Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Síða 26
MATUR Talið er að súkkulaði geti bætt skapið, en í kakóbaunum er efni semhefur góð áhrif á andlega líðan. Þannig að ef þú ert niðurdreginn gæti
einn súkkulaðimoli hjálpað. Veldu súkkulaði með miklu kakói.
Súkkulaði fyrir skapið
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017
Kornflexmarengs
með ávaxta-
og makkarónurjóma
Súkkulaði- og kókoskaka
með hindberjarjóma
KAKAN
60 g dökkt súkkulaði, saxað smátt
70 g kakóduft
1 msk kaffi
180 ml heitt vatn
240 ml kókosmjólk
180 hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk matarsódi
1 tsk salt
85 g smjör, bráðið
300 g sykur
2 egg, við stofuhita
Setjið súkkulaði, kakóduft og
kaffi í stóra skál sem þolir hita og
hellið síðan heitu vatninu yfir.
Látið standa í um 5 mínútur eða
þar til súkkulaðið er bráðið.
Blandið saman. Bætið síðan
kókosmjólkinni saman við.
Setjið hveiti, lyftiduft, matar-
sóda og salt saman í aðra skál og
blandið saman.
Blandið því næst smjöri og
sykri í 3 mínútur í enn aðra skál
og blandið eggjunum saman við
einu í einu og hrærið vel. Bætið
síðan þurrefnunum varlega
saman við og að lokum síðustu
skálinni þar til allt er vel blandað
saman. Setjið í smurt 24 cm
form og bakið í 175°C heitum
ofni í um 25 mínútur. Leyfið
kökunni að kólna í um 10 mín-
útur og skerið hana síðan í
tvennt þannig að þið hafið 2
botna.
HINDBERJARJÓMI
200 g hindber
4 msk sykur
200 g mascarpone
1 peli rjómi, þeyttur
3 tsk vanillusykur
börkur af 1 sítrónu, fínrifinn
Hitið hindberin í potti ásamt smá
sykri og stappið þau í mauk.
Blandið mascarpone, van-
illusykri og sítrónuberki saman í
skál. Setjið síðan þeytta rjómann
varlega saman við.
Setjið helminginn af rjómanum
á milli botnanna og hinn helming-
inn ofaná. Skreytið e.t.v. með
ferskum hindberjum.
Frá grgs.is.
2 l vanilluís
30 makkarónur
2 dl Baileys
200 g dökkt súkkulaði, saxað
2 dl rjómi
jarðarber
Myljið makkarónurnar og hellið
Baileys yfir þær. Látið standa í um
30 mínútur.
Látið ísinn standa þar til hann er
orðinn mjúkur, takið smá af
makkarónumulningnum frá fyrir
skraut í lokin en blandið afgang-
inum saman við ísinn.
Setjið helminginn af ísnum í
smelluform og stráið Baileys-
makkarónum yfir allt og endið á að
setja hinn helminginn af ísnum yfir
makkarónurnar. Geymið í frysti.
Takið úr frysti og berið fram með
þeyttum rjóma og jarðarberjum.
Frá grgs.is.
Ískaka með Baileys-makkarónukurli
BOTNAR
200 g sykur
50-60 g kornflex
4 eggjahvítur
1 tsk. lyftiduft
MAKKARÓNURJÓMI
8 makkarónukökur, muldar
100 g suðusúkkulaði
fersk ber að eigin vali
(t.d. jarðarber, vínber, hindber)
500 ml rjómi, þeyttur
SÚKKULAÐIKREM
100 g suðusúkkulaði
2 eggjarauður
1 dl rjómi, óþeyttur
Gerið botnana með því að stíf-
þeyta eggjahvítur og sykur. Bætið
lyftidufti og kornflexi varlega sam-
an við. Setjið í tvö lausbotna form
með bökunarpappír. Bakið í 160 °C
heitum ofni í um 50 mínútur.
Blandið saman þeyttum rjóma,
ávöxtum og makkarónukökunum
ásamt suðusúkkulaði og setjið á
milli botnanna.
Gerið kremið með því að þeyta
eggjarauður þar til þær eru orðnar
léttar og ljósar. Bræðið suðusúkku-
laðið og hrærið varlega saman við
og að lokum er rjómanum bætt
við. Látið kremið standa í ísskáp í
smá stund svo það leki síður.
Skreytið kökuna með ferskum
ávöxtum og njótið. Frá grgs.is
Helgarbomburnar!
Líklega eru margir orðnir þreyttir
á heilsufæði í upphafi árs og þrá
eitthvað aðeins sætara. Þá er tilvalið
að skella í eina hnallþóru um helgina
og njóta! Á vefsíðu hjá Gulur, rauður,
grænn & salt má finna nokkrar
girnilegar kökur sem munu slá í gegn.
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Ljósmyndir/grgs.is