Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Page 22
HÖNNUN Bandaríska götutískumerkið Supreme sendi nýverið frá sér-staka útgáfu Stool 60 stólsins sem hannaður var af Arne Jacob-sen á 4. áratug síðustu aldar. Á sérstöku útgáfunni lét Supreme
þekkta grafík hússins á setuna ásamt vörumerki fyrirtækisins.
Sérstök útgáfa Stool 60
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017
Margrét María Leifsdóttir er mikil ævintýra-manneskja með áhuga á öllu mögulegu. „Éger fiðlusmiður og verkfræðingur að mennt en
er nú í garðyrkjuskólanum í Hveragerði og er að vinna
að nýrri prjónabók. Svo sjáum við bara hvert lífið leiðir
mig,“ svarar hún, spurð hver séu hennar helstu áhuga-
mál. Stíllinn á heimilinu er persónulegur með skandinav-
ískum áhrifum. Margrét segir þægindi og notagildi
skipta miklu máli þegar heimilið er innréttað auk þess að
hlutir sem koma inn á heimilið passi inn í það sem fyrir
er. „Svo finnst mér mjög mikilvægt að eitthvað komi
manni aðeins á óvart.“
Hún segist forðast það að kaupa inn á heimilið á ein-
um stað. „Ég kaupi hluti sem mér finnst fallegir þegar
ég rekst á þá og stundum einn og einn hlut á ferðalögum.
Ef ég fæ hugmynd að einhverju sérstöku sem mig lang-
ar í leita ég uppi eitthvað sem líkist því og ef ég finn það
ekki getur verið að ég búi það til,“ útskýrir Margrét sem
skoðar mikið internetið þegar hún leitar að innblæstri
inn á heimilið og þá aðallega vefsíðurnar Instagram og
Pinterest. „Nokkrar heimasíður skoða ég líka reglulega:
designsponge.com, monsterscircus.com, poppytalk.com
og fleiri.“
Aðspurð hver sé uppáhaldsstaður Margrétar á heim-
ilinu nefnir hún stofuna. „Stofan er svona miðpunktur,
þar er allt. Krakkarnir leika sér og læra og ég er með
vinnuborð þar,“ segir hún bætir við að sófinn sé eins-
konar griðastaður fjölskyldunnar. „Sófinn, þar getum
við legið öll í kös.“ Þá segir hún einnig aðspurð besta
kostinn við hverfið sitt Ægisíðuna og nálægðina við sjó-
inn og fjöruna.
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Notalegt heimili í
nálægð við sjóinn
Margrét María Leifsdóttir og Guðmundur Pálsson búa ásamt
börnum sínum á fallegu heimili í Vesturbænum þar sem
persónulegur stíll nýtur sín með skandinavískum áhrifum.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Skemmtileg vinnuaðstaða í miðrými heimilisins.
Margrét María Leifsdóttir segir þægindi og notagildi
skipta miklu máli þegar heimilið er innréttað.
Heimilið liggur vel við
birtu. Margrét leggur
áherslu á að hlutir sem
koma inn á heimilið passi
inn í það sem fyrir er.