Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Síða 33
Á sýningu Tommy Hilfi-
ger voru fyrirsæturnar
með hvíta tóbaksklúta
bundna um úlnliðinn.
Táknar þetta hreyfinguna
#TiedTogether.
Þá hafa fjölmargir tekið
upp á því á tískuvikunni að
skreyta sig með hvítum
tóbaksklút til þess að sýna
ólíkum kynþáttum, trúar-
brögðum og kynhneigð
stuðning.
AFP
Það kemur kannski fáum áóvart að fatahönnuðir erumargir mjög pólitískir í línum
sínum.
Hönnuðir hafa verið duglegir við
að koma skoðunum sínum á fram-
færi varðandi nýkjörinn forseta
Bandaríkjanna Donald. J. Trump, á
tískuvikunni í New York. Þá hafa
hönnuðirnir bæði tjáð sig við blaða-
menn og einnig hafa þeir komið
skoðunum sínum á framfæri í gegn-
um fatnað. Málin sem virtust helst
hafa áhrif voru innflytjendabannið,
veggurinn á milli Mexíkó og Banda-
ríkjanna og ummæli og gjörðir for-
setans sem sýna kvenfyrirlitningu.
Þá spilaði Cushnie et Ochs lagið
„The Future Is Female“ undir sýn-
ingu sinni og Michelle Smith, Adam
Selman, Diane von Furstenberg og
Anna Wintour sáust öll með nælur
merktar „Fashion Stands With
Planned Parenthood“ á fatnaði sín-
um en Trump undirritaði tilskipun
um að stöðva fjármagn frá alríkis-
stjórninni til „Planned Parenthood“
á þeim forsendum að stofnunin veitir
meðal annars ráðgjöf varðandi fóst-
ureyðingar.
Creatures of Comfort sýndi
fyrirsætur klæðast peysum með
áletruninni „We Are All Human
Beings“ að framan og aftan.
Christian Siriano prentaði
setninguna „People are People“
á hvíta stuttermaboli sem hönn-
uðurinn paraði við síð silkipils.
Prabal Gurung, sem á ættir að rekja til Nepals,
sýndi fatnað sem á stóð „Revolution has no bor-
ders, I am an immigrant“ og „I am a Rosa.“
Alexander Wang lét prenta áletr-
unina „No after party“ meðal annars
á sokkabuxur í línunni sinni. Þar vísar
hönnuðurinn í raunveruleikann að
nýr forseti Bandaríkjanna sé tekinn
við og að „partýið sé búið.“
Hönnuðir tjá
skoðanir með
tískufatnaði
Tískuvikunni í New York, þar sem margir af
helstuhönnuðum heims sýndu vetrarlínur sínar
fyrir næsta vetur, lauk á föstudag. Margir hönn-
uðir sýndu vanþóknun sína á nýjum forseta
Bandaríkjanna í máli og í línum sínum.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue, er
ein af þeim stjörnum sem báru nælu til stuðn-
ings Planned Parenthood.
Tískuhúsið Public
School vakti athygli
þegar þeir snéru út úr
slagorði Trumps, „Make
America great again“
með áletruninnni „Make
America New York.“Á-
letrunin var bróderuð á
rauðar derhúfur og
peysur.
19.2. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Lindex
555 kr.
Smart hringur.
Penninn
130.394 kr.
Multi Light frá Gubi
er fallegt ljós sem
hægt er að útfæra á
fleiri en einn veg.
Asos.co.uk
560 kr.
Netsokkar eru
ennþá mjög
vinsælir. Zara
6.995 kr.
Ég þrái loðna skó
fyrir sumarið.
Í þessari viku...
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Netasokkar eru enn ákaflega vinsælir.
Sokkarnir poppa upp hversdagsklæðn-
aðinn á fallegan hátt og passa mjög vel
við, til að mynda, gallabuxur og sandala.
Netaporter.com
326.000 kr.
Dionysus leðurtaskan frá
Gucci er ein sú allra fegursta.
Vero Moda
3.490 kr.
Þægileg skyrta í sniði sem hentar
vel við þröngar gallabuxur.
Gallerí 17
11.995 kr.
Gallabuxur í
tveimur litum.