Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 www.fi.is Morgungöngur Kl. 6 að morgni, alla daga vikunnar frá upphafsstað göngu. Fararstjórar: Páll Guðmundsson og Auður Kjartansdóttir. Fátt er betra en að byrja góðan dag með fjallgöngu og fylla lungun af fjallalofti fyrir verkefni dagsins. Ýmiss fróðleikur og skemmtun í hverri göngu, auk morgunleikfimi. Í tilefni af 90 ára afmæli FÍ verður skáld með í hverri morgungöngu Mánudagur: Helgafell ofan Hafnarfjarðar. Gangan hefst við Kaldársel. Þriðjudagur: Reykjaborg. Gangan hefst við bílastæði norðaustan við Hafravatn. Miðvikudagur: Haukadalsfjöll. Gangan hefst við neðan við Hrafnhóla. Fimmtudagur: Vífilsfell við Sandskeið. Gangan hefst við malarnámur við rætur fjallsins. Föstudagur: Úlfarsfell. Gangan hefst við bílastæði skógræktar við Vesturlandsveg. Skrifað undir samstarfssamning við heilsueflandi samfélag Mosfellsbæ. Göngurnar taka 2-3 klst. Gott er að vera í skjólgóðum fatnaði og gönguskóm og taka með sér göngustafi, nestisbita og drykk. Ferðafélags Íslands 8.–12. maí Skráðu þig inn – drífðu þig út – það er aldrei of seint FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími 568 2533 | www.fi.is Þátttakaer ókeypisAllir velkomnir Á fjöll við fyrsta hana gal Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ýmsum spurningum hefur verið svarað um hegðun hnúfubaka og suðurfar þeirra frá Norður- Noregi í Karíbahafið í vetur. Þrír hvalir sem merktir voru við Tromsö með gervihnattamerkjum í desember og janúar eru nú í Karíbahafinu þar sem æxlunar- stöðvar hvalanna eru taldar vera. Á heimasíðu Háskólans í Tromsö (uit.no) hefur verið hægt að fylgj- ast með ferðum hvalanna og um 20 þúsund notendur hafa nýtt sér þann möguleika síðustu fjóra mánuði. Hvalamergð hefur verið í ná- grenni Tromsö síðustu vetur þar sem þeir hafa sótt í síld og annað æti, en í vetur virðist þeim hafa fækkað eitthvað. Hvalaskoðun hefur vaxið fiskur um hrygg á svæðinu síðustu fimm ár og vís- indamenn hafa myndað fjölmarga hnúfubaka, sem hægt er að þekkja í sundur á einstaklings- bundnum rákum og litbrigðum á sporði. Hvalirnir fengu nöfn Alls voru tíu hvalir merktir og myndaðir í bak og fyrir við Tromsö í vetur og þá fengu þeir jafnframt nöfn, en smátt og smátt hættu merki frá sjö þeirra að berast. Einn þeirra var þá austur af Íslandi, en annar langt fyrir sunnan land. Ekki var aðeins spennandi að fylgjast með hvort merki skiluðu sér daglega frá hvölunum, heldur var einnig sett upp keppni um hver hvalanna yrði fyrstur á áfangastað í Karabíahafinu. Svo fóru leikar að Fredrik varð fyrst- ur og var í vikunni austur af Pú- ertó Ríkó, en Daníel og Saga voru ekki langt á eftir honum. Reyndar hafa verið vangavelt- ur um að Daníel sé hnúfubakskýr og hún, þá væntanlega Daníela, hafi borið kálfi á leiðinni suður á bóginn. Umræddur hvalur stopp- aði tvívegis úti í miðju Atlants- hafi og fór mun hægar yfir eftir stoppið heldur en fyrir það. Þessi hvalur hefur nú aftur tekið stefn- una norður á bóginn. Sýni voru tekin úr hvölunum við merking- arnar og kyn þeirra kemur í ljós að greiningu sýna lokinni, svo ekki sé talað um ef kálfur fylgir dýrinu á sumardvalarstað. Ljúka ætlunarverkinu á skömmum tíma Á heimasíðu Háskólans í Tromsö er haft eftir Audun Rik- ardsen, sem stýrir verkefninu, að vísindamenn hafi safnað marg- víslegum gögnum með þessum merkingum. Aldrei áður hafi hvölum verið fylgt svo langa leið í Atlantshafinu. Fullyrðingin um langfar er væntanlega rétt því lengra er frá Tromsö í Kar- íbahafið heldur en frá Íslandi, en undir stjórn Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings á Hafrann- sóknastofnun, var á sama hátt fylgst með suðurfari hnúfubaks úr Skjálfanda suður á bóginn vet- urinn 2015 – og heim aftur í fæðuöflun í Skjálfandaflóa. „Íslenski“ hnúfubakurinn virð- ist hafa lokið ætlunarverki sínu í grennd við Dóminíska lýðveldið og Púertó Ríkó á aðeins tveimur vikum 2015, sem þótti skammur tími miðað við fyrri upplýsingar. Sömu sögu er að segja af hinum „norska“ Fredrik sem stoppaði einnig stutt í Suðurhöfum. Hvalurinn úr Skjálfanda þótti leggja seint af stað í suðurfarið og sömu sögur er að segja um „norsku“ hnúfubakana. Saga lagði til dæmis ekki af stað fyrr en um miðjan mars en fór hratt yfir og notaði aðeins um sex vik- ur í ferðalagið. Áður var almennt talið að hnúfubakar æxluðust um miðjan vetur frá desember til febrúar, en síðbúið far fyrr- nefndra hnúfubaka virðist hnekkkja þeim kenningum. Fleiri kenningar um hnúfubaka gætu einnig verið í uppnámi. Margvíslegar upplýsingar Haft er eftir Rikardsen að til- gangur norska verkefnisins hafi meðal annars verið að kortleggja ferðir hnúfubakanna úti fyrir ströndinni við Tromsö og finna út hegðun þeirra gagnvart síldar- göngum, fiskibátum og hvala- skoðun. Einnig að fá aðstoð hvalanna til að fá að vita hvar síldin heldur sig hverju sinni. Síðast en ekki síst að fá að vita meira um suðurfar hvalanna á æxlunarstöðvar. Frá árinu 2010 hafa hátt í 900 hnúfubakar verið skráðir og myndaðir á Tromsö-svæðinu og koma margir aðilar að því verk- efni og merkingunni á hvölunum í vetur. Hvert gervitunglamerki kostar yfir hálfa milljón króna og merkin tíu því um fimm milljónir. Erfitt er að fá þau til að sitja í hvalnum og þau senda aðeins þegar hvalurinn kemur upp til að blása og loftnet merkisins stend- ur upp úr sjó. Spennuferð hnúfubaka í Karíbahaf  Vísindamenn í Tromsö merktu tíu hvali í vetur  Fylgst með ferðum þriggja þeirra alla leið á æxlunarstöðvarnar í Suðurhöfum  Hvalamergð hefur verið við Tromsö síðustu vetur Puerto Ríkó Ísland DANÍEL FREDRIK Heimild: UiT Tromsö SAGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.