Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2006, Page 33

Freyr - 01.04.2006, Page 33
HROSSARÆKT Mynd 1. Útflutningur hesta 1850 - 1900 &N «8? /v'ö CX' cx'- ^ KÖ' kÖ k9? S> oSf & KÖ KÖ Mynd 3. Útflutningur hesta 1951 - 2004 20.000 -, 18.000 - 16.000 - </j 14.000 - -Q. 12.000 - 10.000 - ■o 8.000 - L 6.000 - 4.000 - 2.000 - nnn jgj ev | oV Ov3 am a - K& K°P K& K<y ^ & & & J" „<# „á'1* rvö <&' oN' qÖ' A\' A<b'' oN'' oö'' qN'' Æ'1 fVJ rV-> nSO oiO r.K qV. o» rip ,VO) Nq,J k°>j n°>h k°>x k°>' nö° nö° N°rj nö“j söN' Súluritin sýna fjölda útfluttra hrossa á tímabilinu 1850 - 2004 helstu eru Billund í Danmörku, Norrköpping í Svíþjóð, New York í Bandaríkjunum og Lúxemborg. Annar þáttur sem hefur verið fremur tak- markandi fyrir útbreiðslu íslenska hestsins eru sjúkdómar. íslenski hesturinn hefur vegna einangrunar sinnar verið laus við marga sjúkdóma sem herja á hross annars staðar í heiminum. í þessu sambandi ber helst að nefna sumarexem sem hefur án efa haft áhrif á útflutning frá íslandi og unnið gegn honum að einhverju leyti. ÁHRIFAÞÆTTIR DREIFINGAR TIL OG INNAN LANDA Mikil dreifing er á íslenska hestinum um heiminn og aðstæður ólíkar á milli staða. Það hefur m.a. leitt til þess að fjöldi hesta innan hvers lands hefur verið breytilegur en fleiri hesta er að finna f þeim löndum þar sem þekking og hagstæð skilyrði eru fyrir hendi. Löndin eru misjafnlega stödd í (slands- hestamennskunni, allt frá því að vera með fáa reiðhesta í það að halda umfangsmiklar sýningar á íslenska hestinum eða jafnvel heimsleika íslenska hestsins. Þeir þættir sem hafa frá upphafi einna helst haft áhrif á dreifinguna og fjöldann er umgjörð markaðssetningarinnar og ýmsir landfræðilegir þættir. Markaðssetning ís- lenska hestsins í upphafi hefur vafalaust leikið lykilhlutverk og haft mjög mikil áhrif á núverandi staðsetningu íslenska hestsins. Þar sem markaðssetning hefur byrjað í hverju landi fyrir sig, f upphafi útbreiðslu- sögu íslenska hestsins, hafa byggst upp ákveðin kjarnasvæði sem haldið hafa áfram að stækka og þróast í seinni tíð. Landfræði- legir þættir hafa einnig stýrt útbreiðslunni að miklu leyti í gegnum tíðina og er stað- setning íslenska hestsins innan hvers lands í mörgum tilvikum nokkuð afmörkuð sökum þeirra. Almennir landshagir, landslag og loftslag í hverju landi eru þættir sem haft hafa mikil áhrif á dreifingu hans innan hvers lands fyrir sig. Þau lönd sem hýsa íslenska hestinn eru mjög misjöfn hvað stærð og gerð varðar. Hlutfall hálendis, láglendis, jökla, eyði- marka, gróins og ógróins lands er mjög breytilegt og hefur þar með haft áhrif á heildarfjölda alls búfénaðar innan hvers lands og þar með heildarfjölda íslenska hestsins. ( löndum þar sem gróið land og víðátta er fremur takmörkuð er færri hesta að finna en í þeim löndum þar sem gróið land og víðátta er algengari. Landslag og umhverfi er annar stýriþáttur útbreiðslunnar. Aðgengi að grösugum hög- um, vatni og skjólgóðu svæði er frumskil- yrði þess að íslenski hesturinn lifi og dafni vel. Þessir þættir hafa haft áhrif á hvar hann er staðsettur í hverju landi fyrir sig. Loftslag er enn einn áhrifaþáttur útbreiðsl- unnar en eins og gefur að skilja er það mjög mismunandi milli og innan hvers lands. Stað- setning íslenska hestsins takmarkast að miklu leyti við loftslag því að hiti og raki lofts- lagsins ræður miklu um almenna líðan hans. Auk ofangreindra áhrifaþátta á staðsetn- ingu hans innan hvers lands hafa samgöng- ur, vegalengdir og efnahagur hvers lands haft áhrif. FREYR 04 2006

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.