Morgunblaðið - 06.05.2017, Page 13

Morgunblaðið - 06.05.2017, Page 13
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Magnea og Marta Þær safna fyrir heimildarkvikmynd sem þær eru að gera um Íslendinga á Kanarí. hálfgerð útilegustemning, rosalega gaman. Á Kanarí er stemningin ekki ósvipuð því sem fólk þekkir í íslensk- um sveitaþorpum. Þetta er kyn- slóðin sem upplifði þegar hún var upp á sitt besta lög eins og „Á Spáni er gott að djamma og djúsa“, segja þær Magnea og Marta en taka fram að á Kanarí séu ekki fullir Íslend- ingar, eins og margir halda. „Þvert á móti er þetta afslappað og notalegt, heilbrigður félags- skapur. Þetta er fólkið sem tók með sér Orabaunir og hangikjöt til Kan- arí í fyrstu ferðunum þangað. Það er mikil og falleg nánd í þessum fé- lagsskap eldra fólks og fólk er stundum að draga sig saman, enda þó nokkuð um ekkla og ekkjur, fólk sem vill eignast félaga.“ Griðastaður homma Magneu og Mörtu finnst gaman að stúdera verslunarkjarnana, eða „mínímollin“, á Ensku ströndinni. „Klörubar er í Yumbo Center, en þar er fjölbreytt og litríkt mann- líf. Þar er rótgróið samfélag sam- kynhneigðra, hommar hafa átt þar griðastað allt frá því á sjöunda ára- tugnum. Klara sagði að í upphafi reksturs hennar hefði verið gert samkomulag um að í Yumbo Center fengju allir að vera eins og þeir eru. Kanarí er því paradís homma og elli- lífeyrisþega, á mjög jákvæðan og umburðarlyndan hátt. Margir klæð- skiptingabarir eru í Yumbo Center og gaman að detta inn á sýningar þar sem kaldhæðnar draggdrottn- ingar fara mikinn og rammfalskur Elvis syngur. Við erum ekki að gera grín að neinum í þessari heimild- armynd, við berum mikla virðingu fyrir viðmælendum og viðfangsefn- inu. Fjölbreytileikinn og húmorinn í lífsgleði þessa fólks er það sem okk- ur finnst spennandi að fanga í mynd- inni okkar.“ Handan tungumálsins Þær segja tómarúm hafa mynd- ast þegar Klara hætti að reka Klöru- bar árið 2010. „Þá tóku aðrir við rekstrinum en maðurinn hennar Klöru, hinn katalónski Cisco, eldar enn íslenskan mat vikulega á Klöru- bar. En Íslendingarnir hafa fært sig þó nokkuð yfir á Mannabar, sem er lítill spænskur sveitabar rekinn af hjónum frá Galisíu, Manuel og Dinu. Þau tala hvorki ensku eða íslensku en uppi um alla veggi á veitinga- staðnum þeirra eru úrklippur úr ís- lenskum dagblöðum, m.a. um gosið í Vestmannaeyjum. Þessi hjón eru miklir vinir allra Íslendinga og Mannabar er aðalmálið hjá Íslend- ingum á Kanarí núna. Það er fallegt að sjá samskipti hjónanna við Ís- lendingana, af því þau fara fram á einhverju sem er handan tungu- málsins. Þarna ríkir mikil gleði og þar er líka sungið. Á Mannabar býð- ur Manuel upp á Mannakjöt, sem er þurrkað spænskt kjöt.“ Við erum öll eins í grunninn Magnea segir að þeim vinkon- unum finnist áhugavert að skoða hvernig Íslendingar sem ferðamenn hegði sér erlendis, þar sem þeir eru gestir. „Með auknum ferðamanna- straumi til Íslands er áhugavert að skoða hvernig við erum sem útlend- ingar í öðrum löndum. Við lifum á varhugaverðum tímum þar sem þjóðernishyggja fer vaxandi sem og kynþáttafordómar. En fólk er í grunninn eins, hvaðan sem það kemur.“ Þær Magnea og Marta eru að safna fyrir heimildarmyndinni á Karolina fund. „Við erum að vinna í handritinu, höfum filmað heilmikið af skemmtilegu efni og erum búnar að mynda tengsl við fólkið. Við ætl- um aftur út til Kanarí til að bæta við efni, en við stefnum að því að klára myndina á einu ári.“ Á þessari slóð er hægt að skoða brot úr myndinni og styrkja verk- efnið: https://www.karolinafund.com/ project/view/1700 Söngstund Marý á Kirkjubæ slær gítarstrengi og félagar hennar þenja nikku og slá aðra strengi, en allir syngja með og skemmta sér vel. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 7/8 lengd Str. 36-46/48 Háar í mittið, fleiri litir Opið í dag 11-16 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxur Verð kr. 13.900 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is GLÆSILEGT KJÓLAÚRVAL gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Lokakaffi Kvenfélagsins Heimaeyjar verður á Grand hótel Reykjavík sunnudaginn 7. maí kl. 14. Við vonumst til að sjá sem flesta. Stjórnin Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.is Laugavegi 63, Skipholti 29b • S. 551 4422 SUMARYFIRHFNIR SPARIDRESS 20% afslátturlaugardag-mánudags Á þessari mynd sem tekin var í lok síðasta mánaðar má sjá hvar hin afg- anska Sadaf, sem starfar í Kabúl sem snyrtifræðingur, vinnur við að skreyta hendur brúðkaupsgests. Sadaf þarf bæði að steypa neglur og flúra fingur og handarbak með hennalitum. Á myndum sem stillt hefur verið út í glugga snyrtistofunnar er lofað miklum árangri af fegrunarmeð- ferðum hverskonar, kolamáluðum augum og fleiru í þeim dúr, en þegar inn er komið á snyrtistofuna má ljóst vera að tæplega er hægt að standa við það allt, því aðstæður eru bág- bornar. Myndir af kvenlegri glitrandi feg- urð í gluggum snyrtistofunnar eru í hrópandi mótsögn við rykugar hættulegar göturnar fyrir utan, þar sem karlaveldið ræður ríkjum. Mikið lagt upp úr skrautinu þegar boðið er til brullaups, líka hjá boðsgestunum AFP Neglur steyptar á fingur og húðin flúruð að gömlum sið með hennalitum. Brúðkaups- gestir duglega skreyttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.