Morgunblaðið - 06.05.2017, Page 2

Morgunblaðið - 06.05.2017, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Unnar Þór Bachmann, trúnaðarmaður kennara í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, segir kenn- ara skólans ósátta með vinnubrögð mennta- málaráðuneytisins í fyrirhugaðri sameiningu Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans. Unnar segir ekkert samráð hafa verið haft við kennara, sem fréttu af málinu í fjölmiðlum. „Ég fékk að vita af þessu á RÚV í gær og fékk fyrstu upplýsingar þaðan,“ segir Unnar. „Traustið hverfur mjög fljótt þegar staðið er svona að málum.“ Menntamálaráðuneytið vinnur nú að grein- ingu á kostum og göllum sameiningar ásamt Jóni B. Stefánssyni, skólameistara Tækniskól- ans, og Steini Jóhannssyni, skólameistara Fjöl- brautaskólans við Ármúla Snýst um að styrkja undirstöður Að sögn Kristjáns Þórs Júlíussonar mennta- málaráðherra hefur engin ákvörðun verið tekin í málinu og verði slíkt ekki gert fyrr en faglegri greiningu sé lokið. „Þetta veltur á því hvernig niðurstaða grein- ingarinnar verður, meðan hún er ekki komin fullbúin á mitt borð, þá er málið einfaldlega á þeim stað að við erum enn í vinnu við að und- irbyggja rökstudda ákvörðun,“ segir Kristján Þór. Hann segir markmiðið með sameiningunni vera að styrkja verk- og starfsnám. „Grunnur- inn að þessu öllu saman er að styrkja undir- stöður verk- og starfsnáms,“ segir Kristján Þór. „Það er fyrst og fremst verið að skoða þetta í ljósi þess að þetta eru að mörgu leyti eðlislíkir skólar. Verk- og starfsnám stendur hallari fæti en bóknámið þegar um svona mikla nemenda- fækkun er að ræða,“ segir hann en Morgunblað- ið greindi frá því í gær að framhaldsskólanem- um mundi fækka til muna á næstu árum. Fjölbreytt nám nauðsynlegt Menntamálaráðherra fundaði með allsherjar- og menntamálanefnd í gær vegna málsins og segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, að ráðherra hafi skýrt fyrir nefndarmönnum þau atriði sem eru til skoðunar til að bregðast við fækkun fram- haldsskólanema, sérstaklega á höfuðborgar- svæðinu. Áslaug telur jafnframt að ef komi til sameiningar skólanna tveggja felist í því tæki- færi til að auka fjölbreytt námsframboð fyrir nemendur þrátt fyrir fækkun. „Í þessari sameiningu felast tækifæri fyrir nemendur til að auka fjölbreyttara námsfram- boð og halda því uppi þrátt fyrir fækkun nem- enda. Ef það tekst þá hlýtur þetta að vera af hinu góða,“ segir Áslaug. Jón B. Stefánsson, skólameistari Tækniskól- ans, fundaði með starfsfólki Fjölbrautaskólans við Ármúla í gær og segir Unnar að kennurum hafi verið gefið sterkt vilyrði fyrir áframhald- andi starfi. Hann segir að óánægja kennara sé mest meðal þeirra sem eldri eru. „Þessi skóli hefur verið ævistarf þeirra, sumir hafa verið þarna alla sína starfsævi og skiljanlega eru þeir mjög ósáttir.“ Ósátt með vinnubrögð ráðherra  Kennarar gagnrýna vinnubrögðin vegna áforma um sameiningu FÁ og Tækniskólans  Snýst um að styrkja undirstöður verk- og starfsnáms, segir menntamálaráðherra  Engin formleg ákvörðun tekin Nú eru 319 bátar byrjaðir á strandveiðum. Afli þeirra fyrstu vikuna var 433 tonn, en heimilt var að róa þrjá daga. Aflinn fékkst í 651 róðri og er með- altalið í róðri því 665 kíló, en úr hverri veiðiferð er heimilt að koma með 650 kíló, í þorskígild- um talið, af kvótabundnum teg- undum. Að venju eru flestir strand- veiðibátanna á svæði A, sem nær frá Arnarstapa til Súðavíkur, en þar var 161 bátur byrjaður í vik- unni. Það eru þremur fleiri en samanlagður fjöldi á hinum svæð- unum þremur, að því er fram kemur á heimasíðu Landssam- bands smábátaeigenda. Í gær var meðalverð fyrir kíló af óslægðum þorski 189 krónur á fiskmörk- uðum, en 231 króna fyrir kíló af slægðum þorski. Brögð voru að því í vikunni að lögskráningu á strandveiðibáta væri ábótavant. aij@mbl.is 319 bátar byrjaðir á strandveiðum Kajakræðarinn sem leitað var að út af Þjórsárósum að kvöldi 29. apríl s.l. og úrskurðaður var látinn á sjúkrahúsi þann 30. apríl hét Sigurður Birgir Baldvinsson. Hann var fæddur 23.10. 1973 og til heimilis að Hólmaseli í Flóa- hreppi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að Sigurður lætur eft- ir sig sambýliskonu, dóttur á fimmta ári og tvo syni, sautján og nítján ára. Lést í slysi Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs borg- arinnar um 30% hækkun launa nem- enda Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir sumarið 2017. Í fyrra var tímakaup yngri ung- menna 464 krónur en hækkar í 603 krónur. Tímakaup eldri ungmenna var 617 krónur en hækkar í 802 krónur. Heildarlaunakostnaður var í fyrra 48 milljónir króna en miðað við svip- aðan fjölda nemenda verður hann 62,4 milljónir á þessu sumri. Launin í Vinnuskólanum höfðu dregist aftur úr Á fundi umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjavíkur 5. apríl sl. var kynntur samanburður á launum nemenda Vinnuskóla Reykjavíkur við laun nemenda í öðrum sveit- arfélögum. Í ljós kom að laun nem- enda í Vinnuskóla Reykjavíkur höfðu dregist nokkuð aftur úr í þeim samanburði. Því er þessi ákvörðun tekin um 30% hækkun frá í fyrra. Samkvæmt upplýsingum Magn- úsar Arnars Sveinbjörnssonar, skólastjóra Vinnuskólans, var í byrj- un apríl opnað fyrir skráningar fyrir sumarið 2017. Foreldrar skrá börn sín í gegnum „Mínar síður“ hjá Reykjavíkurborg. Allir nemendur úr 9. og 10. bekkjum grunnskóla í Reykjavík, sem eru skráðir, fá vinnu. Starfstímabilið er frá 12. júní til 31. júlí. Nemendur starfa hálfan daginn og þeim býðst að vinna alls 105 stundir (báðir árgangar). Alls voru 1.174 nemendur skráðir í fyrra, 735 úr 9. bekk og 439 úr 10. bekk. 514 stúlkur voru skráðar og 660 drengir. Um 60 leiðbeinendur og að- stoðarleiðbeinendur störfuðu í Vinnuskólanum í fyrra. Laun hækka um 30%  Í fyrra voru 1.174 nemendur í Vinnuskólanum Morgunblaðið/Ómar Vinnuskólinn Fjölbreytt störf eru unnin um alla borg yfir sumarið. Glæpum gagnvart hommum og tvíkynhneigðum körlum í Tsjetsjeníu var mótmælt þegar félagar í Samtökunum 7́8 komu saman fyrir utan rúss- neska sendiráðið við Garðastræti í gær. Í Tsjetsj- eníu tíðkast að samkynhneigðum körlum sé smalað saman í fangabúðir og þeir pyntaðir þar, eins og var á tímum síðari heimsstyrjaldar. María Helga Guðmundsdóttir, formaður Sam- takanna ’78, segir ástandið í landinu alvarlegt. Glæpum gagnvart samkynhneigðum í Tsjetsjeníu mótmælt Morgunblaðið/Golli Pyntingar og alvarlegt ástand

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.