Fréttablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 48
Hinn 19 ára gamli Arnór Hermannsson ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur og
hefur spilað körfubolta með KR
síðan hann man eftir sér. Utan
körfuboltans eru tíska, tónlist og
aðrar íþróttir helstu áhugamál
Arnórs sem útskrifast frá Verzlunar
skóla Íslands næsta vor.
Hann lýsir fatastíl sínum sem
mjög léttum og þægilegum. „Á
venjulegum degi er ég mikið að
vinna með gallabuxur og þægilega
peysu eða jakka. Ég á endalaust
mikið af jökkum sem eru allir mjög
ólíkir. Mér finnst líka mjög gaman
að klæða mig upp á og henda mér
í skyrtu og blazerjakka. Samt líður
mér alltaf best í töff joggingbuxum
og bol. Skórnir eru aftur á móti
alltaf aðalatriðið hjá mér.“
Markmið vetrarins hjá Arnóri er
að vinna fimmta Íslandsmeistara
titilinn í röð með KR, halda áfram
að bæta leik sinn og sýna hvað í
honum býr. „Næsta sumar tekur
síðan við skemmtilegt og krefjandi
verkefni með U20 ára landsliðinu
sem maður fer auðvitað í af fullum
krafti.“
Lengri tíma markmið snúa að því
að taka körfuboltann eins langt og
hann getur. „Ég von
ast til þess að geta
farið til Bandaríkj
anna á skólastyrk til
að spila körfubolta.
Annars er framtíðin
svolítið óljós og ég
hef voða lítið pælt
í henni. Aðalatriðið
er bara að vera
jákvæður og njóta.“
Áttu þér tísku-
fyrirmynd? Ég mundi
segja að pabbi og
bróðir minn hafi haft
mestu áhrifin á klæða
burð minn. Við höfum
allir mög svipaðan stíl og
fyrir utan körfuboltann
er tíska örugglega vin
sælasta umræðuefnið á
heimilinu. Það er auðvelt
að líta vel út þegar maður
er með tvo fagmenn í
faginu í fjölskyldunni.
Hvernig hefur tísku-
áhuginn þróast? Það má
segja að tískuáhuginn sé í
blóðinu. Pabbi minn hefur
bæði verið verslunar
stjóri hjá Sævari Karli og í
Boss búðinni í Kringlunni.
Tískuáhuginn hefur aukist
eftir því sem ég verð eldri
og sé meira um mig
sjálfur. Íþróttafötin
voru fyrirferðarmeiri
þegar ég var yngri en núna er
skemmtilegra að klæða sig upp á.
Hvernig fylgist þú með tískunni?
Aðallega í gegnum Instagram en
þar fylgi ég mörgum fatasíðum og
einstaklingum með nettan stíl. Svo
nota ég einnig öpp í símanum eins
og ASOS og Urban Outfitters.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Hérna heima kaupi ég þau aðal
lega í Húrra Reykjavík. Auk þess
á ég nokkra flíkur frá 66°Norður.
Flestöll fötin mín hef ég þó keypt í
útlöndum í búðum eins og Urban
Outfitters, Topman og Zöru.
Áttu þér uppáhaldsverslanir? Ég
held mikið upp á Húrra Reykjavík
og hef keypt nokkrar flíkur þar, þó
aðallega nokkur skópör. Einnig
held ég mikið upp á 66°Norður.
Erlendis finnst mér Urban Outfitt
ers og Topman standa upp úr,
þær eru báðar alveg hrikalega
flottar.
Áttu þér uppáhaldsflík? Ég
á enga eina uppáhaldsflík en
er mikill áhugamaður um skó.
Uppáhaldsskórnir mínir eru
Air Jordan 1 North Carolina
sem ég nota mikið
hversdagslega.
Bestu og verstu
fatakaup?
Bestu kaupin
eru örugglega
LibertineLibert
ine buxurnar
mínar sem ég
keypti í Húrra
Reykjavík.
Ég nota þær
bæði hvers
dagslega og
við fínni tilefni.
Verstu kaupin eru
hins vegar Jordan
skór sem ég pantaði
mér á Ali Express á
netinu þegar sú síða
var nýbyrjuð. Skórnir
komu síðan tveimur
númerum minni en ég
pantaði þá.
Notar þú einhverja
fylgihluti? Mér finnst
mjög gaman að kaupa
flott úr og armbönd en
læt hringa og hálsmen
alveg í friði.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Falleg ljós sem lýsa upp skammdegið
Veggljós svart eða hvítt
kr. 7.990,-
Bankalampi
kr. 16.990,-
Lofljós grind m.peru
kr. 18.900,-
Veggljós
kr. 7.450,-
Frostrós
kr. 1.590,-
Lofljós gler m.peru
kr. 19.900,-
Skrifborðslampi
kr. 3.495,-
leiðiskross
kr. 3.700,-
Skrifborðslampi
kr. 11.900,-
Skrifborðslampi
kr. 3.495,-
Retro ljós m.peru
kr. 4.990,-
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Flott jólaföt, fyrir flottar konur
Hér klæðist
Arnór Nike
vesti, brúnni
hettupeysu úr
Zöru, rifnum
gallabuxum úr
Urban Outfitt
ers og brúnum
Nike skóm úr
Húrra Reykjavík.
MYNDIR/ANTON
BRINK
Skyrtan og hvíti bolurinn
eru úr Gallerí 17, svörtu
LibertineLibertine bux
urnar úr Húrra Reykja
vík og Adidas skórnir
úr Footlocker.
Skórnir alltaf aðalatriðið
Arnór Hermanns-
son býr svo vel
að eiga tvo fag-
menn úr tískunni
í fjölskyldunni
sem báðir hafa
haft mikil áhrif á
klæðaburð hans.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D e S e M B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-7
C
4
4
1
E
7
C
-7
B
0
8
1
E
7
C
-7
9
C
C
1
E
7
C
-7
8
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K