Freyr - 01.04.2006, Síða 35
mjólkar Esben með nákvæmlega 12 tíma
millibili. Fyrri mjaltir hefjast klukkan rúmlega
þrjú á nóttunni og standa til sex um morg-
uninn. Á búinu er tveggja raða mjaltabás
sem tekur tólf kýr hvoru megin. Tekur það
einn mann um tvær klukkustundir að
mjólka allar kýrnar.
Esben hefur búið með kýr í um aldarfjórð-
ung og segir að nythækkunin hafi að jafn-
aði numið 5% á hverju ári þann tíma. Hann
telur mikilvægt að menn hugi að umhverf-
ismálum samhliða framleiðslunni enda hafi
jarðaverð í Gamst hækkað umtalsvert hin
síðari ár vegna vaxandi eftirspurnar, nú síð-
ast um 250.000-300.000 kr. á hektara á
síðasta ári. Ársvelta búsins er um 35-40
milljónir fyrir utan styrki. Það er skoðun
bóndans að afnema beri alla styrki til mjólk-
urframleiðslu og bændur komi því að verð-
inu til neytenda með beinum hætti. Telur
hann að hagur bænda muni vænkast tölu-
vert við það.
VINDURINN AUKABÚGREIN
Fyrir nokkrum árum síðan hvatti danska
ríkið bændur til þess að koma sér upp
vindmyllum og lét Esben Kristensen ekki
sitt eftir liggja í þeim efnum. Nam kostn-
aðurinn við uppsetninguna á sínum tíma
einum 100 milljónum kr. Framleiðslugeta
myllunnar eru 1,4 milljónir MW og sagðist
Esben fá greiddar um 4 kr. fyrir hvert kW.
Sagði hann að árlegur kostnaður og inn-
koma héldist nokkurn veginn í hendur og
að framkvæmdin myndi trúlega borga sig
upp árið 2011. Hann taldi þó marga
bændur hafa farið illa út úr þessu uppá-
tæki danska ríkisins, sem lofað hafði
styrkjum, en fellt þé seinna út með einu
pennastriki þegar ný ríkisstjórn tók við
völdum.
KLUKKUTl'MA OG KORTER
AÐ MJÓLKA 210 KÝR
Bóndinn Allan Simonsen á Kærgárden var
einnig sóttur heim. Hann tók í notkun
legubásafjós fyrir 300 kýr fyrir um tveimur
árum og notast hann við mjaltahringekju
sem tekur 40 kýr í einu. Framleiðsluréttur-
inn er 1,8 milljónir lítra á ári og mjólkar
bóndinn á Kærgárd einar 210 kýr. Meðal-
nytin er 9.000 lítrar sem stendur og er
stefnan tekin á það að auka meðalnytina
um rúm 10% og þar með framleiðslurétt-
inn upp í 2,5 milljónir lítra. Við þetta bú
eru þrjú ársverk en það tekur tvo menn
einungis klukkutíma og fimmtán mtnútur
að mjólka þessar 210 kýr. Um 70 kálfar eru
á mjólkurfóðrun hverju sinni. Það vakti at-
hygli gestanna að í fjósinu er svokallaður
keðjufóðurgangur sem gefur ferskt heil-
fóður átta sinnum á sólarhring.
Mjaltahringekja sem tekur 48 geitur í einu á búinu Stenalt Gods.
Ljósm. Eyjólfur Ingvi Bjarnason
iin
r ÆgP
1 þy* '•rtw -
tjvr i 1
rt IIJH .4.-1
Nimá
fmtij)
Maríus Halldórsson vígreifur á sáðvél í sýningarsalnum. Ljósm. Einar Kári Magnússon
ÞRÍR MJALTAÞJÓNAR FYRIR 150 KÝR
Hópurinn heimsótti líka Skovgárd en þar er
nýtt, alsjálfvirkt 240 kúa fjós sem tekið var
í notkun árið 2004. Fjósinu er skipt upp í
fjögur hólf. Geldkúnum er haldið frá í einu
hólfanna og eru nú 150 mjólkandi. Bónd-
inn getur þó ekki fullnýtt fjósið vegna
vöntunar á svokailaðri umhverfissamþykkt,
en hann þarf leyfi allra íbúa sem búa í 300
metra radíus kringum fjósið. Við mjaltir
notast bóndinn við þrjá Galaxy-mjalta-
þjóna frá SAC. Sem stendur eru 2,7 mjalt-
ir á hverja kú á dag og meðalnyt hverrar
kýr um 10.000 lítrar.
Skovgárd-jörðin telur 220 ha og skiptist
ræktin nokkurn veginn jafnt i gras-, maís-
og kornrækt. Bóndinn kaupir alla vinnu við
jarðvinnslu og heyöflun af verktökum.
Fóðrið geymir hann í opnum stæðum úti
og hefur hann pláss fyrir eina milljón FEm,
sem er rífleg ársnotkun búsins. Við fóðrun-
ina notar hann heilfóðurvagn.
Þó megintilgangur þessa ferðalags bú-
fræðinemanna hafi verið að kynna sér það
fjölbreytta úrval véla og tækjabúnaðar sem
sjá mátti á Agromek 2006, þá skilja heim-
sóknirnar á Jótlandsbæina óneitanlega
mikið eftir sig því sjón er sögu ríkari.
Næsta Agromek-sýning verður haldin dag-
ana 16. til 20. janúar að ári í Herning í
Danmörku.
FREYR 04 2006
31