Fréttablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 2
Veður
Norðanátt og él um norðanvert
landið í dag, en yfirleitt léttskýjað
syðra. Frost 0 til 7 stig, kaldast inn til
landsins. sjá síðu 48
Beðið eftir fjárlagafrumvarpi
Það eru fleiri en Stjörnustríðsaðdáendur sem hafa þurft að bíða undanfarna daga. Í gær fékk stjórnarandstaðan kynningu á fjárlagafrumvarpi
hinnar nýju ríkisstjórnar. Fyrsta umræða um frumvarpið fer fram á föstudag í þinginu. Allnokkrir þingmenn voru saman komnir í gær og biðu eftir
kynningunni þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Frumvarpið verður kynnt á blaðamannafundi klukkan 9 í dag. Fréttablaðið/anton brink
GRAN CANARIA
16. janúar í 14 nætur
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
102.995
m/allt innifalið
LögregLumáL Lögreglan á Vest-
fjörðum verst allra fregna varðandi
eldsupptök þegar útgerðarhúsnæði
Hraðfrystihúss Gunnvarar á Ísafirði
brann.
Verið er að skoða vísbendingar
sem fundust á vettvangi og vinna
úr tæknimálum. Of snemmt er að
segja til um eldsupptök, en vonandi
verði hægt að segja til um þau fyrir
lok vikunnar.
Útgerðarhúsnæðið brann til
kaldra kola síðastliðið föstudags-
kvöld, en slökkviliðinu tókst með
faglegum vinnubrögðum að bjarga
nærliggjandi húsum, meðal annars
Rauða húsinu svokallaða, gömlu
timburhúsi sem stendur mjög nærri
byggingunni sem brann. – aig
Of snemmt að
segja til um
eldsupptök
myndList Glænýtt málverk Þránd-
ar Þórarinssonar af Ikea-geitinni
alelda hefur vakið athygli enda
vantar ekkert upp á dramatíkina
þar sem heiðnar vísanir og demón-
ísk áhrif frá sjálfum Francisco de
Goya dansa í bálinu.
„Ég fékk eiginlega bara þessa
vitrun, að ég yrði að mála jólageit-
ina í björtu báli,“ segir Þrándur um
verkið sem hann vann mjög hratt.
„Ég vildi koma henni út fyrir jólin.“
Enda ekki eftir neinu að bíða þegar
Ikea-geitin er annars vegar þar sem
segja má að hefð sé komin fyrir því
að kveikja í henni fyrir jól.
Þórarinn Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri Ikea, er yfir sig hrif-
inn af málverkinu og segist endilega
vilja eignast það fyrir hönd Ikea.
„Mér finnst þetta frábærlega
flott og ég væri til í að eignast þessa
mynd og gefa henni heiðurssess á
skrifstofunni minni. Ég gleðst yfir
að alvöru listamaður sýni þessu
áhuga,“ segir Þórarinn. „Hún er með
horn, eins og hún komi úr neðra, en
annars eru ansi mikil líkindi með
henni og geitinni okkar,“ segir hann,
býsna glöggur á myndmál Þrándar.
„Það er eitthvað díabólískt og
heiðið við að kveikja í geit og ég
velti fyrir mér hvernig ég gæti undir-
strikað það,“ segir listamaðurinn
sem sótti í smiðju Goya en horn
geitarinnar minna mjög á geitur í
þekktum nornamyndum þess mikla
meistara.
Þótt Þórarinn hrífist af málverk-
inu vonast hann til þess að Ikea-
geitin fái að standa í friði þetta árið.
„Það er þegar búið að sýna henni
nokkur tilræði og nýlega voru þrír
drengir stöðvaðir áður en þeim
Ikea-geitin stendur enn
en brennur á málverki
Ikea-geitin hefur öðlast sess í þjóðarsálinni og þá helst í ljósum logum. Hún
stendur þó enn keik. Framkvæmdastjóri Ikea vonar að að hún lifi aðventuna
þótt Þrándur Þórarinsson myndlistarmaður hafi kveikt í geitinni á striga.
Sjáið geitina í listrænum logum.
„ég fékk eiginlega bara þessa vitrun, að ég yrði að mála jólageitina í björtu
báli.“ Þrándur Þórarinsson myndlistarmaður. Fréttablaðið/EyÞór
tókst að kveikja í henni. Eitthvað
hefur verið talað um auglýsingagildi
þess að hún brenni en það er ekki
það sem við viljum.“
Þórarinn segir geitina aldrei hafa
verið jafn vel vaktaða. „Við erum
með mann í bíl við hliðina á henni
allar nætur, umhverfis hana er raf-
magnsgirðing með gaddavírum og
myndavélum er beint að henni. Við
kostum miklu til til þess að koma í
veg fyrir þetta en ef brotaviljinn er
nógu einbeittur getur það reynst
erfitt,“ segir Þórarinn og nefnir
sem dæmi að hann hafi heyrt hug-
myndir um að nota dróna til þess að
hella yfir hana bensíni og kveikja í.
„Einu sinni brann hún á Þor-
láksmessu þannig að hún er ekki
sloppin.“
thorarinn@frettabladid.is
stjórnmáL „Það verður ekki hægt
að fara í allar þessar framkvæmdir;
Tvöföldun Reykjanesbrautar, Suður-
landsvegar og Vesturlandsvegar, auk
Sundabrautar og Borgarlínu allt á
sama tíma og við erum að byggja
tíu þúsund íbúðir í Reykjavík, Það
hefur verið reynt áður og er útópía,“
segir Sigurður Ingi Jóhannsson, ráð-
herra samgöngumála. Hann segir
að byggja þurfi á forgangsröðun og
langtímaáætlun þar sem horft verði
til alls landsins.
Ný samgönguáætlun bæði til fjög-
urra ára og tólf ára verð-
ur afgreidd á Alþingi í
vetur. Ráðherra segir
hana þurfa að vera í
samræmi við þá fjár-
málaáætlun sem
lögð verði fram
á svipuðum
tíma. – aá
Ráðherra slær
á væntingar
Sigurður
ingi Jó-
hannsson
KirKjumáL „Það má auðvitað kalla
það klúður þegar farið er af stað
með svo mikilvægt mál eins og
kjör biskups í kirkjunni og stöðva
þarf kosningaferlið vegna þess að
ákveðinn fjöldi kjörmanna var ekki
valinn samkvæmt gildandi reglum,“
segir Kristján Valur Ingólfsson,
vígslubiskup í Skálholti, aðspurður
um stöðuna í Skálholti nú þegar
þarf að kjósa upp á nýtt um nýjan
vígslubiskup.
Kristján Valur varð sjötugur þann
28. október síðastliðinn. „Það hefur
verið venja að biskupar fái bréf um
það úr ráðuneytinu hvenær þeir eru
leystir frá störfum, einnig þeir sem
verða sjötugir í embætti. Ég hef
ekki fengið slíkt bréf og sit hér því
þangað til,“ segir Kristján Valur, sem
mun væntanlega gegna embætti
vígslubiskups fram á Skálholtshátíð
næsta sumar þegar nýr vígslubiskup
verður settur í embætti. – mhh
Skálholtsmálið
algjört klúður
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t u d A g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
C
-2
3
6
4
1
E
7
C
-2
2
2
8
1
E
7
C
-2
0
E
C
1
E
7
C
-1
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K