Fréttablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 38
Að undanförnu hefur staða og þróun íslenska heilbrigðis-kerfisins verið mikið rædd
í fjölmiðlum. Það er ánægjuleg
nýlunda, en í gegnum áratugi hafa
fjölmiðlar sýnt heilbrigðiskerfinu
lítinn áhuga, og þá einna helst ef
hægt var að benda á handvömm
lækna.
Fámenn íslensk stjórnsýsla hefur
ekki haft úr að spila nægilegri þekk-
ingu til að móta framtíðarsýn, og
því leitað út fyrir landsteinana að
heilbrigðiskerfum til að kópíera.
Stjórnsýsla flestra landa reynir hins
vegar eftir bestu getu að draga upp
eins konar glansmynd af sjálfri sér,
birta jákvæða tölfræði o.s.frv. og nei-
kvæðum hliðum stjórnsýslunnar
er erfitt að henda reiður á. Þegar
kemur að heilbrigðiskerfum ann-
arra landa hafa Íslendingar þá sér-
stöðu að flestir íslenskir læknar hafa
unnið í þessum kerfum, og kynnst
þeim í raun, kostum og göllum,
hafa því að segja má „inside inform-
ation“.
Vandinn er hins vegar sá að
íslensk stjórnsýsla virðist veigra sér
við að leita til lækna, og eiga í hug-
myndafræðilegum samskiptum við
þá, eða þiggja þeirra ráð. Læknar
eru gjarnan afgreiddir sem hug-
sjónamenn um sjálfa sig, en ekki
hina sjúku. Aðrir telja sig vita betur
hvað sjúklingunum er fyrir bestu,
og á síðustu áratugum hefur kerfis-
bundið verið unnið að því að draga
úr áhrifum lækna í hinum svo-
kölluðu „velferðarsamfélögum“. Á
sama tíma og áhrif lækna hafa farið
minnkandi, hefur kostnaður heil-
brigðiskerfa farið hratt vaxandi.
Samt er enn til fólk sem trúir því að
læknastéttin sé aðalorsök vaxandi
kostnaðar.
Stofulæknaplágan
Miklar áhyggjur af tilvist stofulækna
hafa komið fram hjá Landlækni,
stjórnsýslu og ýmsum stjórnmála-
mönnum, sérstaklega á vinstri kant-
inum, því vinstri menn hafa alltaf
viljað skilgreina lækna sem hluta
af auðvaldinu, og verið algjörlega
blindir fyrir því að flestir læknar eru
komnir af alþýðunni, og hafa lifað
og starfað fyrir alþýðuna, má segja
dag og nótt. Sjálfstætt starfandi
læknar hafa orðið einhvers konar
ógn við „velferðarkerfið“, auðvald,
sem stýrist bara af græðgi, og hefur
engan annan ávinning af því að
starfa sjálfstætt en meiri peninga.
Betri þjónusta, betri tími og
aðstaða til að nýta þekkingu, betri
afköst, betri starfsaðstaða, betra
húsnæði, betri vinnustaðamórall,
meira sjálfstæði, möguleikar á
framþróun og nýsköpun, minni
ytri truflanir, minni afskiptasemi
læknislærðra og ólæknislærðra
yfirmanna, greiðslur fyrir unna yfir-
vinnu; allt þetta er látið sem vind
um eyru þjóta og hangið á græðgis-
kenningunni. Eins og í opinbera
kerfinu, eru það aðeins þeir læknar
sem vinna eins og þrælar, sem þéna
vel í þessu kerfi.
Bandaríska grýlan
Gagnrýnendum sjálfstætt starf-
andi lækna er nokkur vorkunn, þar
sem bandaríska heilbrigðiskerfið
hræðir. En bandaríska kerfið hræðir
ekki bara Ögmund Jónasson, og
aðra góða stjórnmálamenn, heldur
hræðir það gjörvalla íslenska lækna-
stétt, aldrei hef ég heyrt íslenskan
lækni mæra það kerfi, eða hvetja
til að það kerfi verði tekið upp hér-
lendis, og hafa þó margir okkar lært
og starfað í því kerfi.
Bandaríska kerfið er bæði einka-
vætt og einkarekið. Einkavætt vegna
þess að sjúklingurinn þarf sjálfur
að tryggja sig fyrir heilsuáföllum og
greiðir þannig sjálfur alla sína heil-
brigðisþjónustu, sem síðan er keypt
á uppsettu verði af einkareknum
heilbrigðistofnunum. Kostnaður-
inn í þessu kerfi hefur náð miklum
hæðum, en við skulum ekki gleyma
því að „velferðarlöndin“ hafa getað
sparað sér mikið fé til rannsókna
með því að gerast afætur af gríðar-
legri rannsóknastarfsemi banda-
rískrar læknastéttar, lyfjafyrirtækja
og fleiri.
Samvinna við lækna
Læknastéttin varð til fyrir þúsund-
um ára, fyrst sem sjálfstætt starfandi
læknar, sem ráku eigin læknastofur,
og samvinna við „velferðarkerfin“
er því nýlunda í sögulegu sam-
hengi, enda eru velferðarkerfin
ekki gömul. Sú samvinna lækna við
stjórnvöld um uppbyggingu vel-
ferðarkerfa hefur almennt reynst
bæði sjúklingum og læknum vel.
Á Íslandi hefur þróast óvenju
sjúklingavænt heilbrigðiskerfi,
þar sem sjúklingar hafa getað
valið annars vegar um góða opin-
bera heilbrigðisþjónustu, eða
góða þjónustu sjálfstætt starfandi
lækna. Fjármagnið hefur, fram að
þessu, fylgt sjúklingnum, (og já;
fjármagnið fylgir sjúklingnum, ekki
lækninum, þó annað sé sífellt gefið
í skyn). Slíkir valkostir eru ekki
sambærilegir í velferðarkerfum
Norðurlanda, þar sem sjálfstætt
starfandi sérfræðingar eru allt of
fáir til að almenningur geti notið
þeirra. Það kerfisbundna fjár-
svelti, sem Landspítali og Heilsu-
gæslan hafa búið við í áratugi, er
uppskrift að hnignandi opinberu
heilbrigðiskerfi. Að halda því fram
að sjálfstætt starfandi stofulæknar
séu aðalvandi heilbrigðiskerfisins,
er skammsýni, sem hvorki mun
gagnast hinum sjúku né íslensku
þjóðinni almennt.
Er íslenska heilbrigðiskerfið
of sjúklingavænt?
Einar
Guðmundsson
geðlæknir
Stjórnmálamönnum er mis-jafnlega vel til lista lagt að vera víðsýnir og einbeittir, rétt eins
og okkur mannfólki almennt. Færa
má rök fyrir því að við séum frekar
klaufsk í þessum efnum. Greinar-
höfundur er þess þar af leiðandi
fullviss að umræddir eiginleikar
teljast til mannkosta sem eru mik-
ilsverðir.
Það bar svo við fyrir skemmstu
í kosningum til Alþingis að kjós-
endur dreifðu atkvæðum sínum
með eftirtektarverðum hætti.
Margir óskuðu sér annarrar niður-
stöðu, á meðan sumum varð tíðrætt
um að úrslit kosninga væru engan
veginn sanngjörn og enn aðrir vona
nú heitt og innilega að þetta lagist
allt saman í næstu kosningum.
Okkur hættir því öllum til að líta
fram hjá því hvernig hlutirnir eru
í raun og veru, en einblína þess í
stað á hvernig við óskum, vonum
eða teljum að hlutirnir eigi að vera.
Það er ekki vænlegt til árangurs,
það hefur sýnt sig svo ekki verður
um villst.
Greinarhöfundur er ekki í nokkr-
um vafa um að í nýafstöðnu ferli
við myndun nýrrar ríkisstjórnar
hafi ráðið úrslitum að tekist var á
við stöðuna eins og hún blasti við
að loknum kosningum, og með
opnum huga. Í umræddu ferli náðu
í það minnsta tveir stjórnmála-
menn að lyfta sér á hærra plan með
eftirtektarverðum hætti. Katrín
Jakobsdóttir, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
ásamt Svandísi Svavarsdóttur,
þingmanni hreyfingarinnar, sem
nú hafa tekið við hlutverkum for-
sætis- og heilbrigðisráðherra,
sýndu víðsýni, einbeitingu og hóg-
værð í aðkomu sinni að myndun
nýrrar ríkisstjórnar. Fyrir þetta ber
að þakka.
Af umræddri atburðarás má jafn-
framt draga feiknamikinn lærdóm
sem greinarhöfundur er sann-
færður um að verði gerð skil í ann-
álum þegar frá líður, þegar horft
er til samsetningar nýrrar stjórnar
og sáttmála sem nú liggur fyrir að
starfa eftir. Blað hefur verið brotið
í íslenskri stjórnmálasögu.
Víðsýni og einbeiting í stjórnmálum – blað hefur verið brotið
Gunnar
Árnason
félagi í VG
Í umræddu ferli náðu í það
minnsta tveir stjórnmála-
menn að lyfta sér á hærra
plan með eftirtektarverðum
hætti.
Flestir eru sammála um að vilja fá hvít jól. Brún eða rauð jól eru ekki á óskalistanum. En hvað
með græn jól? Græni liturinn er oft
tengdur við náttúruna, umhverfis-
vitund og vistvæna hegðun.
Við viljum fá græna litinn inn í
híbýlin okkar: Grænt jólatré, grænar
greinar, grænar servíettur og græn-
an gjafapappír. Til að fá betri áhrif í
þetta er rauði liturinn vinsæll með
þessu. Rautt og grænt eru andstæðir
litir sem gera hvort annað meira
áberandi. Ekki gleyma því að amer-
ískir jólasveinar eru í rauðum fötum
og Rúdólf er með rautt nef. Íslenskir
jólasveinar eru aftur á móti í sauða-
litum enda voru þeir bláfátækir.
María og Jósef höfðu ekki heldur
efni á rauðum fatnaði þegar þau
voru að leita sér gistingar. María var
þá að því komin að ala barn þeirra.
Rauði liturinn hefur lengi verið litur
hefðarfólks.
En að halda græn jól, hvað þýðir
það?
Við erum rík þjóð sem þykist vera
á „bullandi góðæri“. Neyslan vex og
að sama skapi eykst það sem við
hendum í ruslið. Fullt af góðum og
nothæfum hlutum fer í Sorpu vegna
þess að það er hægt að fá eitthvað
nýrra og flottara. En „græn hugsun“
byrjar ekki á því að flokka og setja
í réttan gám. Það byrjar á því að
kaupa minna og nýta hlutina betur
þannig að sorpið minnkar. Við
skulum líka vera meðvituð um að
margar vörur sem við kaupum eru
framleiddar í þróunarlöndum við
ómögulegar aðstæður. Þegar hag-
vöxturinn minnkar með minna
kaupæði þá er það væntanlega ekki
hið versta mál. Þetta mun koma
næstu kynslóðum að gagni því
afkomendur okkar munu erfa jörð-
ina eins og við skiljum hana eftir.
Til hvers í ósköpunum „þurfum“
við að gefa jólagjafir, kaupa kannski
eitthvert dót sem viðtakandi fer
með strax eftir hátíðirnar og reynir
að skipta? Flest okkar eiga allt eða
næstum allt. Auðvitað er gaman að
gleðja börnin því þeim finnst gaman
að taka upp pakka. En þegar krakkar
á aðfangadagskvöld rífa upp pakka
eftir pakka og líta varla við því sem
var í þeim þá er þetta ekki lengur
það sem við viljum, þá er það vottur
um græðgi en ekki gleði.
Persónulegar gjafir, vel úthugs-
aðar og gefnar með ást hafa marg-
falt meira vægi. Og vel á minnst:
Hægt er að gefa upplifun, til dæmis
miða á tónleika eða leikhús, sam-
eiginlega helgarferð, skemmtilegan
kvöldmat, heimsókn á safn, dvöl í
frístundahúsi, eitthvað sem menn
geta gert saman sér til ánægju.
Gefum hvert öðru tíma, tíminn er
eitt það dýrmætasta sem við höfum.
Svo er það val á jólatré. Margar
verslanir bjóða upp á innflutt jóla-
tré, yfirleitt normannsþin á mjög
lágu verði. Þessi tré eru ræktuð á
ökrum og eiturúðun til að drepa
skaðvalda er mjög algeng. Kolefnis-
spor í sölu þessara trjáa er margfalt
meira en hjá íslenskum trjám því
flutningur langar leiðir hingað telur
með. Þeir sem hugsa um „græn jól“
ættu að fara í skógræktarstöðvar og
kaupa íslensk tré.
Eitt í lokin: Umbúðabrjálæðið er
skelfilegt hér á landi. Við kaupum
vörur í miklum umbúðum. Þær er
alla vega gott að setja í réttan gám
til endurvinnslu. Höfum í huga að
glansandi jólagjafapappír er oft ekki
endurvinnanlegur. Hvernig væri að
nota maskínupappír sem maður
skreytir eftir sínu höfði? Margir
vita ekki einu sinni um listahæfi-
leika sína.
Gleðileg græn og neyslugrönn jól.
Græn jól
Úrsúla
Jünemann
kennari á
eftirlaunum
Gefum hvert öðru tíma,
tíminn er eitt það dýrmæt-
asta sem við höfum.
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r38 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
C
-8
6
2
4
1
E
7
C
-8
4
E
8
1
E
7
C
-8
3
A
C
1
E
7
C
-8
2
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K