Freyr - 01.04.2006, Síða 11
Orku-
gildi í
+ ■ 1=1
og protein-
fóðri - NorFor (5)
NorFor
Norrænt fóðurmatskerfi
Það sem aðskilur NorFor-fóðurmats-
kerfið og þær fóðurmatsaðferðir
sem nú eru í notkun, t.d. á Norður-
löndum, er að hver fóðurtegund
hefur ekki fast orku- eða prótein-
gildi. Það er breytilegt eftir fóðuráti
(fóðurumsetningu) og efnasamsetn-
ingu fóðursins. Þá fyrst getum við
reiknað fóðurgildið þegar við
þekkjum fóðurátið í gróffóðri og
kjarnfóðri, svo og aðrar framleiðslu-
aðstæður hjá gripunum. Þetta þýðir
að í NorFor-fóðurmatskerfinu er
metið eins raunverulegt fóðurgildi í
tilteknum fóðurskammti og tök eru
á en ekki staðlað gildi eins og við
gerum nú. Þar með fáum við
traustari grundvöll til að reikna eða
áætla væntanlega svörun hjá grip-
unum við fóðrinu, t.d. í framleiðslu
á mjólk.
( grein nr. 4 í 8. tbl. Freys 2005 um NorFor-
fóðurmatskerfið var einkum fjallað um
meltingu fóðursins. Melting eða ummynd-
un fóðursins í mismunandi hlutum melting-
arvegarins er undirstaða ákvörðunar á orku-
og próteingildi fóðursins. Um það verður
fjallað í þessari 5. grein um NorFor.
FRÁ FÓÐUREININGU í MEGAJÚL (MJ)
Ein afleiðing nýja, norræna fóðurmatskerfis-
ins (NorFor) er að mælieiningin fyrir orku
breytist úr „fóðureiningu" (FEm) í „megajúl"
(MJ). Áfram verður orka fóðursins metin sem
virk orka til mjólkurframleiðslu (NOM) en
mælieiningin verður MJ. I Svíþjóð er orka í
fóðri ákvörðuð sem breytiorka (BO) og mæld
í MJ. I Danmörku hefur skandinavíska fóður-
einingin (nfe) verið notuð. Það er ekki sama
fóðureining og sú sem Norðmenn og við not-
um hér á landi (FEm). Öll löndin sem standa
að NorFor-samvinnunni munu því taka í notk-
un nýja viðmiðun í fóðurorku, annaðhvort
sem nýja mælieiningu (Noregur, Island og
Danmörk) eða sem nýtt orkugildi (Svíþjóð og
Danmörk). Flvað ísland og Noreg varðar þýð-
ir þetta að 1 FEm (mjólkurfóðureining) sam-
svarar 6,9 MJ (megajúlum).
Að því er varðar prótein þá verður AAT-
einingin (aminósýrur uppteknar í mjógirni)
og PBV (próteinjafnvægi í vömb) notaðar
áfram. Til þess að sýna að þær gildi í NorFor
verða táknin AATp og PBVp notuð. Á sama
hátt og í núverandi fóðurmatskerfi er það
AAT, annars vegar amínósýrur úr örverupró-
teini og hins vegar beint úr fóðrinu, sem
ákvarðar próteingildi fóðursins. Aðferðin
við útreikning þessara tveggja gilda er ekki
sú sama í NorFor-fóðurmatsaðferðinni og í
núverandi próteinmatskerfi - AAT/PBV.
BREYTILEG ORKU- OG PRÓTEINGILDI
Meltanleiki kolvetna (sykurs, sterkju og
NDF), próteins og fitu er grunnur að út-
reikningi á orkugildi fóðursins. I NorFor
stjórnast meltanleikinn af fóðuráti eða fóð-
urumsetningu. Almenna reglan er að við
aukið fóðurát styttist sá tími sem fóðrið er í
vömbinni - flæðihraði þess gegnum vömþ-
ina eykst og vambarörverurnar fá þá
skemmri tíma til að vinna á því. Dæmi um
hvernig fóðurátið virkar á reiknað orkugildi
fóðurskammtsins og AATp-gildið er sýnt á
myndum 1 og 2. Til þess að einfalda fram-
setninguna er samsetning fóðurskammtsins
í dæminu höfð föst (60% gróffóður og
40% kjarnfóður). Á myndunum má einnig
sjá samanburð við núverandi fóðurmatsað-
ferð. Núverandi matsaðferð gefurfast orku-
gildi í fóðurskammti 6,7 MJ NOM (0,97
FEm) í kg þurrefnis en samkvæmt NorFor-
aðferðinni alltfrá 7,1 MJ NOM við 1,5-falda
viðhaldsfóðrun og niður í 6,2 MJ NOM við
fóðurát sem svarar til fimmfaldrar viðhalds-
fóðrunar (u.þ.b. 45 kg dagsnyt). Orkugildi
fóðurskammtsins lækkar um 13% á þessu
bili. I núverandi fóðurmatskerfi er einnig
tekið tillit til hliðstæðra áhrifa, en ekki í eins
ríkum mæli, því þar er leiðréttingin aðeins
um 7%. Afleiðingin er því sú að í NorFor er
gerð vaxandi krafa um orku í fóðrinu, um
vaxandi orkustyrk, með hækkandi dagsnyt.
Fóðurskammturinn í dæminu reiknast sam-
kvæmt núverandi fóðurmatsaðferð inni-
halda fast AAT-gildi 94 g/kg þurrefnis (þe),
en samkvæmt NorFor-aðferðinni vex AATp-
gildið úr 78 upp í 109 g/kg þurrefnis þegar
fóðurátið eykst úr 7,5 kg ( 27,5 kg
þe/grip/dag. AATp-innihald fóðurskammts-
ins eykst um u.þ.b. 40%. Ástæðan fyrir því
að AAT-gildið hækkar, þrátt fyrir að vam-
barmeltanleiki fóðursins lækki með auknu
fóðuráti, er að virkni örverupróteinfram-
leiðslunnar í vömbinni vex. Það stafar af því
FREYR 04 2006