Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 23
Ljósmynd/Kjartan Reynisson Skipakostur Hoffell að koma niður úr dráttarbraut í Færeyjum. „Rekstur Loðnuvinnslunnar gekk vel á síðasta ári þrátt fyrir krefj- andi rekstrarumhverfi,“ segir Frið- rik Mar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, í samtali við Morgunblaðið. Loðnuvinnslan hagnaðist um 1,6 milljarða króna samanborið við 2 milljarða árið áður. Tekjur drógust saman um 16% á milli ára og námu 8,3 milljörðum króna. Friðrik Mar bendir á að gengi krónu hafi styrkst 15% á liðnu ári og að 75% samdráttur hafi verið í loðnuveiði á milli ára. Útgerðin hafi veitt mikið af markíl og síld í stað loðnu í liðnu ári. Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga á 83% hlut í Loðnuvinnslunni. „Eignarhaldið hefur reynst sam- félaginu hér í Fáskrúðsfirði vel. Arður útgerðarinnar fer ekki úr byggðinni heldur er nýttur til upp- byggingar. Á undanförnum sex ár- um höfum við meira en tvöfaldað kvótann okkar með kvótakaupum,“ segir hann. Loðnukvótinn hafi vax- ið í 4.900 tonn úr 2.000 á tíma- bilinu. Loðnuvinnslan gerir út þrjú skip og þar vinna um 150 starfsmenn. Eigið fé nemur 7,2 milljörðum króna. helgivifill@mbl.is Loðnuvinnslan „gekk vel“  Hagnaðist um 1,6 milljarða í fyrra FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 Efnahagsreikningur (í þús.kr.): 31.12.2016 31.12.2015 Eignarhlutir í félögum og sjóðum 50.375.936 49.822.065 Skuldabréf 87.014.544 85.407.797 Innlán og bankainnistæður 2.212.479 2.096.195 Kröfur 848.285 851.593 Aðrar eignir og rekstrarfjármunir 166.109 156.560 140.617.353 138.334.210 Skuldir -34.957 -245.794 Séreignarsjóður, Söfnunarleið I og II 2.380.923 2.410.739 Samtals 142.963.319 140.499.155 Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris: Iðgjöld 3.843.704 3.451.286 Lífeyrir og endurhæfingarsjóður -4.020.543 -3.591.892 Fjárfestingartekjur 2.948.260 11.399.768 Rekstrarkostnaður -307.257 -283.568 Hækkun á hreinni eign á tímabilinu 2.464.164 10.975.594 Hrein eign frá fyrra ári 140.499.155 129.523.561 Samtals 142.963.319 140.499.155 Lífeyrisskuldbindingar: Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 1.152.774 5.916.502 Sem hlutfall af áföllnum skuldbindingum 0,8% 4,6% Eignir umfram heildarskuldbindingar -2.457.587 4.468.433 Sem hlutfall af heildarskuldbindingum -1,3% 2,6% Sjóðurinn hefur aldrei skert áunnin réttindi sjóðfélaga. Kennitölur: Nafnávöxtun 1,9% 8,8% Hrein raunávöxtun -0,2% 6,6% Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 5,3% 5,9% Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal 2,3% 3,2% Hrein raunávöxtun 20 ára meðaltal 4,6% 4,9% Fjöldi virkra sjóðfélaga 6.571 6.510 Fjöldi lífeyrisþega 13.908 12.806 Rekstrarkostnaður í hlutfalli af eignum 0,2% 0,2% Eignir í íslenskum krónum 78,9% 78,9% Eignir í erlendum gjaldmiðlum 21,1% 21,1% Ávöxtun séreignardeildar 2016: Nafnávöxtun Söfnunarleiðar I sem er innlánsreikningur var 4,1% eða 2,0% raunávöxtun. Nafnávöxtun Söfnunarleiðar II sem inniheldur ýmis verðbréf nam 1,5% eða -0,6% raunávöxtun. Er þetta sú ávöxtun sem rétthafar njóta. Heildareignir séreignardeildarinnar eru 2.380,9 milljónir króna í árslok 2016. Sjóðfélagar: Sjóðurinn er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi mönnum sem eiga ekki kjarasamningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann er því góður kostur fyrir þá aðila sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð. Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign. Í stjórn sjóðsins eru: Guðmundur Árnason, formaður Aðalbjörg Lúthersdóttir Reynir Þorsteinsson Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir Hrafn Magnússon, varaformaður Einar Sveinbjörnsson Svana Helen Björnsdóttir Framkvæmdastjóri er: Sigurbjörn Sigurbjörnsson Yfirlit um afkomu 2016 Ársfundur sjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 30. maí, kl 16.30 Ársfundur 2017 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á 6. maí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.83 106.33 106.08 Sterlingspund 136.86 137.52 137.19 Kanadadalur 76.77 77.21 76.99 Dönsk króna 15.584 15.676 15.63 Norsk króna 12.2 12.272 12.236 Sænsk króna 11.971 12.041 12.006 Svissn. franki 106.89 107.49 107.19 Japanskt jen 0.9416 0.9472 0.9444 SDR 144.99 145.85 145.42 Evra 115.93 116.57 116.25 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 144.1362 Hrávöruverð Gull 1239.4 ($/únsa) Ál 1909.0 ($/tonn) LME Hráolía 50.59 ($/fatið) Brent ● Fjármálaeftirlitið sektaði tíu fyrir- tæki um samtals 68,85 milljónir á tímabilinu 1. maí 2016 til 30. apríl 2017 samkvæmt ársskýrslu eftirlitsins, en ársfundur FME fór fram í gær. Sektirnar voru til komnar vegna brota fyrirtækjanna á lögum, reglum og ákvörðunum FME og lagðar á í mál- um sem lauk annaðhvort með stjórn- valdssekt eða samkomulagi um sátt. Hæsta sektin var stjórnvaldssekt sem lögð var á Eimskipafélag Íslands, eða 50 milljónir króna, þar sem FME taldi félagið ekki hafa birt innherjaupp- lýsingar um bætta rekstrarafkomu fyrsta ársfjórðungs 2016 eins fljótt og auðið var. Eimskip hyggst vísa þeirri ákvörðun til dómstóla. Íslandsbanki greiddi næsthæstu sektina, sjö millj- ónir króna samkvæmt sátt, fyrir að fylgja ekki fyrirmælum viðskiptavinar og taka ekki tillit til viðmiða sem áttu við um viðskiptavininn. Sjóðastýringa- félagið Stefnir greiddi 5,7 milljónir samkvæmt samkomulagi vegna fjár- festingar í einkahlutafélagi fyrir hönd fjárfestingarsjóðs. Þá greiddu Eigna- safn Seðlabankans og Drómi hvort um sig 1,4 milljónir króna vegna van- rækslu í tengslum við flöggun til Ný- herja. Sektir Fjármálaeftirlits- ins tæpar 69 milljónir Stjórnarformaður FME Ásta Þór- arinsdóttir á ársfundinum í gær. STUTT ● Vöruskipti í apríl voru óhagstæð um 11,2 milljarða króna samkvæmt bráða- birgðatölum sem birtar hafa verið á vef Hagstofu Íslands. Verðmæti vöru- útflutnings, fob, nam 41,0 milljarði króna í apríl. Hins vegar var verðmæti fob-vöruinnflutnings 52,2 milljarðar króna á sama tíma. Vöruskiptajöfnuður hefur verið óhagstæður fjóra fyrstu mánuði árs- ins, en hann var neikvæður um 8,6 milljarða í janúar, 12,7 milljarða í febr- úar og 16,1 milljarð í mars. Halli á við- skiptajöfnuði á fyrstu fjórum mán- uðum þessa árs er því samkvæmt þessum bráðabirgðatölum samtals um 48,6 milljarðar króna. Til samanburðar var á sama tímabili á síðasta ári halli á vöruviðskiptum sem nam 32,3 millj- örðum króna. Halli á vöruviðskiptum 11,2 milljarðar í apríl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.