétt eins og danskir sjón-
varpsþættir. Hygge var tilnefnt sem orð ársins
2016 hjá Oxford-orðabókinni. Orðin sem kom-
ast þar á lista þurfa að hafa endurspeglað þá
hugmyndafræði og stemningu sem ríkt hefur
árið á undan. Skemmst er að segja frá því að
orðið post-truth vann illu heilli þessa kosningu.
Hygge var líka tilnefnt sem orð ársins hjá
Collins-orðabókinni, þar sem það tapaði fyrir
Brexit.
Óþýðanlegt á ensku
Merkilegt er að orðið hygge þykir vera óþýð-
anlegt á enska tungu og því hefur því verið
bætt í málið. Collins segir hygge vera það að
„skapa notalegt andrúmsloft sem stuðli að vel-
líðan“ og Oxford er að vonum með svipaða skil-
greiningu og er áhersla jafnframt lögð á að
þetta sé einkenni danskrar menningar.
Oxford-orðabókin segir hygge vera velkom-
ið svar við pólitískum deilum og dauða margra
þekktra stjarna á árinu 2016.
En hvað tengist sérstaklega öllum þessum
huggulegheitum? Visit Denmark hefur brugð-
ist við þessum áhuga á hygge og skrifar á vef
sínum um dönsku listina að hafa það huggu-
legt. „Hygge er eins danskt og svínasteik og
kaldur bjór og fer langt með að lýsa upp
danska þjóðarsál. Í reynd þýðir hygge að
skapa þægilegt og notalegt andrúmsloft og að
njóta góðu hlutanna í lífinu umkringdur góðu
fólki. Þægileg birtan frá kertaljósi er huggu-
leg. Vinir og fjölskyldur líka,“ er skrifað þar.
„Og ekki gleyma mat og drykk og helst að sitja
í kringum borðið í marga klukkutíma að ræða
bæði stór mál og smá,“ stendur þar og er því
velt fyrir sér hvort þessi hugmynd um dönsk
huggulegheit geri Dani að einhverri hamingju-
sömustu þjóð í heimi.
Snýst um andrúmsloft og
lífsreynslu
Veturinn og ekki síst jólin eru góður tími fyrir
huggulegheit. Danskir vetur eru dimmir rétt
eins og á Íslandi, því þarf að grípa til aðgerða
og hygge er rétta vopnið. Það þarf að kveikja á
nógu mörgum kertum. Fyrir jólin er hægt að
heimsækja Tivoli og ljósadýrðina þar og hlýja
sér á glöggglasi umvafinn stórum trefli. Á
sumrin þarf að hafa það huggulegt með öðrum
hætti, þá leita Danir til að mynda í lautarferðir
í fallegum almenningsgarði, að grilla með vin-
um, sækja útitónleika og götuhátíðir.
Ein af mörgum bókum sem hafa verið gefn-
ar út undanfarið um huggulegheit er The
Little Book of Hygge: The Danish Way of
Living Well eftir Meik Wiking.
Hann skrifar þar í inngangi: „Hygge snýst
um andrúmsloft og lífsreynslu frekar en hluti.
Þetta snýst um að vera með þeim sem við
elskum. Og tilfinninguna að vera heima. Þá til-
finningu að við séum örugg, að við séum vernd-
uð gagnvart heiminum og getum leyft okkur
að vera við sjálf.“
Wiking vinnur við hamingjurannsóknir og
er stofnandi og framkvæmdastjóri Happiness
Research Institute í Kaupmannahöfn. Danir
lenda ítrekað efst eða ofarlega á lista yfir ham-
ingjusömustu þjóðir í heimi. Wiking telur að
Danmörk geti veitt innblástur til þjóða sem
vilja auka lífsgæði þegna sinna.
Eitt af því sem Danir leggja áherslu á er lýs-
ing, bæði kertaljós og rétta lýsingin inni á
heimilinu. Danir eru heimsþekktir fyrir ljósa-
hönnun frá m.a. Poul Henningsen, Arne
Heimsmeist-
arar í huggu-
legheitum
Danir kunna betur en flestir að hafa það huggulegt og eru jafn-
framt hamingjusamasta þjóð í heimi. Orðið hygge hefur breiðst
út eins og eldur í sinu að undanförnu en hvað þýðir það og
hvernig getum við fengið meiri huggulegheit í líf okkar?
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Svokallaður „hyggekrog“,
þar er hægt að koma sér
vel fyrir með teppi og bók.
Það er ekki hægt að leggja nægilega mikla áherslu á
notalega lýsingu til að búa til réttu stemninguna.
Kveiktu á kertum en hugaðu líka að raflýsingunni.
Góðir lampar eru gulls ígildi og gættu þess að sterkar
perur skíni ekki beint í andlit. Vinnulýsing er eitt en
stemningslýsing annað. Það sem heillar við kertalýs-
inguna er að hún er eins konar opinn eldur en að hafa
arin toppar síðan allt.
GOTT RÁÐ
Lýsing er höfuðatriði
1. Danir
2. Svisslendingar
3. Íslendingar
4. Norðmenn
5. Finnar
6. Kanadabúar
7. Hollendingar
8. Nýsjálendingar
9. Ástralar
10. Svíar
Samkvæmt hamingjuskýrslu
Sameinuðu þjóðanna árið 2016.
TOPP TÍU
Hamingju-
sömustu
þjóðir
í heimi