Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 lÍs en ku ALPARNIR s www.alparnir.is P P Góð gæði Betra verð ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727 Lagersala 50% afsláttur af völdum vörum Spegillinn á baðinu heima hjá þér getur hugsanlega sagt eitt og annað um útlit þitt og jafnvel líðan þína en hann getur ekki sagt þér hve óendan- lega dýrmætt eintak eða dýrmæt mann- eskja þú ert í eilífum augum Guðs sem er höfundur og full- komnari lífsins og kærleikans. Þess vegna skaltu endilega ef þú ert að leita að fögru, dýrindis- listaverki á veggina heima hjá þér, einmitt, einfaldlega og endilega fá þér spegil. Til að minna þig á að þú ert eilífðar verðmæti í augum Guðs hvað sem þér sjálfri eða sjálfum kann að finnast eða ein- hverjum öðrum. Þitt framlag skiptir máli Við erum Guðs börn og elskuð af honum. Það er það sem skiptir máli til að efla sjálfsmynd okkar í nútíð og framtíð. Náð hans og kærleikur nægja okkur til eilífs lífs. Við munum komast af vegna náðar Guðs. Ekki vegna eigin rembings eða afreka. Látum raddirnar í umhverfinu sem alltaf eru að tala okkur niður og segja að við þurfum að standast eitthvað og gera ekki annað en láta okkur finnast að við séum ómöguleg ekki ná tökum á okk- ur eða tala okkur nið- ur. Hættum að gera fólkið í kringum okkur eða okkur sjálf að við- miði um það hver við erum eða hvernig við ættum að vera. Leitumst heldur við að sjá okkur sjálf og náungann með elskuríkum augum Jesú Krists sem lagði sjálfan sig í söl- urnar fyrir okkur svo við kæm- umst af og fengjum lifað. Minnum okkur og aðra daglega á það að við erum elskuverð og óendanlega dýrmæt í hans augum. Máttur Guðs, upprisukraftur Jesú Krists býðst til og vill fá að búa í okkur og vera með okkur svo máttur hans fullkomnist í gegnum okkar veikleika í auðmýkt og þakklæti. Framlag okkar á ævinnar göngu skiptir því miklu máli. Er það ekki þakkarvert að fá að vera farvegur kærleika Guðs, sáttargjörðar hans og náðar, miskunnar og fyrirgefn- ingar, friðar og fagnaðarerindis? Nálgun í samskiptum Því skiptir öll nálgun í mann- legum samskiptum svo miklu máli. Að leitast við að tileinka sér hug- arfar jákvæðni, vera uppörvandi og hvetjandi. Kærleiksríkur von- arneisti, hjálparhella og vitn- isburður um lífið með allri okkar umgengni, framkomu og veru. Það er ekki okkar að reyna að toppa einhverja hugmyndafræði. Heldur að hvíla í undri lífsins og njóta þess í þakklæti. Og segja frá upprisukrafti lífsins og miðla kær- leikanum og voninni svo friðurinn fái flætt áreynslulaust og smitast frá hjarta til hjarta. Þannig verður ævigangan merk- ingarfull og bærilegri. Því það er líklega okkar eini tilgangur í þessu blessaða jarðlífi sem er allt í senn ljúft og sárt, fallegt og ljótt. Bæt- um samskiptin og gerum lífið betra. Með samstöðu-, kærleiks- og friðarkveðju. Lifi lífið! Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Það er ekki okkar að reyna að toppa ein- hverja hugmyndafræði. Heldur að hvíla í undri lífsins og njóta þess í þakklæti og í sátt og samlyndi. Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Snýst ekki um að toppa einhverja hugmyndafræði Við Íslendingar er- um um margt sérstæð þjóð. Satt að segja virðumst við mörg líta svo á að við séum um margt fyrirmynd- arþjóð meðal þjóða. Grípum til þessa mið- að við höfðatölu, ef þess gerist þörf. – Hvurnig þá? spyr útlendingurinn. – Ja, við tölum til dæmis eitt af sígildum tungumálum Evrópu og við höfum engan her. Gott og vel. Eitt sinn kynntist ég á málþingi þáverandi menntamála- ráðherra Kostaríka. Hún sagði: Við höfum engan her. Kennararnir eru okkar her. – Nújá, sagði fólk. Dugir það? – Ætli það fari ekki langleiðina? sagði konan. Maðurinn minn er varnarmálaráðherra. Í krafti þess þurfti hann að taka á móti á ráð- stefnu hermálaráðherrum annarra Mið-Ameríkuríkja. – Hvernig getur þú sofið rólega á nóttunni hafandi engan her? spurðu gestirnir? – Hvernig getið þið sofið rólega á nóttunni, hafandi her? svaraði hann. – Nei, við höfum engan her. Og að hafa það sem kallað er heragi á hlutunum þykir heldur ófínt hér. Yfirleitt tölum við ekki mikið um aga, í því felast einhverjar hömlur fyrir einstaklinginn, einhver óþægi- leg skylduboð. Ungviði nágranna- landanna er gert að sinna herskyldu nokkra mánuði af æskuárunum. Óbein- línis eru þessir krakk- ar að gegna herskyldu fyrir okkur samtímis. Reyndar hafa sumir á orði að þessi skylda hafi kennt þeim öguð vinnubrögð. En ekki höfum við nennt að mælast til þess við okkar unga fólk að það sinni svipaðri þegnskylduvinnu í nokkra mánuði á æskuárunum í þágu samfélagsins, t.d. með því að vinna skipulega gegn gróðureyðingu eða plastsóða- skapnum? Því að við viðurkennum nú þrátt fyrir allt, að hvert samfélag þarf að setja sér reglur og lög, svo að við getum lifað saman áreitnislítið. Þó að við forðumst að tala um aga í því samhengi. Margir reyna að byrja á sjálfum sér. Ég hef í bráðum tvo áratugi sinnt kínverskri öndunarleikfimi, sem miðar að agaðri öndun, agaðri hugsun og einbeitingu. Í þessu samhengi má nefna aga hins upp- rétta manns, en okkur þykir þetta gera gott, okkur sjálfum og jafnvel öðrum. Einn þáttur er almenn kurteisi, sem oft er til orðin af hreint prakt- ískum ástæðum; ef tveir mætast við dyr, fer fyrst um dyrnar sá sem er á útleið, þá myndast rúm inni fyrir þann sem inn ætlar. Fremur skyn- samlegt. Hér ryðst hver um annan þveran. Maður agar þann sem maður elskar Eftir Svein Einarsson Sveinn Einarsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.