Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 Einstakur möguleiki á að fá einkafund með talsmanni EBK, Anders Ingemann Jensen, um uppsetningu á EBK sumarhúsum á Íslandi. Á fundinum verður farið yfir byggingarferlið, kost- naðaráætlanir og allt það sem viðkemur því, að fá nýtt EBK sumarhús byggt á íslandi. Föstudaginn 5. maí og laugardaginn 6. maí 2017 – Báða dagana frá kl. 10-17 Fundarstaður og stund: Stepp ehf., Ármúla 32, 108 Reykjavík Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku. Komið og upplifið hið stórkostlega SØHOLM Hús V-Gata 16, Miðfelli, Þingvallasveit, 801 Selfoss Frekari upplýsingar um staðsetningu er hægt af nálgast í síma 696-9899 Bókið fund með EBK í Reykjavík, sérsniðin að ykkar óskum OPIÐ HÚS Sunnudaginn 7. maí kl. 13-16 EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk 17 23 2 Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús? WWW.EBK-HUS.IS DÖNSK HÖNNUN OG ARKITEKTÚR ÚR BÆJARLÍFINU Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Afar hlýir og sólríkir dagar hafa glatt íbúa á Norðurlandi und- anfarið og nýtti fólk tækifærið til að vera sem mest úti við. Ekkert frost er í jörðu og bjartsýnn kartöflu- ræktandi dreif útsæðið niður í lok apríl en það hefur ekki gerst áður svo snemma vors. Ungviði af öllu tagi kann sér ekki læti í allri blíð- unni og ráðagóðir kennarar sniðu námsefnið að útikennslu eftir föng- um.    Rauði krossinn hefur unnið að því að koma upp fatagámum á starfssvæði sínu í Þingeyjarsýslum en fimm fatagámar verða á svæð- inu, þar af einn á Þórshöfn og var hann settur upp í síðasta mánuði. Líklegt er að gott aðgengi að slík- um söfnunargámi verði til þess að meira af fatnaði fari í Rauða kross- inn en áður og sér flutningafyr- irtækið Flytjandi endurgjaldslaust um flutninga á fatnaðinum til Reykjavíkur þar sem hann er flokk- aður. Tekið er á móti allri vefnaðar- vöru, fatnaði sem öðru og ætlast er til að það sé hreint og snyrtilega frágengið í poka en allur ágóði af fataverkefni Rauða krossins fer til mannúðarmála, hérlendis og erlend- is. Á Þórshöfn mun sjálfboðaliði á vegum Rauða krossins sjá um losun fatagámsins.    Þrír grásleppubátar eru nú á veiðum, sá sem hóf vertíðina fyrstur var búinn með sína daga en byrjaði aftur þegar veiðitíminn var lengdur um tíu daga. Hann hefði getað verið á strandveiðum þessa daga og miss- ir því tíu daga af strandveiðitíma- bilinu en ágæt veiði er nú hjá færa- bátunum. Þykir sjómönnum slæmt að missa þessa daga meðan bjargað er þessum árstíðabundnu verðmæt- um úr sjó, sem grásleppan er og telja ýmsir sanngjarnt að lengja strandveiðiheimildina sem nemur grásleppuveiðidögum þeirra, sem falla inn í strandveiðitímabilið.    Rekstrarafkoma sveitarfé- lagsins Langanesbyggðar var já- kvæð í fyrsta sinn frá sameiningu Þórshafnar- og Skeggjastaðahrepps árið 2006 og er afkoman um sjöfalt betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram í ársreikn- ingi sveitarfélagsins sem var lagður fram í apríl og sagði Elías Péturs- son sveitarstjóri að lykilatriði í rekstri sveitarfélagsins væri gott samstarf við allt starfsfólk sveitar- félagsins, einnig stefna sveitar- stjórnar. Taldi hann þessa vinnu væntanlega boða betri rekstrarskil- yrði á þessu ári og því næsta en alltaf væri þó hægt að gera betur. Sveitarfélagið og Ísfélag Vest- mannaeyja, eru stærstu vinnuveit- endur í Langanesbyggð en hjá sveitarfélaginu unnu í árslok 2016 alls 57 manns. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fatagámar Sonja Súsanna Hallgrímsdóttir, sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum, tekur við lyklum fatagámsins frá fulltrúum Rauða krossins, þeim Þórarni J. Þórarinssyni og Halldóru Gunnarsdóttur. Fatagámar á fimm stöðum Greinilegur munur sást á plöntuvali móhumlu fyrri og seinni hluta sum- ars 2016 í athugun sem gerð var á tveimur stöðum í Heiðmörk og við Vífilsstaðavatn. Einnig að hún nýtir sér fjölbreytni blómplantna mó- lendisins síðsumars. Fyrri hluta sumars nærðist móhumlan (hunangsflugan, villibý- flugan) aðallega á blóðbergi og fjalldalafífli, lítillega á blágresi og sáralítið á nokkrum öðrum plöntu- tegundum. Seinni part sumars var meira úrval af blómstrandi plöntum og fæðuvalið var þá ekki jafn eins- leitt. Þá nærðist móhumlan aðal- lega á engjarós, umfeðmingi, beiti- lyngi, blóðbergi, skarifífli og gullkolli. Um þetta má lesa í grein eftir Jonathan Willow sem komin er út í alþjóðlega vísindaritinu Ice- landic Agricultural Sciences og greint er frá á skogur.is. Þar kem- ur fram að höfundur mæli með því í greininni að stuðlað verði að út- breiðslu þeirra tegunda sem mó- humlan sækir helst í. Athugunin bendi til þess að þótt tegundin í heild sæki í ýmsar teg- undir blómplantna virðist sem ein- staklingar sérhæfi sig í að sækja næringu úr einstökum tegundum, mögulega vegna samkeppni. Aukin fjölbreytni þessara blómplantna geti því e.t.v. stuðlað að eflingu móhumlunnar. aij@mbl.is Humlunni líkar við blóðberg og engjarós Ljósmynd/Erling Ólafsson Sumar Þerna móhumlu í vinnunni, en þær eru mishrifnar af blómunum. Landsbankinn hf. var nýlega dæmd- ur til að lækka skuldir dánarbús við bankann um 15 milljónir króna. Um er að ræða nokkuð flókna deilu, sem rekja má til gengis- tryggðs láns. Árið 2005 tóku karl og kona saman 15 milljóna króna vísi- tölutryggt fasteignalán með veði í fasteign. Ári síðar tók maðurinn 21 milljónar króna gengistryggt lán með veði í tveimur öðrum fast- eignum. Konan lést 2007 og maðurinn árið 2009. Þrjár dætur mannsins fengu leyfi til einkaskipta dánarbúsins og fóru í kjölfarið fram á það við bank- ann að hann færði niður gengis- tryggða lánið, sem hækkaði verulega eftir bankahrunið, til jafns við mark- aðsvirði eða fasteignamat veðanna. Við því varð bankinn ekki en þá var gerður samningur, dagsettur 15. apríl 2010, um að systurnar greiddu bankanum 16 milljónir króna inn á lánið og á móti yrði höfuðstóll þess lækkaður um 15 milljónir. Lækkaði um 30 milljónir Ekki varð hins vegar af því að höfuðstóll lánsins yrði lækkaður og sagði bankinn það hafa verið vegna óvissu um afdrif erlendra lána. Syst- urnar fóru þá fram á að 16 milljóna greiðslan yrði notuð til að greiða niður hitt lánið en af því varð ekki. Í millitíðinni var gengistryggða lánið endurreiknað og lækkaði höfuðstóll- inn, fyrst úr rúmum 37 milljónum í 17 og við annan endurútreikning úr 17 milljónum í 7,1 milljón. Taldi bankinn að með þessari niðurfærslu hefði verið staðið við samkomulagið um niðurfærslu höfuðstóls skuldar- innar. Uppfyllti ekki skyldu sína Systurnar höfðuðu mál gegn bankanum og kröfðust þess að skuld þeirra við bankann, samkvæmt báð- um skuldabréfunum, yrði samtals lækkuð um 15 milljónir en til vara, að 16 milljónirnar, sem þær greiddu inn á gengistryggða lánið, yrðu endur- greiddar. Féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á aðalkröfu systranna. Segir í dómnum að systurnar hefðu mátt treysta því að Lands- bankinn, sem hafði á sínum snærum fjölda sérfræðinga, væri meðvitaður um þá stöðu sem var uppi í byrjun árs 2010 um óvissu um lögmæti gengislána. Skylda hafi hvílt á bank- anum að upplýsa systurnar um fyrir- vara sem hann gerði, væru þeir til staðar. Systurnar séu neytendur og njóti verndar gagnvart yfirburða- stöðu sérfróðra aðila í leyfisskyldri starfsemi, eins og starfsemi Lands- bankans óumdeilanlega sé. Þá segir í dómnum að afar óeðli- legt sé af Landsbankanum að halda því fram að hann hafi uppfyllt skyldu sína samkvæmt samkomulaginu við systurnar, með því að endurreikna lánið. Liggi því í augum uppi að bankinn hafi aldrei uppfyllt skyldu sína samkvæmt samkomulaginu frá apríl 2010. Bankinn var að auki dæmdur til að greiða systrunum málskostnað, 800 þúsund krónur. gummi@mbl.is Banki dæmdur til að lækka lán  Deilt um gengisbundið lán dánarbús fyrir dómi  Ekki staðið við samninga Morgunblaðið/Kristinn Landsbankinn Héraðsdómur taldi bankann ekki hafa efnt samning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.