Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2006, Blaðsíða 30

Freyr - 01.04.2006, Blaðsíða 30
SAUÐFJÁRRÆKT Selen í hrútum Metið með ákvörðunum á GPX-virkni í blóði Eftir Sigurð Sigurðarson, Landbúnaðar- stofnun, Kristínu Björgu Guðmunds- dóttur, Rannsóknadeild yfirdýralæknis í dýrasjúkdómum, Jakob Kristinsson og Þorkel Jóhannesson, Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, og Tryggva Eiríksson, Landbúnaðarháskóla íslands Við höfum áður lýst því hve lítið selen sé í heyi af ræktuðu landi og hve útbreidd einkenni um selenskort séu í sauðfé (einkum lömbum) og jafnvel einnig í kvígum og folöldum, þrátt fyrir almenna varnandi gjöf selens (seleníts) og E-vítamíns (tókóferóls) (Þorkell Jóhannesson o.fl. 2004a). Við bentum einnig á að þéttni selens í blóði áa teldist nægjanleg að hausti en væri að vori oftast nærri þeim mörkum sem samfara eru skortseinkennum. Þetta kemur heim og saman við það að meðganga veldur álagi á selenbúskap áa og magn selens í heiða- og hálendis- gróðri virðist samkvæmt eldri rann- sóknum vera mun meira en í gróðri á ræktuðu landi og útjörð á láglendi (Baldur Símonarson o.fl. 1984). Guðný Eiríksdóttir og félagar (1981) hafa einnig áður sýnt fram á sveiflur í selenþéttni í blóði áa frá hausti og fram að burði að vori eftir innistöðu í mánuði. Fyllra yfirlit yfir selenrann- sóknir okkar hefur birst á ensku (Þorkell Jóhannesson o.fl. 2004b). Fram til þessa hefur selen lítið verið rannsakað í hrútum á íslandi. í blóði sauðfjár (og fleiri dýrategunda) er en- sím sem inniheldur selen og nefnist glútatí- onperoxídasi (skammstafað GPX eða stund- um GPO). Virkni þessa ensíms er oft við nán- ar skilgreindar aðstæður í réttu hlutfalli við þéttni selens í blóðinu. Þar sem ákvarðanir á seleni eru bæði erfiðar og dýrar, en ákvarð- anir á GPX-virkni mun ódýrari, hafa menn oft leitast við að láta ákvarðanir é GPX-virkni í blóði koma í stað ákvarðana á seleni. Sér- staklega hefur slík aðferð gildi við skimun á seleni. GPX-gildi virðast þó vera háð erfðum og því ber að taka niðurstöður GPX-mæl- inga með vissum fyrirvara. Af rannsóknum Guðnýjar Eiríksdóttur og félaga má ráða að GPX-virkni í blóði sauðfjár skuli ekki vera öllu minni en 100 einingar miðað við gramm blóðrauða í sýnum (ein./g Hb). Virkni GPX hefur lengi verið ákvörðuð á Tilraunastöð- inni á Keldum. Nákvæmni aðferðarinnar þar hefur verið mjög viðunandi. GPX-VIRKNI í BLÓÐI HRÚTA Fyrsta sunnudag í aðventu 2005 voru þrjú okkar (S.S., K.B.G., Þ.J.) á ferð á stóru sauð- fjárbúi til þess að taka þar blóðsýni úr ám til ákvörðunar á GPX-virkni til viðmiðunar við þess konar ákvarðanir í blóði áa á riðubæj- um. Á bænum (bær H) voru tólf hrútar og við ákváðum að taka blóðsýni úr fimm þeirra (hrútar nr. 19-23, mynd 1) til ákvarð- ana á GPX-virkni, þótt það hefði upphaf- lega ekki verið ætlunin. Hrútar þessir eru 2- 5 vetra gamlir og höfðu sumarlangt og fram á haust gengið á mýrlendi, uns þeir voru teknir á hús í byrjun nóvember. Þeir höfðu verið fóðraðir á heyi en ekki fengið nein sölt eða annað fóður (tafla 1). Það vakti athygli okkar að virkni GPX í blóðinu var innan við 100 ein./g Hb eða lltið eitt þar yfir (mynd 1), enda þótt GPX-virkni í blóð- sýni úr ánum (tekin voru blóðsýni úr 121 á) sem gengið höfðu sumarlangt í fjalllendi væri með einni undantekningu yfir þessum mörkum og venjulega langt yfir þeim. Ganga má út frá því að selentekja sé rýr í sauðfé við beit á mýrum með súrum jarð- vegi eins og reyndin var í þessu tilviki (tafla 1). Áhugi okkar var nú vakinn á því að kanna hvort nokkurs selenskorts kynni að gæta í hrútum á öðrum sauðfjárbúum. Af ýmsum ástæðum dróst það til 11. janúar síðastliðins að við færum ( yfirreið á önnur sauðfjárbú. Þann dag fórum við á sjö býli (bæi A-G) og tókum blóðsýni úr 18 hrútum (nr. 1-18) 2-5 vetra gömlum til ákvörðunar á GPX-virkni (tafla 1, mynd 1). Hrútur nr. 1 (bær A) hafði gengið mest í fjalllendi ofan bæjarins en hinir hrútarnir á bænum (nr. 2-5) mest á ábornum árbökk- um. Þeir höfðu á húsi haft aðgang að stein- efnablöndu en fjallhrúturinn ekki. Engu að síður var GPX-virkni í blóði hans miklu meiri en í blóði hinna hrútanna. Þetta dæmi styð- Ljósm. Jón Eiríksson ur fyrri ályktanir um að selentekja sauðfjár sé góð á fjalli. Samkvæmt ákvörðun á GPX-virkni telst selentekja hrúts nr. 6 (bær B) vera nægjan- leg. Annar hrútur á sama bæ (nr. 7) sem hafði haft aðgang að selenríkum fóðurbæti var þó með meiri GPX-virkni í blóðinu. Hrútar nr. 8-12 (bær C) höfðu allir verið sprautaðir með seleni og E-vítamíni þegar þeir voru teknir á hús um það bil tveimur mánuðum áður en blóðsýnin voru tekin. GPX-virkni i sýnum úr þessum hrútum var í öllum tilvikum yfir 200 ein./g Hb. Sama var að segja um hrút nr. 13 (bær D). Hrútur nr. 14 (bær E) hafði aðgang að saltsteini með seleni i og hans GPX-gildi voru einnig mjög há. Hrútar nr. 15 og 16 (bær F) vöktu athygli þar sem þeir voru fóðraðir á há, án gjafar saltsteina eða fóðurbætis, og höfðu (ásamt hrúti nr. 14) hæstu GPX-gildin í safninu. Há vex að jafnaði hægar en túngresi í fyrsta slætti og yfirleitt er talið að mun meira sé af seleni og öðrum snefilefnum í há en í grasi í fyrsta slætti. Hrútar nr. 17 og 18 (bær G) áttu að hafa aðgang að saltsteini með seleni í en nr. 18 þó lítið. GPX-gildi hans voru lægri en hjá hrúti nr. 17. ÁLYKTUNAR- OG NIÐURLAGSORÐ Ofangreind skimun á seleni í 23 hrútum, dæmt á grundvelli GPX-gilda í blóðsýnum, er fjarri þvt að vera tæmandi. Hún gefur þó vísbendingu um að gjöf selens í formi salt- steina, fóðurbætis eða stungulyfs (með eða án E-vítamíns) tryggi að GPX-gildin séu oft- ast vel ofan ætlaðra skortsmarka (hrútar nr. 2-12 og 14). Þessu er öðruvísi farið um hrúta sem verið höfðu á mýrlendi og höfðu ekki fengið neina selenuppbót eftir að hafa vera teknir á hús (hrútar nr. 19-23) Þessir FREYR 04 2006

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.