Morgunblaðið - 06.05.2017, Page 52
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 126. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Öllum verslunum Hagkaups lokað
2. Vísað frá borði vegna barnanna
3. Ice Hot 1 gjaldþrota
4. 5 ástæður fyrir því að fólk grennist ekki
Sýning Aðalsteins Þórssonar
myndlistarmanns, Einkasafnið, maí
2017, verður opnuð í Listasafninu á
Akureyri, Ketilhúsi, í dag klukkan 15.
Undanfarna áratugi hefur Aðalsteinn
verið búsettur í Hollandi en flutti í
fyrra heim í Eyjafjörðinn. Sýningin
fjallar um neyslu hans sjálfs.
Einkasafn Aðalsteins
sýnt í Ketilhúsinu
Barokkbandið
Brák heldur í dag
kl. 17 tónleika í
Norðurljósasal
Hörpu undir yfir-
skriftinni 11 m/s.
Boðið verður upp
á ítalska vorveislu
en gestur verður
ungverski fiðlu-
leikarinn Kingu Ujszászi. Leikur hann
„Vorið“ eftir Vivaldi en Laufey Jens-
dóttir fiðlukonsert eftir Tartini.
Vorveisla barokk-
bands í Norðurljósum
Óratórían Júdas Makkabeus eftir
G.F. Händel, eitt vinsælasta verk tón-
skáldsins, verður flutt í Neskirkju í
kvöld kl. 18. Flytjendur eru Kór Nes-
kirkju, einsöngvararnir Hallveig Rún-
arsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir,
Gissur Páll Gissurarson og Fjölnir
Ólafsson, og Hátíðarbar-
okksveit Vesturbæjar.
Stjórnandi er Stein-
grímur Þórhallsson og er
með flutn-
ingnum
haldið upp á
60 ára afmæli
Neskirkju.
Flytja Júdas Makka-
beus í Neskirkju
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg átt, skýjað með köflum norðan- og austanlands,
þokuloft og svalt við ströndina. Lengst af léttskýjað fyrir sunnan og vestan með hita að
19 stigum, en líklega þokuloft um kvöldið.
Á sunnudag Hæg breytileg átt og víða skýjað, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti
5 til 17 stig, hlýjast í innsveitum norðaustan til. Á mánudag Vestlæg átt, 5-10 m/s og
skýjað, en bjart með köflum austanlands. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast fyrir austan.
1. deild karla í knattspyrnu, Inkasso-
deildin, hófst í gærkvöldi með þrem-
ur leikjum. Í Breiðholti gerðu Leikn-
ismenn og Keflvíkingar 1:1 jafntefli
en Keflavík er spáð góðu gengi í sum-
ar. Fram sem átt hefur erfitt upp-
dráttar undanfarin ár náði í þrjú stig í
Kórnum í Kópavogi gegn HK. Selfyss-
ingar náðu einnig í þrjú stig en þeir
fengu ÍR-inga í heimsókn. » 3
1. deild karla farin af
stað í fótboltanum
„Ef ég geri eitthvað vitlaust þá
fæ ég það oft óþvegið frá hon-
um. Ég er líka ófeiminn að
svara í sömu mynt ef mér sýn-
ist hann ekki standa sína vakt
eins og best verður á kosið. Orri
stjórnar vörninni og við hlýðum
honum. Stundum er Orri full-
harður. Þá hlusta ég ekkert á
hann og geri bara betur næst,“
segir Ýmir Örn Gíslason hand-
boltamaður úr Val sem leikur
þar við hlið bróður síns. »4
Stundum hlusta
ég ekkert á hann
Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari
karla í handknattleik, segir að ís-
lenska liðið þurfi að spila betur í
Laugardalshöllinni annað kvöld þegar
það mætir Makedóníu í undankeppni
EM, en það gerði í tapleiknum í
Skopje í fyrrakvöld. „Staða okkar
þrengdist allverulega við þetta tap.
Fyrir þennan leik þurftum við 75% af
stigunum sem eftir
voru en nú þurfum
við 100%,“ segir
Geir. »1
Þurfum 100 prósent af
því sem eftir er
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Persónan Magnús Magnús Magn-
ússon vakti athygli í nýjasta ára-
mótaskaupi Ríkissjónvarpsins og
víkingaklapp hans lifir góðu lífi hjá
leikaranum Hallgrími Ólafssyni.
Magnús Magnús fylgir straumn-
um og aðhyllist hjarðhegðun, en
honum er fyrirmunað að klappa í
takt og er eini maðurinn sem nær
ekki víkingaklappinu. Út á það geng-
ur grínið og Hallgrímur hefur vart
haft undan við að gleðja landann á
árshátíðum og öðrum vinnustaða- og
félagsskemmtunum. „Fólk er mjög
hrifið af Magnúsi mínum,“ segir
hann. „En hann finnur ekki taktinn
og veit ekki hvenær á að klappa.“
Hallgrímur segir að Magnús
Magnús hafi í raun frekar lítið að
segja. „Hann er mjög brotinn maður
vegna þessa taktleysis og er eins og
illa gerður hlutur, en reynir að klóra
í bakkann.“
Íslenska landsliðið í knattspyrnu
fór á kostum í Evrópukeppninni í
fyrra og víkingaklapp leikmanna og
stuðningsmanna vakti athygli víða
um heim. Margir hafa tekið það upp
og til dæmis fagnaði þýska liðið Bay-
ern München Þýskalandstitlinum
um liðna helgi með þessu fræga
klappi. Á sama tíma reyndi Magnús
Magnús að halda takti án árangurs
sem fyrr.
Boltinn rúllar hjá Magnúsi
Í skaupinu er Magnús Magnús
niðurbrotinn maður en strax á öðr-
um degi ársins var búið að panta
hann á skemmtun hjá fleiri hundruð
manns í Hörpu. „Síðan hefur boltinn
haldið áfram að rúlla og ég hef ekk-
ert þurft að hafa fyrir því að kynna
hann, þetta hefur gengið af sjálfu
sér,“ segir Hallgrímur.
Leikarinn er önnum kafinn í leik-
húsinu, leikur í tveimur sýningum
um þessar mundir, Fjarskalandi og
Álfahöllinni, var í Djöflaeyjunni þar
til sýningar hættu fyrir um mánuði
og æfir í verkinu Risaeðlum, sem
verður frumsýnt í haust. „Ég gæti
sinnt Magnúsi Magnúsi mun betur
ef ég væri ekki upptekinn í leikhús-
inu því það er mikið hringt og bók-
anir fram á sumarið.“
Hallgrímur kann vel við Magnús
Magnús. „Hann er indælis gaur en
bara með þessa örlitlu fötlun. Hann
er taktlaus en vill vera með og gefst
ekki upp. Þessi vesæli maður er
tilbúinn að reyna og kemur í raun
bara fram til þess að láta hlæja að
sér.“
Hlutverkið í skaupinu var eins og
hvert annað hlutverk og Hallgrímur
segist ekki hafa átt von á þessum
viðbrögðum. „Ég ætlaði aldrei að
fara áfram með hann og það síðasta
sem hvarflaði að mér eftir skaupið
var að Magnús Magnús ætti eftir að
slá í gegn en það bara gerðist. Þessi
vesalingur varð allt í einu stór og það
er alltaf gaman, þegar fólk kann að
meta það sem maður gerir.“
Hallgrímur segir að þrátt fyrir
vinsældir Magnúsar Magnúsar togi
leikhúsið alltaf mest í sig. Hins vegar
sé skemmtilegt að blanda þessu
saman. Hann bendir á að hann hafi
byrjað í leiklistinni fyrir tilviljun.
„Ég ólst upp á Akranesi og sá lítið
leikhús sem barn fyrir utan skóla-
sýningar,“ segir hann. „Ég sá Hárið,
sem Baltasar setti upp í Gamla bíói,
þegar ég var unglingur og þá kvikn-
aði eitthvað hjá mér, að þetta gæti
verið eitthvað sem ég gæti lagt fyrir
mig. Ég var samt orðinn 26 ára þeg-
ar ég sótti um í leiklistarskólanum
og útskrifaðist þrítugur.“
Áður en Hallgrímur fór í leik-
listina var hann sölumaður hjá heild-
sölu og seldi meðal annars tískufatn-
að í búðir. Hann var líka háseti á
Akraborginni og æfði fótbolta með
Skagamönnum upp í 2. flokk. „Það
kemur sér vel í hlutverki Magnúsar
Magnúsar að hafa aðeins vit á fót-
bolta og ég held áfram að mæta eins
lengi og fólk óskar eftir því.“ Ekki
fylgir sögunni hvort hann hafi tryggt
sér miða á næsta heimaleik, en upp-
selt er á HM-leik Íslands og Króatíu
á Laugardalsvelli 11. júní.
Víkingaklappið lifir góðu lífi
Magnús Magnús Magnússon fer um víðan völl og skemmtir landsmönnum
Ljósmynd/ Skjáskot úr áramótaskaupi Ríkissjónvarpsins
Taktleysi Hallgrímur Ólafsson í hlutverki Magnúsar Magnúsar Magnússonar hefur ekki enn náð taktinum og vinsældirnar aukast í takt við það.