Morgunblaðið - 06.05.2017, Page 16

Morgunblaðið - 06.05.2017, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 Már Sigurðsson á Geysi í Haukadal í Biskupstungum, kenn- ari og ferðamálafröm- uður, lést á heimili sínu 3. maí síðastlinn. Már var fæddur 28. apríl 1945. Foreldrar hans voru Sigrún Bjarnadóttir frá Bóli í Biskupstungum og Sigurður Greipsson, skólastjóri og hót- elhaldari á Geysi í Haukadal. Már út- skrifaðist 1964 frá Íþróttakennaraskóla Íslands að Laugarvatni og 1968 út- skrifaðist hann úr Danmarks Høj- skole for Legemsøvelser í Dan- mörku. Frá útskrift starfaði hann sem íþróttakennari á Hólum í Hjalta- dal, Stykkishólmi, Fáskrúðsfirði, Reykjanesi við Ísafjarðardjúp og farkennari á vegum Héraðssam- bandsins Skarphéð- ins. Árið 1969 hóf hann starf sem kenn- ari við grunnskólann á Laugalandi í Holt- um í Rangárvalla- sýslu og starfaði þar í 25 ár. Már hóf uppbygg- ingu á ferðaþjónustu við Geysi í Haukadal árið 1972 og helgaði sig alfarið uppbygg- ingunni við fjöl- skyldufyrirtækið Hót- el Geysi frá árinu 1993 og var mikill frumkvöðull á sviði ferðaþjónustu. Már hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2005 fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu. Eftirlifandi eiginkona Más er Sigríður Vilhjálmsdóttir og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn. Már verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju 19. maí nk., kl 15. Andlát Már Sigurðsson Baldur Arnarson baldura@mbl.is Rúmlega 40% munaði á fermetra- verði í dýrasta og ódýrasta hverfinu á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Þetta kemur fram í greiningu Reykjavík Economics, Blikur á lofti á íbúðamarkaði: Framboðstregða á höfuðborgarsvæðinu ýtir undir bólu- myndun, sem unnin var fyrir Ís- landsbanka. Munurinn milli hverfa er sýndur á grafi hér til hliðar. Magnús Árni Skúlason, hagfræð- ingur hjá Reykjavík Economics, seg- ir aðspurður að ekki séu komin fram merki um bólumyndun á íbúðamark- aði. Hins vegar séu vísbendingar um að hækkun íbúðaverðs sé að síga fram úr kaupmætti, líkt og árið 2005. Hafa beri í huga að nú séu raun- vextir mun lægri. Ef þeir lækki frek- ar geti fasteignaverð hækkað meira. Magnús Árni bendir á að frá mars 2016 til mars 2017 hafi raunverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæð- inu hækkað um 19% og um 20,9% að nafnvirði. Sérbýli hafi hækkað um 20,2% að nafnvirði en fjölbýli um 21,3%. Það sé ein mesta 12 mánaða hækkun sem um getur síðan breyt- ing varð á húsnæðislánakerfinu haustið 2004. Jafnframt hafi hús- næðisverð hækkað að meðaltali um 52,1% að raungildi síðan vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu náði lágmarki í desember 2010. Með þessa þróun í huga hvetur Magnús Árni fólk til varkárni í fast- eignakaupum. Það geti ekki lengur reiknað með að íbúðaverð hækki. Geta ekki vænst hækkana „Íbúðaverð er orðið hátt. Það er ekki lengur mögulegt að kaupa fast- eignir til útleigu og vænta þess að það sé mikil verðhækkun í pípunum. Það var möguleiki sem menn sáu á markaði fyrir tveimur til þremur ár- um. Þegar fólk kaupir nú fasteign getur það því ekki vænst þess að eig- ið fé aukist vegna verðhækkana, heldur þarf það að greiða niður lánin til að auka eign sína. Það er komið jafnvægi að þessu leyti. Það er enn mikill framboðs- skortur á íbúðum. Nokkrar skýr- ingar eru á því. Þar kemur til tak- mörkuð afkastageta byggingar- iðnaðarins. Sú afkastageta fór líklega að miklum hluta í hótelbygg- ingar og svo fóru margir iðnaðar- menn úr landi eftir hrunið. Til við- bótar hefur skort lóðir, meðal annars vegna tregðu í skipulagsferlinu. Ég hef rætt við nokkra verktaka. Þeir segja erfitt að fá lóðir og að þær séu dýrar. Kerfið í borginni er líka hæg- virkt. Í einu tilviki tók um þrjú ár að breyta atvinnulóð í íbúðalóð. Það tafði byggingu fjölda íbúða,“ segir Magnús Árni. Þá bendir hann á að síðustu ár hafi um 8.000 fleiri flutt til landsins en fluttu frá landinu. Það hafi aftur auk- ið eftirspurn eftir húsnæði. Jafnframt sé mikil eftirspurn til- komin vegna stórra árganga ungs fólks sem íhugar fasteignakaup. Loks segir í skýrslunni að miklar verðhækkanir á húsnæði séu vara- samar. „Öfgakenndar sveiflur í íbúðaverði eru ekki æskilegar bæði út frá lánveitenda sem og lántak- anum. Íbúðarkaupandi sem keypti íbúð árið 2007 með 65% skuldsetn- ingu sá allt eigið fé sitt brenna upp, fyrir skuldaleiðréttingar, meðan sá sem keypti í lok árs 2010 jafnvel með 100% láni (t.d. með eiginfjárframlagi frá aðstandendum) hefur notið eigin- fjárávinnings allt til dagsins í dag.“ Skortur á byggingarlóðum á þátt í hækkandi fasteignaverði  Hvatt til varkárni í fasteignakaupum í nýrri skýrslu Reykjavik Economics Verðmunur eftir hverfum höfuðborgarsvæðisins árið 2016 Í samanburði við miðborg, þ.e.a.s. innan Hringbrautar og Snorrabrautar -0-5-10-15-20-25-30-35-40-45 Heimild: Þjóðskrá Íslands og Reykjavík Economics ehf. Innan Hringbrautar og Snorrabrautar, Reykjavík -7% -9% -9% -10% -11% -12% -15% -18% -21% 22% -22% -23% -25% -25% -27% -27% -28% -28% -29% -29% -29% -29% -29% -30% -31% -31% -31% -32% -32% -35% -35% -36% -37% -41% Seltjarnarnes Sjáland, Garðabær Melar og Hagar, Reykjavík Teigar og Tún, Reykjavík Lönd, Reykjavík Grandar, Reykjavík Hlíðar, Reykjavík Garðabær, (ekki Akrar og Sjáland) Vogar, Reykjavík Smárar, Kópavogur Akrar, Garðabær Norðan Kópavogslækjar (ekki Lundur), Kópavogur Heimar, Reykjavík Salir, Kópavogur Ás, Hafnarfjörður Mosfellsbær Borgir, Reykjavík Lindir, Reykjavík Vellir, Hafnarfjörður Engi, Reykjavík Grafarholt, Reykjavík Rimar, Reykjavík Kórar, Hvörf, Þing, Kópavogur Berg, Hafnarfjörður Foldir, Reykjavík Víkur, Reykjavík Hraunbær, Reykjavík Hólar, Reykjavík Háaleitisbraut, Reykjavík Hús, Reykjavík Sel, Reykjavík Hraun, Hafnarfjörður Álfaskeið, Hafnarfjörður Vangur, Hafnarfjörður Jón Gunnarsson samgönguráðherra segir engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi framlög ríkisins til uppbyggingar borgarlínu. Borgarlína er fyrirhugað kerfi al- menningssamgangna á höfuðborg- arsvæðinu. Áformað er að taka fyrsta áfanga í notkun 2022 og er hann talinn kosta 30-40 milljarða. Sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu gera ráð fyrir framlagi rík- isins til þessa verkefnis. „Við höfum ekki tekið upp form- legar viðræður við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um þetta mál. Í gildi er samningur sem gerður var 2012 um framlag ríkisins til almenn- ingssamgöngumála á höfuðborgar- svæðinu. Þar er gert ráð fyrir að framlagið sé um 900 milljónir á ári í tíu ár. Á þessu ári greiðir ríkið 890 milljónir til eflingar almennings- samgangna á höfuðborgarsvæðinu.“ Skoði líka stofnbrautir „Í ljósi þess hve kostnaðarsöm borgarlína yrði, þá tel ég eðlilegt að einnig yrði skoðað í hvaða endur- bætur á stofnbrautum mætti ráðast fyrir sömu fjárhæð og stórbæta jafnframt umferðarflæði.“ Spurður hvaða aðrar nýfram- kvæmdir en borgarlína séu í undir- búningi á höfuðborgarsvæðinu bendir Jón á hugmyndir um að taka Reykjanesbraut í gegnum Hafnar- fjörð. Þá sé Sundabraut í skoðun. Vegagerðin hafi lengi haft mikinn hug á byggingu mislægra gatnamóta á mótum Reykjanesbrautar og Bú- staðavegar, en borgin hafi ekki léð máls á því. baldura@mbl.is Teikning/Kópavogsbær Borgarlína Drög að biðstöð fyrir borgarlínu við Smáralind. Ekkert fé eyrnamerkt borgarlínu  Samgönguráðherra nefnir aðra valkosti ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.