Morgunblaðið - 06.05.2017, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 06.05.2017, Qupperneq 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Landsins mestaúrval af trommumí öllum verð�lokkum.Hjá okkur færðufaglega þjónustu,byggða á þekkinguog áratuga reynslu. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stuttar ferðir, skriftir, kennsla og tengsl við systkini veita þér mikla ánægju á komandi ári. Forgangsraðaðu verkefnum og hættu ekki fyrr en listinn er tæmdur. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur auga fyrir verðmætum og safn þitt er meira virði en þig grunar. Gakktu frá praktískum atriðum, svo má teikna drauma- heim og láta hann bera sig í burtu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur verið feiminn og mikið pælt í hvað öðrum finnst um þig, í stað þess hvað þér finnst sjálfum. Ef einhver vill ekki lána þér eitthvað sem hann á verðurðu að sætta þig við það. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að huga að framtíðinni og tryggja stöðu þína sem best. Suma daga er betra að fara í gönguferð og njóta himinsins, trjánna og vindsins. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það myndi æra óstöðugan að leita að orsökum allra hluta. Einhver ágreiningur gæti komið upp varðandi heimilisþrifin og þá er að komast að samkomulagi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Eitthvað fer illa fyrir brjóstið á þér og þú þarft að halda sjálfsstjórn. Ef það er valda- barátta á milli framans og vinanna, leyfðu þá vinunum að vinna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú ert leið, reyndu að herða upp hug- ann. Fólk virðist í einstaklega neikvæðum stellingum þessa dagana. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú bjargar engu með því að vera á sífelldum hlaupum. Margir væru til í að ríf- ast núna. Sinntu vinunum eins og þér frekast er unnt og leggðu annað til hliðar á meðan. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Samskipti við vinnufélaga batna umtalsvert á næstunni. Farðu eftir eigin sannfæringu og óttastu ekki því heilladísirnar vaka yfir þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ástarsamband, rómantík, skemmtan eða frí er efst á óskalistanum núna. Sýndu fjölskyldu þinni hlýju og ástúð því þú vilt að hamingja ríki á heimilinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er líklegt að það beri árangur að eiga orðaskipti við þá sem starfa að svip- uðum málum og þú. Gerðu engar áætlanir í dag. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það getur verið erfitt að standast þá freistingu að kaupa einhvern hlut. Einhverra hluta vegna áttu auðveldara með þessi sam- skipti en áður og nýtur þeirra jafnframt. Laugardagsgátan er sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns- son: Milli vængjabrodda bil. Bjarg, sem Grettir tók í fang. Skipaleið er landa til. Um Langasand ég þreytti gang. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Hugsað var um hitt og þetta hugmynd loks það gaf er ermunum tókst upp að bretta. Ýmiss konar haf. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Er vænghaf bjargfuglsins breitt? Á Bjargi tók Grettir upphafssporin. Úthaf fer skipið skreytt. Skrefar haf Langasand á vorin? Þessi er lausn Árna Blöndals: Haf er vængjabrodda bil. Bjarg sem lyfta Grettir vann. Skip um hafsins sigla hyl. Sandauðn þá ei meta kann. Þannig skýrir Guðmundur gát- una: Vænghaf þetta vera má. Víða Grettishaf ég sá. Halda skipin hafið á. Höf eru sandaflæmi grá. Þá er limra: Hann Sæmi úr Svartaskóla sundreið á erkifóla „yfir hafið og heim“ og hrekkjóttum þeim með saltara sökkti drjóla. Og síðan kemur Guðmundur með nýja gátu: Vaknaði af værum dúr og vatt mér fram úr eftir lúr, græja þurfti gátu nú, svo gæti birst í Mogga sú: Af auga manns oft það hrýtur. Í auganu blettur hvítur. Mein af því margur hlýtur. Menn sárt í kinnar bítur. Páll Vídalín orti: Best er að láta brekum af og bera vel raunir harðar; nú er meira en hálfsótt haf heim til sælujarðar. Er nema von Helgi R. Einarsson segi: „Vaðlaheiðargöngin (loks- ins)“: Til eyrna barst funheit fregn, sem til framtíðar skiptir hvern þegn. Með bauga’ undir augum og búnir á taugum slæptir þeir slógu í gegn. Guðmundur Stefánsson orti á Boðnarmiði: Umferðin er mjög um megn og mætti liggja þar í jörð. Hún myndi renna greið í gegn í göngum undir Skagafjörð Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það fýkur í hafið Í klípu STÖFFIÐ SEM ENGINN VILL KANNAST VIÐ = 199 KR. BRÚN HRÍSGRJÓN = 150 KR.GULLIN HÖRFRÆ= 200 KR. HEILDSALI eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MAMMA SENDI ÞÉR BÓK Í AFMÆLISGJÖF. HÚN SEGIR AÐ ÞAÐ SÉ MIKIÐ AF MYNDUM Í HENNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að lenda í rigningunni með þér. HUNDAR ERU SVO SANNARLEGA BESTU VINIR MANNSINS ÞÚ GÆTIR SPURT „HVÍ?“ VEGNA ÞESS AÐ KETTIR HAFA SJÁLFSVIRÐINGU ÉG ER HRÓLFUR HRÆÐILEGI! EKKERT GETUR STÖÐVAÐ MIG! ÉG ER HÉR TIL AÐ TAKA KASTALANN ÞINN ÞEIR BREYTTU SÍKINU Í FROÐUBAÐ! KANNSKI VAR ÉG OF FLJÓTUR Á MÉR! Hvað á að gera um helgina? Þettaer sígild spurning sem á vel rétt á sér. Þeir sem hafa ekkert gott svar við þessu eru ekki á leiðinni í utan- landsferð, fermingu eða stórafmæli geta samt fengið smá í magann við þessa spurningu. Efasemdirnar leita á hugann; það er bara ekkert að gera hjá mér, gerir það mig að verri manneskju? Svarið við því er nei því það er kúnst að hreinsa til í dagatal- inu. Fullt dagatal skapar ekki heilli manneskju, heldur aðeins mann- eskju sem er mjög upptekin. x x x Víkverji hefur tekið mörg viðtöl ogoftar en einu sinni hefur komið upp mikilvægi þess að gera ekki neitt. Sérstaklega kemur þetta upp hjá listamönnum því það er í hinu hversdagslega, ómerkilegum athöf- unum, úr engu, sem merkilegustu hugmyndirnar spretta upp. Það þarf einhvern veginn að skapa þetta and- rými til að eitthvað nýtt geti fæðst í huganum. x x x Það er svo auðvelt að fá sam-viskubit yfir því að vera að gera ekki neitt en það er algjör óþarfi. Það verður alltaf til staðar langur listi yf- ir það sem þarf að gera, það þarf bara að sleppa takinu og njóta stund- arinnar. Fólk er of upptekið til að fara í stefnulausa göngutúra eða glápa út um gluggann. Ef það er tímaeyðsla þá er allra mesta tíma- eyðslan falin í því að skrolla síður samfélagsmiðlanna í símanum, sem er sjaldnast langt undan. Það getur kannski gefið fólki eitthvað en Vík- verji getur lofað því að það er meiri hvíld frá daglegu amstri fólgin í því að fara í göngutúr. x x x Útivist er meira að segja orðinþannig að hún getur vart verið al- veg stefnulaus. Fólk er svo bundið í öppin sem það notar, fylgist of vel með RunKeeper eða Strava til að raun- verulega njóta stundarinnar. Áskorun helgarinnar til lesenda Morgunblaðs- ins er að fara í göngu- eða hjólatúr sem er hvergi mældur eða skráður nema í huganum. Ekki hlusta á tónlist og ekki ákveða fyrirfram hvert þú ætlar að fara. vikverji@mbl.is Víkverji En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég gerði Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum. (Sálmarnir 73:28)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.