Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2006, Page 14

Freyr - 01.04.2006, Page 14
SAUÐFJÁRRÆKT Sauða- og geitaostar Menningartengd nýjung í íslenskri búvöruframleiðslu Sumarið 2004 var hleypt af stokkunum tilraunaverkefni með vinnslu á afurðum úr sauða- og geitamjólk að frumkvæði Ásbjörns Jónssonar hjá Matvælarannsóknum Keldnaholti. Að verkefninu stóðu Búnaðarsamtök Vesturlands, Landbúnaðarháskóli íslands, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Mjólkursamlagið í Búðardal. Meginmarkmið verkefnisins voru í upphafi að: • Auka atvinnu- og verðmætasköpun á sauðfjárbúum á Vesturlandi með því að auka afurðaverðmæti sauðfjár. • Auka fjölbreytni í framboði til neytenda með þróun nýrra vörutegunda. Síðar var ákveðið að taka einnig geitamjólkurframleiðslu inn í verkefnið sem lið í að koma á skipulegri og arðbærri nýtingu á afurðum íslenska geitastofnsins og forða honum þannig frá útrýmingu. IEftir Hallfríði Ósk Ólafsdóttur, Búnaðarsamtökum Vesturlands og Svein Hallgrímsson, Landbúnaðarháskóla íslands Frá kynningu á sauða- og geitaostum í Osta- og smjörsölunni í ágúst á síðasta ári. Ljósm. Iris Ármannsdóttir Verkefnið fór rólega af stað og haustið 2004 söfnuðust aðeins rúmir 100 I af sauðamjólk og 75 I af geitamjólk. Mjólkur- samlagið í Búðardal sá um framleiðslu á ost- unum og voru þeir kynntir hjá Osta- og smjörsölunni sl. sumar. Ostarnir fóru í fram- haldi af því i sölu í ostabúðum. Ákveðið var að halda verkefninu áfram árið 2005 og var auglýst eftir þátttakend- um. f það skiptið fengust tæp 800 kg af sauðamjólk frá fimm framleiðendum og tæp 1.800 kg af geitamjólk frá einum fram- leiðanda. Verið er að vinna úr mjólkinni og verður framleiðslan kynnt von bráðar og sett í sölu. NÝTING SAUÐAMJÓLKUR Sauðamjólk var áður fyrr mikið nýtt til manneldis hér á landi enda byggðist af- koma fólks á því að gjörnýta afurðir bú- peningsins. Auk þess er sauðfé mun betur til þess fallið að nýta óræktað land til mjólkurframleiðslu en kýrin. Víða erlendis, einkum þar sem jarðyrkja er erfiðleikum bundin t.d. vegna þurrka eða jarðvegs- gerðar, er sauðfé ennþá mikið nýtt til mjólkurframleiðslu og í Miðjarðarhafslönd- unum eru um 60% ánna mjólkaðar (Boyazoglu og Morand-Ferh 2001). Á sum- um þessara svæða hafa þróast vörur sem í seinni tíð eru orðnar heimsþekkt vöru- merki, til dæmis franski Roquefort-ostur- inn og gríski fetaosturinn. Nýting sauða- mjólkur þarf hins vegar ekki að tilheyra fortíðinni eða erfiðum umhverfisaðstæð- um. Undanfarin ár hefur framleiðsla á vör- um úr sauðamjólk farið mjög vaxandi í jarðyrkjulöndum svo sem í norðanverðri Evrópu og Bandaríkjunum (Boyazoglu og Morand-Ferh 2001). Ostur er líklega aðal- afurð sauðamjólkurframleiðslunnar eins og sakir standa en einnig er vel hægt að framleiða t.d. jógúrt og ís úr sauðamjólk. EIGINLEIKAR íslensk sauðamjólk hefur ekki mikið verið rannsökuð. Það er þó vitað að hún hefur eig- inleika sem gera það að verkum að heppilegt getur verið að nýta hana sem aukaafurð með hefðbundinni sauðfjárrækt, án þess að vera í beinni samkeppni við þær mjólkurvörur sem fyrir eru á markaði. Sem dæmi má nefna að þurrefnisinnihald sauðamjólkur er hátt sem gerir það að verkum að hún nýtist vel til osta- gerðar, meira magn fæst af osti úr hverju kílói af henni en t.d. kúamjólk. Jafnframt er sauðamjólk yfirleitt afar rík af steinefnum svo sem kalki og ýmsum vítamínum (Sveinn Hall- grímsson 1997). Þá er próteinsamsetning töluvert frábrugðin kúamjólk þannig að dæmi eru um að fólk með mjólkuróþol geti neytt vara úr sauðamjólk (British Sheep Da- irying Association 1994). Nýting og markaðs- setning á sauðamjólk getur því verið leið landbúnaðarins til að koma til móts við þarf- ir þessa neytendahóps. Vörur úr sauðamjólk er hægt að vinna eftir að hún hefur verið fryst. Því er hægt að mjólka í litlum mæli og safna mjólkinni upp í frysti þar til komið er nægilegt magn eða það hentar best út frá markaðsaðstæðum að hefja framleiðslu. ÚRVINNSLA OG MARKAÐSSETNING Framleiðsla á sauðamjólk verður varla í stórum stíl á næstu árum, heldur verður FREYR 04 2006

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.