Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Síða 40
Ljósmyndir/Auðunn Níelsson
Þ
etta er spennuleikrit fyr-
ir alla fjölskylduna sem
gerist í fjarlægri fram-
tíð,“ segir Sara Martí
Guðmundsdóttir leik-
stjóri um leikritið Núnó og Júníu
sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir
í Hamraborg í Hofi í dag kl. 16.
Leikritið skrifaði Sara í samvinnu
við Sigrúnu Huld Skúladóttur.
Frumsýning kvöldsins er 322 svið-
setning Leikfélagsins sem fagnar
100 ára sínu síðar á árinu, en félagið
var stofnað hinn 19. apríl 1917.
„Sögusviðið er landið Kaldónía
þar sem hinn ungi Núnó er mikill af-
reksmaður og fyrirmynd allra íbúa
landsins í hreysti og dugnaði. Mottó
Núnós er að gera betur, gera enn
betur og toppa það svo. Í Kaldóníu
er ekkert pláss fyrir þá sem ekki
standast kröfur samfélagsins. Enda
eru allir í Kaldóníu árangursmældir
daglega. Dag einn vaknar Núnó upp
við þann vonda draum að hluti af
honum er orðinn ósýnilegur,“ segir
Sara og útskýrir að tíu árum áður en
verkið hefst hafi illvíg plága, sem
nefnist þokan, ógnað Kaldóníu og
íbúum þess.
Fegurð í fjölbreytileikanum
„Þokan er bráðsmitandi og hefur
þau áhrif að þeir sem sýkjast verða
ósýnilegir,“ segir Sara og útskýrir
að þokan virðist þó ekki leggjast á
afreksfólk. „Þess vegna þurfa allir
að lifa eins og það sé meistaramán-
uður á hverjum einasta degi til að
komast í gegnum lífið. Allir þurfa
stöðugt að vera besta útgáfan af
sjálfum sér, alla daga ársins. Þeim
sem sýkjast af þokunni er vísað í
Þokudal og fá ekki að snúa aftur til
Kaldóníu fyrr en búið er að finna
lækningu við sjúkdómnum.“
Að sögn Söru velur Núnó að
hundsa strangar reglur samfélags-
ins í sambandi við þokuna, en þess er
t.d. krafist að allir sem sýkist gefi sig
strax fram. „Hann ákveður að leyna
því að hann sé kominn með þokuna,
til að vera ekki numinn á brott af
Þokusveitinni, og hefst handa við að
leita sér lækningar áður en hann
verður alveg ósýnilegur,“ segir Sara
og tekur fram að Núnó berist hjálp
úr óvæntri átt þegar hann kynnist
Júníu, sem er strokufangi úr Þoku-
dal. „Hún er algjör sólargeisli, sem
kennir honum að maður þarf ekki
alltaf að vera besta útgáfan af sjálf-
um sér. Við eigum öll margar út-
gáfum af okkur sjálfum og það er í
lagi að vera ófullkominn. Það er mik-
ilvægt að sjá fegurðina í fjölbreyti-
leika manneskjunnar,“ segir Sara og
tekur fram að þær Sigrún hafi verið
innblásnar af börnum sínum þegar
þær sömdu leikritið.
Hefur óbilandi trú á mér
„Við eigum báðar fimm ára drengi
og erum verulega hugsi yfir þeim
kröfum um útlit og árangur sem
gerðar eru til barna og ungmenna í
dag með tilheyrandi kvíða, einmana-
leika og þunglyndi. Það er dapurlegt
að þrettán ára börn séu orðin kvíða-
sjúklingar af ótta við að standast
ekki strangar kröfur samfélagsins.
Það er stöðugt pressa frá samfélag-
inu um að verða sífellt betri og toppa
sig. Við erum alltof dugleg að gagn-
rýna ófullkomleika annarra og fljót
að dæma aðra,“ segir Sara sem von-
ast til þess að foreldrar noti tæki-
færið og ræði við börn sín um boð-
skap verksins. „Við vonum að
sýningin verði áhorfendum hvatning
til að stilla kröfum sínum í hóf.“
Núnó og Júnía er fyrsta frum-
samda leikritið úr smiðju Söru og
Sigrúnar, en þær unnu leikgerðina
að Pílu Pínu sem Leikfélag Akur-
eyrar setti upp í fyrra í leikstjórn
Söru. „Píla Pína gekk vonum fram-
ar. Það var uppselt á hverja einustu
sýningu og fólk var mjög ánægt með
að fá skemmtilega, sjónræða
fjölskyldusýningu. Leikhússtjórinn
[Jón Páll Eyjólfsson] lagði mjög
mikið í uppfærsluna með það að
markmiði að bæjarbúar gætu verið
stoltir af sýningunni. Af því hvað
samstarfið gekk vel treystir Jón Páll
mér til að gera nýja sýningu – og vel
það, því hann treystir mér til að
skrifa nýja sýningu. Ég á honum
mikið að þakka. Hann hefur óbilandi
trú á mér, sem er mjög fallegt. Það
er gaman að vinna með svoleiðis
yfirmanni,“ segir Sara og bætir við
að þær Sigrún séu mjög ánægðar
með útkomuna.
Með hlutverk Núnós og Júníu fara
Alexander Dantes Erlendsson og
Dominque Gyða Sigrúnardóttir.
„Þau útskrifuðust bæði úr leikara-
deild Listaháskóla Íslands, Alexand-
er í vor og Dominque í fyrra. Ég
leikstýrði Dominque fyrst þegar hún
var 15 ára þannig að við höfum
þekkst og unnið saman hálfa ævi
hennar,“ segir Sara glettin. Með
þriðja stóra hlutverkið í sýningunni
„Í lagi að vera ófullkominn“
Leikfélag Akureyrar frumsýnir fjölskyldusýninguna Núnó og Júníu í Hamraborg í Hofi í dag. Um er að ræða nýtt
íslenskt leikrit eftir Sigrúnu Huld Skúladóttur og Söru Martí Guðmundsdóttur í leikstjórn þeirrar síðar nefndu.
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Fimmtán akureyrskir
menntskælingar setja
sterkan svip á sýninguna.
Sara Marti Guðmundsdóttir leikstýrir leikriti sem hún skrifaði í samvinnu við
Sigrúnu Huld Skúladóttur, en verkið Núnó og Júnía verður frumsýnt í kvöld.
LESBÓK Oddur Arnþór Jónsson barítón og Somi Kim píanóleikari flytja ís-lensk, þýsk, frönsk og rússnesk sönglög á tónleikum í menningarhús-inu Bergi í dag, laugardag, kl. 15. Miðar seldir við innganginn eða í
síma 868-9393. Frítt fyrir 18 ára og yngri.
Klassík í Bergi í dag
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017