Fréttablaðið - 14.12.2017, Síða 16
Samfélag „Ég get ekkert farið, ég hef
engan samastað, enga peninga til að
leigja mér eitt né neitt. Ég væri ekki
hérna ef ég gæti verið annars stað-
ar,“ segir Sigurbjörg Hlöðversdóttir,
öryrki og íbúi í Hátúni 10, húsnæði
Brynju hússjóðs Öryrkjabandalags
Íslands, sem í gær barst bréf frá lög-
fræðistofu þar sem henni er hótað
útburði.
Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega
um mál Sigurbjargar að undan-
förnu, en leigusamningur hennar
var ekki endurnýjaður þar sem hún
hafði gerst brotleg við húsreglur
um dýrahald. Sigurbjörg býr í íbúð
sinni í Hátúni ásamt pomeranian-
hundinum Hrolli sem hefur reynst
eigandanum mikilvægur félags-
skapur í gegnum tíðina. Upphaflega
bar Sigurbjörgu að skila íbúðinni 1.
desember síðastliðinn. Hún kærði
ákvörðun Brynju til kærunefndar
húsnæðismála í velferðarráðuneyt-
inu og hélt hún hefði keypt sér tíma
meðan málið væri til meðferðar.
Annað kom á daginn í gær þegar
hún var heimsótt af fulltrúa Lög-
fræðistofu Reykjavíkur sem afhenti
henni ómerkt umslag. Í því var að
finna áskorun, dagsetta 4. desem-
ber, um að hún tæmi íbúðina nú
þegar og skili lyklunum til Brynju.
Í bréfinu er henni hótað útburði,
en þar segir:
„Verði ekki orðið við því innan 3ja
daga frá birtingu áskorunar þessarar
mun verða farið fram á aðfarar-
heimild hjá Héraðsdómi Reykja-
víkur og þess síðan krafist að þú
verðir borin út úr húsnæðinu með
atbeina sýslumannsins á höfuð-
borgarsvæðinu.“
Sigurbjörg er hvumsa yfir þessu
útspili og furðar sig á að hægt sé að
fara út í aðgerðir sem þessar áður en
úrskurður kærunefndar liggur fyrir.
„En ég er ekki lögfræðingur, ég er
bara öryrki hérna. Ég er að brjóta
húsreglur, engin spurning um það,
en ég er á því að Brynja sé að brjóta
lög með þessari mismunun,“ segir
hún og vísar þar í að fjöldi íbúa í
Hátúni haldi gæludýr. Hún kveðst
ekki ætla að verða við áskoruninni.
„Ég verð bara að sitja og bíða.
Leyfa þeim að bera mig út, hve-
nær sem það verður. 24. desember
kannski.“ mikael@frettabladid.is
Hóta að bera öryrkja og hund út fyrir jól
Sigurbjörgu Hlöðversdóttur barst bréf frá lögfræðistofu í gær þar sem skorað er á hana að tæma íbúð sína í Hátúni 10. Fær þrjá daga til að
skila henni af sér, annars verði hún borin út af sýslumanni. Hún segist ekki hafa í önnur hús að venda og hyggst ekki verða við beiðninni.
Bréfið sem barst.
Sigurbjörg segir að hún og hundurinn Hrollur fari hvergi. Hússjóður ÖBÍ verði að láta bera hana út. FréttaBlaðið/VilHelm
lya.is
· Rakakrem 100 g
· Handáburður 100 ml
· Andlitshreinsir 50 ml
· Andlitskrem 20 g
Án parabena, ilm– og litarefna
Milt og mýkjandi
í gjafaöskju
SkipulagSmál Bæjarstjórn Kópa-
vogsbæjar hefur samþykkt breyt-
ingar á aðal- og deiliskipulagi sem
heimilar að byggðar verði allt að
140 íbúðir á Nónhæð, skammt frá
Smáralind. Um er að ræða þrjár
lóðir undir fjölbýlishús á tveimur
til fimm hæðum. Á fundinum
var samþykkt tillaga að breyttu
deiliskipulagi vegna athuga-
semda sem bárust í ferli máls-
ins en fréttir voru sagðar af því
fyrr á árinu að íbúasamtökin
Betri Nónhæð lögðust gegn
byggðinni.
Breytingarn-
ar sem gerðar
voru og sam-
þykktar lúta
aðallega að
h æ ð f j ö l -
býlishúsanna. Þær kveða á um að
hámarkshæð húsanna lækki um
3,6 til 4,6 metra, eða eina hæð, frá
fyrri tillögu. Fjölbýlishúsin verða að
hámarki fjórar hæðir, en ekki fimm,
eins og áður stóð til.
Reiturinn afmarkast af
Arnarnesvegi til suðurs,
Smárahvammsvegi til
austurs, suðurmörkum
lóða við Foldasmára 2-22
til norðurs og Arnarsmára
32 og 34 til vesturs. Áætlað
byggingamagn ofanjarðar er
allt að 15.600 fermetrar. – bg
140 íbúðir á Nónhæð
Ármann Kr. Ólafsson
bæjarstjóri. Frétta-
Blaðið/SteFÁn
Áætlað byggingamagn ofanjarðar er allt að 15.600 fermetrar.
1 4 . d e S e m b e r 2 0 1 7 f i m m T u d a g u r16 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
C
-1
E
7
4
1
E
7
C
-1
D
3
8
1
E
7
C
-1
B
F
C
1
E
7
C
-1
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K