Freyr - 01.04.2006, Síða 31
SAUÐFJÁRRÆKT
Mynd 1. GPX-virkni í blóði 23 hrúta frá 8 bæjum merktum A til H (sbr. töflu 1)
800 ------------------------------—------------------------------------------
700
600
-Q
X
O) 500
c’
’d)
c' 400
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
A B C DEFG H
Hrútar númer
hrútar gætu því hafa verið við skortsmörk
og hugsanlega í hættu. GPX-gildi hjá hrúti
nr. 1 benda eindregið til þess að fjallagróð-
ur sé öflugur selengjafi í samanburði við
gras á ræktuðum árbökkum og það jafnvel
þótt selenuppbót hafi komið til (hrútar nr.
2-5). Sérlega athyglisverð eru há GPX-gildi í
blóðsýnum úr hrútum sem einungis voru
fóðraðir á há (hrútar nr. 15 og 16).
Selenskortur getur valdið vöðvaskemmd-
um (stíuskjögri og þindarsliti), hjartabilun
og væntanlega truflað starfsemi fylgju með
ýmsum hætti. Þar að auki eru vísbendingar
í þá veru að selenskortur geti beinlínis
hamlað því að kýr eða ær hafnist. Hvað
sem hæft er í þessu er augljóst að hrútar
þurfa á góðri þind og hjarta að halda í önn-
um sínum á jólaföstu og áramótum og það
án tillits til þess hvort þeir eru hornprúðir
framar venju eða ekki. Full þörf er á því að
gera ítarlegri rannsókn á selenbúskap hrúta
til að fá áreiðanlegri niðurstöður.
ÞAKKARORÐ
Við flytjum bændum á þeim átta sauð-
fjárbúum sem hér um ræðir bestu þakkir
fyrir hjálp við sýnatöku og áhuga á rann-
sóknarverkefninu.
HEIMILDIR
Baldur Símonarson, Guðný Eiríksdóttir, Sigurður
Sigurðarson & Þorsteinn Þorsteinsson, 1984. Sel-
enskortur og seleneitrun. Freyr 80, bls. 910-912.
Guðný Eiríksdóttir, Baldur Símonarson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Bjarni Guðmundsson & Jón Viðar
Jónmundsson, 1981. Árstíðabundnar breytingar á
seleni í blóði sauðfjár. Tilraun á Hvanneyri 1980.
Journal of Agricultural Research in lceland 13,
bls. 25-33.
Þorkell Jóhannesson, Jakob Kristinsson, Kristín
Björg Guðmundsdóttir, Sigurður Sigurðarson &
Tryggvi Eiríksson, 2004a. Sauðfjárriða - kopar,
mangan, selen og GPO. Freyr 100, bls. 35-39.
Þorkell Jóhannesson, Kristín Björg Guðmunds-
dóttir, Tryggvi Eiriksson, Jed Barash, Jakob Krist-
insson & Sigurður Sigurðarson, 2004b. Selenium
and GPX activity in blood samples from pregnant
and non-pregnant ewes and selenium in hay on
scrapie-free, scrapie-prone and scrapie-afflicted
farms in lceland. Icel. Agr. Sci. 16/17, bls. 3-13.
Tafla 1 Upplýsingar um 23 hrúta sem úr voru tekin blóðsýni til ákvarðana á GPX-virkni
Bær Hrútur Nr. Beit Tekinn á hús Fékk saltblöndu/ saltstein Athugasemdir
A 1 Á fjalli, síðan 2 mán. á beittu túni í byrjun nóv. Nei Engin snefilefni eða sölt
A 2 Á áb. móalandi, síðan 2 mán. á beittu túni í byrjun nóv. Já Aðg. að steinefnastampi í 33 daga
A 3 Á áb. móalandi, síðan 2 mán. á beittu túni I byrjun nóv. Já Aðg. að steinefnastampi í 33 daga
A 4 Á áb. móalandi, síðan 2 mán. á beittu túni í byrjun nóv. Já Aðg. að steinefnastampi í 10 daga
A 5 Á áb. móalandi, síðan 2 mán. á beittu túni í byrjun nóv. Já Aðg. að steinefnastampi í 33 daga
B 6 Á mýrlendi, síðan 1 mán. á túni í lok okt. Nei Sama og enginn fóðurbaetir
B 7 Á mýrlendi, síðan 1 mán. á túni I lok okt. Já Nautgripakögglar með Se
C 8 Á áb. áreyrum og móalandi 15. nóv. Nei Sprautaður með Se og E-vítamíni
c 9 Á áb. áreyrum og móalandi 15. nóv. Nei Sprautaður með Se og E-vítamíni
c 10 Á áb. áreyrum og móalandi 15. nóv. Nei Sprautaður með Se og E-vítamíni
c 11 Á áb. áreyrum og móalandi 15. nóv. Nei Sprautaður með Se og E-vítamíni
c 12 Á áb. áreyrum og móalandi 15. nóv. Nei Sprautaður með Se og E-vítamíni
D 13 Á áb. móalandi í lok okt. Nei Engin snefilefni eða sölt
E 14 Á móalandi (fjölbreyttu), svo 6 vikur á há í byrjun nóv. Já Saltsteinn með Se fyrir sauðfé
F 15 Á móa- og mýrlendi í byrjun nóv. Nei Fóðraður á há
F 16 Á móa- og mýrlendi í byrjun nóv. Nei Fóðraður á há
G 17 Á móalandi f okt. Já Saltsteinn með Se
G 18 Á móalandi f okt. Já Saltsteinn með Se, en komst lítið í hann
H 19 Á mýrlendi f byrjun nóv. Nei Engin snefilefni eða sölt
H 20 Á mýrlendi I byrjun nóv. Nei Engin snefilefni eða sölt
H 21 Á mýrlendi í byrjun nóv. Nei Engin snefilefni eða sölt
H 22 Á mýrlendi í byrjun nóv. Nei Engin snefilefni eða sölt
H 23 Á mýrlendi [ byrjun nóv. Nei Engin snefilefni eða sölt
FREYR 04 2006