Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 72

Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 72
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r60 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð KvIKmyndIr Stjörnustríðs-aðdá- endur um allan heim hafa beðið þessa dags í óbærilegri spennu í tvö ár. Star Wars: Episode VIII – The Last Jedi er frumsýnd í dag og heldur áfram þar sem frá var horfið í Episode VII: The Force Awakens 2015. Sjöunda kafla lauk þegar nýja hetjan okkar, Rey, fann loks Loga Geimgengil á afskekktri plánetu þar sem hann dvelur í sjálfskipaðri útlegð eftir að hafa klúðrað Jedi- þjálfun systursonar síns með þeim ósköpum að hann varð öflugasta handbendi myrkraaflanna frá því að afi hans, Svarthöfði, var og hét. Mátturinn er með Rey sem heldur nú áfram að þróa nýfundna hæfi- leika sína með aðstoð Loga sem hefur víst ekki séð annan eins kraft frá því hann missti frænda sinn yfir til hins illa. The Last Jedi er þriðja Stjörnu- stríðsmyndin sem Disney framleiðir eftir að hafa keypt réttinn á gerð myndanna af hugmyndafræðingi Star Wars, George Lucas, fyrir upp- hæð sem nemur fjárlögum íslenska ríkisins í hundraðasta veldi. Eða því sem næst. Lucas hafði þá gert tvo þríleiki um hina brotnu og meðvirku Sky- walker-fjölskyldu. Sá fyrri sem hófst með Star Wars 1977 er enn í hávegum hafður en sá síðari, sem hverfðist um fall ættföðurins, Anak- ins, sem reis upp sem Svarthöfði, olli umtalsverðum vonbrigðum. Síðan Disney tók við hefur hins vegar gleðin ein verið við völd hjá Stjörnustríðsnördum allra landa. Fjölskyldudramanu var ýtt í gang með látum með The Force Awakens, í fyrra kom svo sjálfstæða sagan Star Wars: Rogue One, og nú vindur meginsögunni áfram. The Force Awakens kallaðist svo hátt á við fyrstu myndina frá 1977 að um hálfgildings endurgerð var að ræða frekar en nýtt upphaf. Lucas fylgdi Star Wars eftir með The Empire Strikes Back 1980. Tónninn í þeirri mynd var mun myrkari og hún er almennt og óumdeilt talin besta myndin í bálkinum eins og hann leggur sig. Sömu lögmál virðast gilda um The Last Jedi. Þegar hefur spurst út að í henni magnist drunginn í sögunni og þeir sem hafa séð hana keppast við að ausa hana lofi og fyrir almenna frumsýningu stendur hún í 94% á vefnum Rotten Tomatoes sem tekur saman meðaltal birtra dóma. Semsagt, brakandi fersk. Árið 2017 er, fyrir utan þessa frumsýningu, stórt ár í sögu Star Wars þar sem þann 25. maí voru 40 ár liðin frá frumsýningu fyrstu myndarinnar. Íslendingar máttu þó engjast í forvitni býsna lengi því myndin var ekki frumsýnd í Nýja bíói fyrr en í október 1978. Í millitíðinni fengu íslensk börn að kynnast öllum þeim furðuverum sem birtast í myndinni á límmiðum og myndum í Cocoa Puffs- og Cheer- ios-pökkum. Þegar myndin loksins kom var þeim Loga Geimgengli, Hans Óla, Lilju Ósk prinsessu, Loðni og öllum hinum tekið fagnandi. Hel- stirnið ógurlega, sem er sko ekkert tungl heldur geimstöð, kallaði fram hroll eins og illmennið Svarthöfði. Annar eins skúrkur hafði ekki sést áður. Síðar kom á daginn að undir svartri brynjunni engdist sundur- tætt sál í togstreitu milli góðs og ills. Allar aðalpersónur gamla þrí- leiksins komu fyrst aftur saman í The Force Awakens frá því þeim tókst að gera út af við keisaraveldi hins illa í The Return of the Jedi 1983. Þessara endurfunda hafði verið beðið í rúma þrjá ára- tugi og tilfinningar áhorfenda eru því eðlilega þandar til hins ýtrasta núna þegar gallaða Geim- gengla-fjölskyldan kallar enn á ný hörmungar yfir heila stjörnu- þoku með vandamálum sínum. thorarinn@frettabladid.is Bíó Verkfæralagerinn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæri í miklu úrvali ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. METABO Bútsög KS216 Verðmætaskápar Jeppatjakkur 2.25t 52cm. 16.995 frá 4.995 17.995 Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hringhurðir, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. Símaveski, heyrnartól, snúrur og allt fyrir símann. Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Fjölskyldudrama Geimgenglanna – VIII kafli Loksins komið að frumsýningu áttunda kafla geimóperunnar sem kennd er við Star Wars. Titringurinn í Mættinum áþreifan- legur. Í dag munu milljónir hrópa upp yfir sig af hrifningu og þagna skyndilega í sæluvímu. Eitthvað stórkostlegt hefur gerst. 40 ár Eru Liðin frá fruMSýningu fyrSTu STar WarS Myndar- innar. Myndin var Ekki fruMSýnd á ÍSLandi Í nýja BÍói fyrr En árið 1978. aLLar aðaLpErSónur gaMLa þrÍLEikSinS koMu fyrST afTur SaMan Í ThE forcE aWakEnS. 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 8 8 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -2 8 5 4 1 E 7 C -2 7 1 8 1 E 7 C -2 5 D C 1 E 7 C -2 4 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.