Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Qupperneq 34
Miðar á leiki EM kvenna eru til sölu á á midi.is og kosta þar
1.700 kr. í verðflokki 2. Einnig er hægt að kaupa miða á vefsíðu
UEFA þar sem þeir kosta 10 til 30 evrur, eða frá 1.200 til 3.500
kr. Slóðin er www.weuro2017.nl/en/ticket-service.
Miðaverði stillt í hóf
FERÐALÖG
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017
Morgunblaðið/Eggert
Ætlarðu að hvetja „stelpurnar
okkar“ á EM í Hollandi?
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur þátt í lokakeppni Evrópumóts í sumar, í þriðja skipti í röð. Leikið verður í Hollandi.
Mótið hefst sunnudaginn 16. júlí en Ísland hefur keppni tveimur dögum síðar, gegn Frökkum í Tilburg. „Stelpurnar okkar“ mæta
liði Sviss laugardaginn 22. júlí í Doetinchem og síðasti leikur riðilsins verður miðvikudaginn 26. júlí gegn Austurríki í Rotter-
dam. Icelandair, Gaman ferðir og Úrval Útsýn bjóða upp á nokkrar mismunandi ferðir á Evrópumótið, með eða án gistingar.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Íslensku landsliðskon-
urnar fagna sæti á EM í
Hollandi eftir öruggan
sigur á Slóveníu í
Laugardalnum í haust.
Þegar hafnarborgin Rotterdam og knatt-
spyrna eru nefnd í sömu andrá kemur
markamaskínan Pétur Pétursson fyrst upp í
hugann. Hann hélt þangað í víking ungur að
árum, 1978, og vann hug og hjörtu stuðn-
ingsmanna Feyenoord með frábærri
frammistöðu. Seinna léku aðrir Akurnes-
ingar, tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir, einnig með Feyenoord.
Þriðji og síðasti leikur íslenska liðsins á
EM verður gegn Austurríkismönnum á
heimavelli hins Rotterdam-liðsins, Sparta,
miðvikudaginn 26. júlí.
Icelandair býður tveggja daga ferð, flug
og miða á leikinn, á 52.900 kr. en ef gisting
og akstur bætist við kostar ferðin 118.900.
Gaman ferðir bjóða upp á tveggja nátta
ferð til Amsterdam á 99.900 krónur. Inni-
lega er beint flug, ferðir til og frá leikvelli og
gisting á fjögurra stjarna hóteli með morg-
unmat. Miðar á leikinn fylgja ekki með í
kaupunum.
Vert er að geta þess að Icelandair býður
upp á flug til Amsterdam 17. júlí og heim
aftur 27. júlí (þannig að áhugasamir geti séð
alla leiki Íslands í riðlinum) og miða á leik-
ina, á 62.900.
Rotterdam er í suðvesturhluta Hollands,
mesta hafnarborg Evrópu. Íbúar eru um
620.000 en yfir milljón séu nærsveitir taldar
með. Borgin vekur gjarnan athygli fyrir
arkitektúr. Miðborgin eyðilagðist að
stórum hluta í síðari heimsstyrjöldinni og
uppbyggingin þótti takast afar vel. Eitt at-
hyglisverðasta, nýja mannvirkið er matar-
markaðurinn á myndinni. Byggingin er ein-
stök enda umlukin íbúðum og skrifstofum.
Hún var tekin í notkun 2014.
ROTTERDAM
Feta stelpurnar í fótspor
markamaskínunnar Péturs?
Óvenjulegur, yfirbyggður matarmarkaður í Rotterdam, þar sem líka er fjöldi veitingastaða. Mann-
virkið var tekið í notkun haustið 2014 en markaðurinn er umlukinn 228 íbúðum og skrifstofum!
Ljósmynd/Ossip van Duivenbode