Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.02.2017, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.2. 2017
LESBÓK
Þær Edda Hermannsdóttir ogRagnhildur Steinunn Jóns-dóttir standa að bókinni For-
ystuþjóð sem kom út í gær, en í
henni eru viðtöl við fólk úr ýmsum
áttum sem varpa ljósi á stöðu
kynjanna. Í inngangi bókarinnar
segja þær Edda og Ragnhildur að
sögurnar í henni svari vissulega ein-
hverjum spurningum „en fyrst og
fremst vonum við að þær hristi upp í
skoðunum fólks og varpi ljósi á ýms-
ar leiðir í átt að kynjajafnrétti“.
Fjölbreyttur hópur
viðmælenda
Ragnhildur segir að hugmyndin að
bókinni hafi kviknað fyrir ári þegar
þær hafi setið á fundi þar sem nokkr-
ir karlmenn hafi verið að tala um
jafnréttismál og þar hafi þær heyrt
viðhorf og skoðanir sem þær hafi
ekki heyrt áður í þeirri umræðu.
Síðastliðið ár hafa þær stöllur síðan
safnað efni í bókina með áherslu á að
hópurinn sem rætt væri við yrði sem
fjölbreyttastur: „Bæði eru atvinnu-
greinarnar komnar mislangt í jafn-
réttisumræðunni og eins kynslóð-
irnar þannig að við lögðum mjög
mikið upp úr því að fá ólíka hópa inn
í bókina. Okkur fannst líka mikil-
vægt að draga raddir karla inn í
þennan málaflokk, því þetta hefur
mikið verið konur að tala fyrir kynja-
jafnrétti.“
- Hvaða sjónarmið voru það sem
þið höfðuð ekki heyrt áður?
„Okkur fannst eins og karlar
hefðu verið hálf hræddir við að stíga
inn á þetta eldfima svæði, að það
væri dálítið undirlagt af konum, væri
okkar yfirráðasvæði ef það má kalla
það svo. Karlar hafa miklar skoðanir
á þessu máli og auðvitað skiptir það
okkur öll miklu máli, þrátt fyrir að
það halli á konur, að þeirra skoðanir
fái líka að heyrast. Við áttuðum okk-
ur á því að þarna væru raddir sem
hugsanlega fengju kannski ekki að
heyrast og þyrfti að ýta aðeins undir
að heyrðust enn frekar.“
Barist fyrir enn meiri
breytingum
„Þorri þjóðarinnar og stjórn-
málaleiðtogar eru sammála því að
hér skuli ríkja kynjajafnrétti – hvers
vegna tekur það okkur þá svo langan
tíma? Hvers vegna höfum við ekki
enn náð takmarkinu? Konur eru ekki
nema níu prósent framkvæmda-
stjóra stórra íslenskra fyrirtæka og í
nýrri úttekt Kjarnans kemur vel í
ljós hve valdalitlar konur eru í fjár-
málageiranum enn þann dag í dag.
Það er eitt að aðhyllast jafnrétti en
annað að gera eitthvað til þess að
hlutirnir breytist. Með því að gera
þessa bók erum við að reyna að berj-
ast fyrir enn meiri breytingum.“
- Í innganginum að Forystuþjóð
hvetjið þið til umræðu karla og
kvenna um jafnréttismál – er það
leiðin til breytinga?
„Umræðan er alltaf fyrsta skrefið
en síðan þarf að eiga sér stað mikil
viðhorfsbreyting. Við fundum fyrir
því við gerð bókarinnar og það sést í
henni að það er mikill munur á því
hvernig kynslóðirnar hugsa. Unga
fólkið sem við tókum viðtöl við hugs-
ar á annan hátt en eldra fólkið. Það
er rétt að taka það fram að við erum
komin gríðarlega langt í þessum
málum, það hefur mikið áunnist en
það má ekki stoppa þar. Þetta er
ekki orðið nógu gott.“
Hollt og gott að hlusta á
önnur sjónarmið
Edda segir að ýmislegt beri á góma í
viðtölum í bókinni, til að mynda jafn-
launavottun, sem er einmitt mikið
rædd um þessar mundir, karllæg
notkun tungumálsins, kynjaviðhorf í
teiknimyndum sem ætlaðar eru
börnum og kynjakvótar, svo dæmi
séu tekin, en einnig birtist mjög mis-
jafnar skoðanir á þeim málum. „Við
Ragnhildur erum sammála um það
að þessi viðtöl hafi hrist verulega
upp í okkar hugmyndum um jafn-
rétti og við vonum einmitt að bókin
hristi upp í fólki, því bara það að
hlusta á önnur sjónarmið er alltaf
hollt og gott fyrir mann.“
Viðmælendur þeirra Ragnhildar
og Eddu, sem tíundaðir eru á öðrum
stað á síðunni, eru úr ýmsum áttum
og á ýmsum aldri og kemur því varla
á óvart að þeir séu ekki sammála um
leiðir þótt þeir séu sammála um
markmið. „Það er greinilegt að þrátt
Umræðan er alltaf
fyrsta skrefið
Í bókinni Forystuþjóð ræða Edda Hermannsdóttir og Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir við fólk úr ýmsum áttum og á ýmsum aldri til að draga upp
mynd af stöðu jafnréttismála á Íslandi í dag.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Þjóðfræðingurinn þjóðkunni Árni Björnsson
fagnaði 85 ára afmæli í janúar sl. og af því til-
efni gaf Hið íslenska bókmenntafélag út
greinasafn hans sem ber heitið Í hálfkæringi
og alvöru.
Bókinni skiptir Árni í fimm hluta og lýsir
skiptingunni svo í inngangi hennar: „Undir
yfirskriftinni Fræði og skáldlist eru birtar
nokkrar ritsmíðar á sviði íslenskra fræða
svonefndra, en menningarsögulegt efni er
einkum í hlutanum Upplýsing og uppspuni.
Með tilvísun í gamlan æskulýðssöng er
fjallað um ýmis alþjóðamál í hlutanum Yfir heimsbyggðir allar og
með merkimiðanum Samhengi hlutanna eru starfsmálin tekin til um-
ræðu. Þættir af Einkennilegum Mönnum skýra sig svo sjálfir.“
Árni í hálfkæringi og alvöru
Eftir að þú fórst heitir ný bók eftir breska rit-
höfundinn Jojo Moyes. Bókin er sjálfstætt
framhald bókarinnar Ég fremur en þú eftir
sama höfund sem kom út á íslensku 2012, en
eftir henni var meðal annars gerð vinsæl
kvikmynd.
Eftir að þú fórst segir frá Louisa Clark,
sem lifir tilbreytingarsnauðu og fremur inni-
haldslitlu lífi og er enn í sárum eftir að hafa
misst ástina í lífi sínu. Hún vinnur á flug-
vallarbar en alvarlegt slys setur líf hennar úr
skorðum. Stuttu síðar birtist unglingsstúlka á
tröppunum hjá henni og krefur hana um svör
sem hún getur ekki veitt.
Herdís M. Hübner þýddi, Veröld gefur út.
Ný bók Moyes
Skáldsagan Speglabókin hefst þar sem Peter
Katz, starfsmanni á umboðsskrifstofu rithöf-
unda, berst handrit í tölvupósti. Í bréfi sem
fygir handritinu segir sendandi að handritið
sé upprifjun hans á röð hörmulegra atburða
sem urðu í Princeton-háskóla tuttugu og
fimm árum áður, haustið og veturinn 1987.
Meðal atburðanna sem sagt er frá í hand-
ritinu er hrottalegt morð á Joseph Wieder,
virtum sálfræðiprófessor, en það morð var
aldrei upplýst. Við lesturinn renna tvær grím-
ur á Katz – er handritið bara einföld frásögn,
eða er það kannski játning?
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi, JPV gefur út.
Ekkert er sem það sýnist
Síðastliðið haust sendi Stefán Sig-
urðsson frá sér ljóðabókina
Haugabrim | Ljóð sem hann gefur
út á eigin forlagi: Orðastað. Þetta
er fyrsta ljóðabók Stefáns, en
hann starfar annars við nytjaþýð-
ingar og hefur að auki þýtt
danskar bókmenntir og gefið út,
bækur eftir Susanne Staun og
Herman Bang.
Stefán segist hafa ort lengi, en
það hafi þó ekki verið þesslegt að
rétt væri að gefa það út fyrr en
nú, en ljóðin í Haugabrimi eru
flest frá árunum 2015 til 2016.
Aðspurður af hverju honum hafi
þótt rétt að gefa ljóðabók út núna
segist hann ekki geta svarað því:
„Ég veit eiginlega ekki af hverju
mér fannst rétt að gefa út bók
núna, en það var bara tími til
kominn“ segir hann og bætir við
að það hafi óneitanlega verið sér-
kennileg upplifun þegar hann
fékk eintökin af bókinni í hend-
urnar. „Ég vissi ekkert á hverju
ég ætti von, hvernig bókinni yrði
tekið. Það hefur reyndar gengið
hægt að selja hana, en það gengur
víst hægt með ljóðabækur yfir-
leitt.“
Sum ljóðanna eru lituð af
hruninu, enda segir Stefán að fátt
hafi haft meiri áhrif á íslensku
þjóðina á síðustu áratugum. Þann-
ig fjallar ljóðið Myrkraverk bein-
línis um verðtrygginguna: „Þú ert
manngert helvíti á jörðu, / sér-
íslenskt fyrirbæri / Enginn hefur
hag af þér / nema fáir útvaldir /
og þú þjónar húsbændum þínum
vel“. Inn á milli eru þó stöku ljóð
Tími til kominn að
gefa út ljóðabók
LJÓÐABLÚS
HRUNIÐ, DJASS OG BLÚS ER MEÐAL VIÐFANGSEFNA Í
HAUGABRIMI, FYRSTU LJÓÐABÓK STEFÁNS SIGURÐS-
SONAR, EN HANN SÆKIR INNBLÁSTUR Í UMHVERFI SITT.
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari upplýsingar áwww.icecare.is
– töflurnar fá þig til að slaka á, sofa betur og vakna endurnærð/ur
Í gegnum aldirnar hefur sítrónumelis (Lemon balm)
jurtin, Melissa officinalis, verið vinsæl meðal
grasalækna.
Þessi vísindalega samsetta náttúruvara er hönnuð til
að stuðla að góðum endurnærðum nætursvefn án
þess að innihalds efni sem hafa sljóvgandi áhrif.
Sítrónumelis (Lemon balm) taflan inniheldur
náttúrulegu amínósýruna L-theanine, sem hjálpar
til við slökun auk alhliða B vítamín, sem stuðlar að
eðlilegri taugastarfsemi.
Auk þess inniheldur taflan mikið magnmagnesíum,
sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur þar
með úr óþægindum í fótum og handleggjum.
Melissa Dream
„Hvílist betur með Melissa Dream“
Lísa Geirsdóttir”