Fréttablaðið - 14.12.2017, Síða 70

Fréttablaðið - 14.12.2017, Síða 70
Bækur (lang)Elstur í bekknum HHHHH Bergrún Íris Sævarsdóttir Útgefandi: Bókabeitan Prentun: Prentmiðlun, Lettlandi Síðufjöldi: 78 Kápa: Villi Warén Nú er Bergrún Íris Sævarsdóttir búin að teikna og skrifa það margar bækur að það er við hæfi að segja: Það er ávallt gleðiefni þegar Bergrún Íris sendir frá sér nýja bóka. Hér er engu logið, enda er bókin (lang)Elstur í bekknum mjög skemmtileg og afskaplega falleg. Hér segir af Eyju, 6 ára telpu sem stendur frammi fyrir því að þurfa að hefja grunnskólagöngu sína í glænýju hverfi og glænýjum skóla þar sem hún þekkir ekki nokkurn mann. Hún dauðkvíðir fyrsta skóladeginum og telur sig hafa klúðrað öllum möguleikum um einhver vinsældastig þegar hún verður þess valdandi að þrjár stelpur í bekknum rennblotna og hlaupa hrínandi inn í skóla. Vina- laus og vondauf eygir hún þó eitt ljós í myrkrinu: Sessunaut sinn, hann Rögnvald, en sá er enginn venjulegur skólastrákur. Rögnvald- ur hefur setið eftir í 1. bekk árum og áratugum saman því hann neitar að læra að lesa. Þrátt fyrir ákveðna byrjunarörðugleika verður þeim vel til vina og gera með sér samning sem felst í því að Eyja eignist fleiri vini í bekknum og Rögnvaldur læri stafina. Bæði þurfa þau að takast á við og yfirstíga, að því er þeim þykir, gríðarlegar hindranir en hafa sigur að lokum, með hjálp hvort annars. Bókin sjálf er mjög læsileg, bæði hvað varðar uppsetningu og letur- gerð. Fallegar myndir Bergrúnar Írisar lífga að auki upp á síðurnar og sérlega skemmtileg er dökk grá og svört mynd á heilli opnu framar- lega í bókinni sem sýnir vel hversu erfitt er fyrir Eyju að mæta í skólann fyrsta skóladaginn. Textinn er blátt áfram og einfaldur en einstaka „erfiðari“ orð lífga upp á síðurnar, auðkennd með breiðu letri. (lang) Elstur í bekknum talar beint inn í reynsluheim barna á yngsta stigi grunnskólans, bæði gleði þeirra og sorgir, og hentar örugglega flestum krökkum á aldrinum 6-10 ára. Helga Birgisdóttir Niðurstaða: Þrælskemmtileg krakkasaga, uppfull af góðum húmor og fallegum boðskap. (lang)Skemmtilegasta bókin Bækur Formaður húsfélagsins HHHHH Friðgeir Einarsson Útgefandi: Benedikt Prentun: Bookwell digital, Finnlandi Síðufjöldi: 205 Kápa: Ólafur Unnar Kristjánsson Lífið er eitthvað sem gerist bara. Ekkert sem þú planar eða stjórnar. Það bara gerist og Frið- geir Einarsson, höfundur skáld- sögunnar Formaður húsfélagsins, virðist vera meðvitaður um þessi einföldu sannindi. Formaður hús- félagsins er líka um margt eins og lífið, tiltölulega stórviðburða- snautt heldur það bara áfram hversdag eftir hversdag og við per- sónurnar fylgjum með. Formaður húsfélagsins er lát- laus fyrstupersónufrásögn ungs manns sem flytur í íbúð sem hann leigir af systur sinni í fjölbýlishúsi í Reykjavík. Sagan spannar í heild- ina nokkur ár í lífi unga mannsins og ýmislegt drífur á daga hans þó svo hann virðist eiga erfitt með að greina á milli aðalatriða og auka- atriða og frásögnin samkvæmt því mjög hlutlaus. En þessi frásögn er líka laus við alla tilgerð og láta- læti auk þess búa yfir lúmskum og skemmtilegum húmor. Svona eilítið sérstakri sýn á lífið. Þetta er bók sem liggur einhvers staðar á mörkum Seinfeld (a show about nothing) og lífsfrásagna Karls Ove Knausgård. Tvö frábær verk sem bæði fjalla um lífið eins og það er og hvernig því er lifað frá degi til dags og gera lítinn greinamun á því að fá sér te eða eignast barn, þó svo forsendur og útfærsla séu gjörólíkar. „Fólk hlær gjarnan þegar það heyrir eitthvað sem það kannast við úr eigin lífi.“ (Bls. 185) Þetta er ágætis dæmi um athugasemd frá sögumanni og mætti nánast taka þessu sem stefnulýsingu höfundar. Við könnumst flest við þetta líf sem ungi maðurinn lifir og við könnumst við fólkið sem verður á vegi hans í lífinu og sú frásögn er skemmtileg að mörgu leyti. Mörg fyndin atvik verða á vegi sögu- manns sem virðist þó sjálfur vera gjörsneyddur öllu sem kenna má við húmor en það kemur auðvitað ekki að sök fyrir les- andann heldur þvert á móti. Það sem er hvað best við þetta er að sem ungur höf- undur má segja að Friðgeir hafi fundið sinn tón, sína rödd og sinn stíl. Þetta er flatur og hlutlaus stíll sem er laus við alla stæla og þegar best tekst til þá er hann líka bráðfynd- inn. Vandinn er hins vegar að á stundum verður hann eilítið þreytandi. Persónu- sköpunin mætti vera dýpri og mannlýsingar sterkari en það er erfitt að koma slíku að í fyrstupersónufrásögn hjá svo hlutlausri mann- eskju. Finnur því ekki til með persónunum, nema kannski helst þeim sem verður það á að flækjast inn í líf sögumanns, af þeirri einföldu ástæðu að hann hleypir lesandanum lítt nærri sér. Heldur fjar- lægð frá honum frá upp- hafi til enda og forðast alla tilfinningasemi. Formaður húsfélagsins er skrifuð af næmi fyrir umhverfinu og hvers- deginum og þetta er skemmtileg bók. Vandinn er hins vegar að næmi fyrir hinu mannlega lætur lítið á sér kræla og aukapersónur verksins fljóta í gegnum það allt að því and- litslausar og það er eiginlega synd að þessi skemmtilega bók nái ekki að skilja aðeins meira eftir sig. Magnús Guðmundsson Niðurstaða: Skemmtileg og á köflum fyndin lesning sem skilur þó helst til lítið eftir sig. Mitt á milli Seinfeld og Knausgård 1 4 . d E s E m B E r 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r58 m E N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -3 C 1 4 1 E 7 C -3 A D 8 1 E 7 C -3 9 9 C 1 E 7 C -3 8 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.