Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017
Laugardaginn 6. maí kl. 12–15
býður Gallerí Fold þér að koma með listaverk, silfur,
keramik og postulín til verðmats.
Verðmatsdagur
í Gallerí Fold
Átt þú verðmæti sem þú vilt selja?
Sérfræðingar frá Gallerí Fold verða á staðnum til að verðmeta listaverk,
silfur, keramik og postulín með sölu í huga.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16
Vertíð skemmtiferðaskipanna hefst
um aðra helgi. Fyrsta skip sumars-
ins er væntanlegt til Reykjavíkur
sunnudaginn 14. maí. Það heitir
Celebrity Eclipse og er með stærri
skipum sem hingað koma, tæplega
129 þúsund brúttótonn. Mestur
fjöldi farþega er 2.852 og í áhöfn eru
1.210.
Í sumar eru áætlaðar 153 komur
skemmtiferðaskipa til hafna Faxa-
flóahafna sf, samkvæmt yfirliti fyr-
irtækisins. Skipakomur til Reykja-
víkur verða 138 og 15 til Akraness.
Þetta er í fyrsta skipti sem skemmti-
ferðaskip koma þangað. Af þeim
skemmtiferðskipum sem hingað
koma í sumar hafa 11 ekki komið
hingað áður. Stærsta skip sumarsins
heitir MSC Preziosa. Það er rúm-
lega 139 þúsund bróttótonn.
Í ár er áætlaður farþegafjöldi með
skemmtiferðaskipum í kringum 128
þúsund. Þetta er aukning um 29%
frá því í fyrra en þá komu til lands-
ins um 99 þúsund farþegar. Skipa-
komum fjölgar um 35% milli ára eða
úr 113 í 153.
„Árið 2017 er áætlað að ferða-
menn verði 2,3 milljónir skv. ferða-
þjónustuskýrslu Íslandsbanka. Inni
í þessari tölu eru ferðamenn sem
koma með flugi og skemmtiferða-
skipum. Miðað við þær áætlanir þá
eru 6% ferðamanna að koma með
skemmtiferðaskipum en 94% með
flugvélum,“ segir í yfirlitinu.
sisi@mbl.is
Skipa-
komur
verða 153
Skarfabakki Celebrity Eclipse.
Fyrsta skipið
kemur 14. maí
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íslensk þekking á beislun jarðvarma
verður notuð til húshitunar í nýrri
risaborg í Kína. Borgin heitir
Xion’an og er áætlað að íbúafjöldi
hennar og Peking verði samtals um
130 milljónir, eða um fimmfaldur
íbúafjöldi höfuðborgarinnar Peking.
Nýja borgin er 100 km frá Peking.
Um er að ræða samstarfsverkefni
Arctic Green Energy og Sinopec,
þriðja stærsta fyrirtækis í heimi.
Samstarfið fer fram undir merkjum
Sinopec Green Energy og á Arctic
Green Energy 49% hlut í félaginu en
Sinopec 51% hlut.
Sigsteinn Grétarsson, forstjóri
Arctic Green Energy Corporation,
segir að í fyrsta áfanga sé stefnt að
því að hita upp 70 milljónir fermetra
af húsnæði í Xion’an. Þau áform mið-
ist við næstu ár.
Jarðvarminn sé fyrst og fremst á
lághitasvæði og til húshitunar. Vatn-
ið sé 100 til 120 gráða heitt. Það sé
ekki horft til þess að framleiða orku
úr jarðhita í nýju stórborginni.
Ekki valin af tilviljun
„Okkur skilst að staðsetningin
fyrir nýju borgina sé ekki valin af til-
viljun. Þessi staðsetning var valin
vegna þess að þarna er þó nokkuð
mikið af jarðhitaauðlindum. Rætt er
um að þessi borg verði þrisvar sinn-
um stærri en New York.
Áætlað er að jarðhitaauðlindir á
þessu svæði dugi til þess að hita
a.m.k. 280 milljónir fermetra. Kín-
verjarnir eiga því að geta staðið við
að þetta verði umhverfisvæn borg
sem verði ekki hituð með jarðefna-
eldsneyti.“
Í mars á þessu ári gáfu stjórnvöld
í Kína út lista með 28 stórborgum
þar sem er forgangsatriði að skipta
út kolahitaveitum fyrir jarðhita-
veitur. Sigsteinn segir Sinopec
Green Energy hafa hafið uppbygg-
ingu jarðvarmakerfa í 12 af þessum
28 borgum. Þar eigi að skipta út
kolahitun yfir í húshitun með jarð-
hita. Þessi áform séu liður í nýrri 5
ára rammaáætlun um jarðhita,
þeirri fyrstu sem gefin sé út í Kína.
Stefnt sé að því að markaður fyrir
jarðhita í Kína muni fimmfaldast frá
því sem nú er til ársins 2020 og ný
fjárfesting inn í geirann nema 40
milljörðum dala.
Sigsteinn segir aðspurður að því
séu nær óþrjótandi tækifæri til upp-
byggingar fyrir félagið í Kína. Ljóst
sé að þessi verkefni taki mörg ár.
„Við sjáum fyrir okkur að Íslend-
ingar muni fyrst og fremst koma að
heildarhönnun og nánari greiningu á
þessum auðlindum. Það er ljóst að
þær þarf að skoða betur. Þá þurfum
við í þessu verkefni í Xion’an að nýta
íslenska tækni sem við þekkjum
mjög vel, sem er að fara með mjög
heitt vatn um langar leiðir. Það þarf
að fara svipaðar vegalengdir og hér
heima, til dæmis frá Deildartungu-
hver til Akraness, eða frá Nesjavöll-
um til Reykjavíkur.“
Með um 700 starfsmenn
Að sögn Sigsteins starfa nú um
700 manns hjá Sinopec Green
Energy og fer starfsemin fram í um
20 borgum í Kína. Fyrsta jarð-
varmaverkefni félagsins, eða forvera
þess (sjá rammagrein hér til hliðar),
var í borginni Xianyang í Shaanxi-
héraði. Sigsteinn segir að þar séu
höfuðstöðvar félagsins. Þær flytjist
til Xion’an eftir því sem þungi starf-
seminnar flyst þangað.
Fyrirhuguð uppbygging muni
verða mannaflsfrek í Kína en jafn-
framt skapa mikil tækifæri fyrir ís-
lenska vísindamenn. Til dæmis muni
verkfræðistofur koma að þessari
vinnu. Hann segir fleiri stór verkefni
í pípunum hjá Arctic Green Energy
og nefnir Kasakstan sem dæmi. Þar
séu, líkt og í Kína, mikil tækifæri til
þess að beisla jarðvarmann.
Gera samning um húshitun í
fyrirhugaðri risaborg í Kína
Arctic Green Energy nýtir jarðvarma til húshitunar fyrir tugmilljónir manna
Morgunblaðið/Eggert
Forstjóri Sigsteinn hefur tveggja áratuga reynslu af alþjóðaviðskiptum.
Hann segir kínverska samstarfsmenn sína hafa góða alþjóðlega menntun.
Sigsteinn segir Arctic Green Energy og Sinopec hafa fagnað tíu ára sam-
starfi um jarðhita í desember síðastliðnum. Upphafið megi rekja til heim-
sóknar þáverandi Kínaforseta, Ziang Zemin, til Íslands árið 2006 í boði
Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi forseta Íslands.
Sú heimsókn hafi opnað á samstarf sem leiddi til stofnunar Enex Kína
og Shaanxi Green Energy árið 2006. Árið 2009 hafi Sinopec keypt kín-
verska hlutann. Tveimur árum síðar hafi svo Arctic Green Energy keypt ís-
lenska hluta starfseminnar og í framhaldinu hafi félagið verið endurskírt
Sinopec Green Energy árið 2012.
Arctic Green Energy er nú í meirihlutaeigu Hauks Harðarsonar
stjórnarfomanns og fjölskyldu hans. Þau keyptu árið 2015 hlut aust-
urríska bankans Raiffeisen og hlut félags í eigu milljarðamæringsins
Richards Chandler. Þá eiga sjóður í eigu kínverska þjóðarsjóðsins CITIC
Group og KAZYNA, þjóðarsjóður í Kasakstan, minnihluta í Arctic Green
Energy. Sigsteinn segir Japana og Taílendinga eiga hlut í CITIC Group.
Komin reynsla af jarðhitanum
REKUR UPPHAFIÐ TIL HEIMSÓKNAR KÍNAFORSETA
Sigsteinn Grétarsson útskrifaðist
sem vélaverkfræðingur frá Bradley
University árið 1990 og lauk meist-
araprófi í sömu grein frá Univers-
ity of Illinois, Urbana-Champaign
árið 1992. Hann starfaði um nokk-
urra ára skeið við ráðgjöf hjá Hans
Dönges GmbH í Þýskalandi. Hann
fór svo til Marels 1997. Þar aflaði
hann sér mikillar reynslu í alþjóða-
viðskiptum og stofnaði meðal ann-
ars dótturfélag Marels í Eyjaálfu.
Sigsteinn starfaði hjá Marel í um 20
ár og var aðstoðarforstjóri er hann
lét af störfum árið 2016 til að taka
við forstjórastöðu hjá Arctic Green
Energy. Hann er í stjórn félagsins
og stýrir íslenska hlutanum í starf-
seminni. Hann segir valinn mann í
hverju rúmi hjá félaginu. Starfs-
menn hafi alþjóðlega menntun. Til
dæmis hafi tæknistjórinn, Caixia
Sun, lært jarðhitafræði við Háskóla
Íslands en fjármálastjórinn, Char-
lotte Zhao, lært í Harvard. Þessar
konur séu í framkvæmdastjórn.
Sigsteinn segir 40-50% af orku-
notkun heimsins fara til að hita og
kæla hús. „Það er með ólíkindum
hvað íslensk þekking gagnast mikið
í loftslagsmálum í heiminum.
Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið
að jarðhiti verði ein af burðar-
stoðum í endurnýjanlegri orkuáætl-
un. Þetta er ein mikilvægasta leiðin
til þess að minnka mengun og
hjálpa Kínverjum að standa við
Parísarsamkomlagið sem þeir hafa
undirritað og skuldbundið sig til að
standa við,“ segir Sigsteinn.
Ljósmynd/Arctic Green
Frá vinstri Sigsteinn Grétarsson, forstjóri, Caixia Sun, tæknistjóri, Char-
lotte Zhao, fjármálastjóri, og Chen Menghui, svæðisstjóri, í Xion’an.
Tók þátt í að byggja
upp starfsemi Marels