Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 3 0. J Ú N Í 2 0 1 7
Stofnað 1913 156. tölublað 105. árgangur
FINNST ÞAÐ
MANNESKJU-
LEGA VANTA
EIN STÓR
FJÖL-
SKYLDA
LÍFIÐ ER
ELDSNEYTI
SKÖPUNARINNAR
SIRKUS ÍSLANDS 16 HERBIE HANCOCK 78GUÐRÍÐUR B. HELGADÓTTIR 28
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fiskur Verið er að skipta yfir í lax í kvíum.
„Fiskeldið var eitt stórt spurn-
ingarmerki í huga fjárfesta vegna
vandamála í fortíðinni,“ segir Guð-
mundur Gíslason, stjórnarformað-
ur Fiskeldis Austfjarða, í samtali
við Morgunblaðið, en fyrirtækið er
nú að slátra regnbogasilungi og
ætlar að færa sig yfir í laxeldi.
Settar hafa verið upp öflugar
sjókvíar með 850 þúsund laxaseið-
um. Tilkoma fiskeldisins á þátt í að
milda höggið mikla sem brotthvarf
kvóta og fiskvinnslu Vísis var fyrir
Djúpavog. Eru starfsmenn við fisk-
vinnslu og fiskeldi nú orðnir fleiri
en voru við vinnsluna hjá Vísi.
Þá er Fiskeldi Austfjarða tilbúið
til áframhaldandi stækkunar, en
Guðmundur segir það búa yfir mik-
illi þekkingu. »26
Fiskeldi Austfjarða
var bjargvætturinn
í atvinnumálum
Húsnæðismál
» Oddviti Framsóknar vill
skoða tímabundna gámabyggð
fyrir farandverkafólk.
» Formenn velferðarráðs
segja varanlegar lausnir svarið.
Arnar Þór Ingólfsson
Jón Birgir Eiríksson
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
borgarfulltrúi Framsóknar og flug-
vallarvina, segir meirihluta borgar-
stjórnar hafa brugðist í húsnæðis-
málum allt frá 2010. Hún vill skoða
byggingu gámabyggðar fyrir
farandverkafólk og uppbyggingu
fjölda lítilla félagslegra íbúða í út-
hverfum borgarinnar til að bregðast
við vandanum.
Vilja varanlegar lausnir
Ilmi Kristjánsdóttur og Elínu
Oddnýju Sigurðardóttur, formanni
og varaformanni velferðarráðs
Reykjavíkurborgar, hugnast ekki
hugmyndir um gámabyggð sem
bráðabirgðaúrræði. Að sögn Elínar
Oddnýjar er unnið að varanlegri
lausnum á húsnæðisvandanum.
Einstæð móðir í Reykjavík hefur
flutt sex sinnum frá árinu 2008, en
hún fékk þau svör frá borginni að
nær engin von væri um að hún fengi
félagslega leiguíbúð.
Hún var heimilislaus frá byrjun
júnímánaðar, en fékk íbúð til leigu
nýverið og segist heppin.
Borgarstjórn bregðist við
Oddviti Framsóknar og flugvallarvina vill róttækar aðgerðir í húsnæðismálum
Andstaða við hugmyndirnar í velferðarráði Einstæð móðir á biðlista í þrjú ár
M 1.022 á biðlista í Reykjavík » 4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gisting Center Hotels reka sex hót-
el hér á landi af mismunandi stærð.
Eva Silvernail, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs hótelkeðjunnar Cent-
er Hotels, segir að sumarið sé undir
væntingum hvað bókanir hótelher-
bergja varðar. „Sumrin eru alltaf
góð, en maður finnur samt að þetta
er undir væntingum,“ segir Eva.
Hún segir að styrking krónunnar
hafi áhrif, ferðamenn séu farnir að
verða viðkvæmari fyrir verðinu og
eftirspurnin sé farin að minnka.
„Hluti af minni eftirspurn skrifast
líka á að framboð á bæði hótelher-
bergjum og leyfislausri Airbnb-gist-
ingu hefur aukist,“ segir hún.
Auður Anna Ingólfsdóttir, hótel-
stjóri Icelandair Hótel Hérað á Eg-
ilsstöðum, segir að aldrei hafi verið
eins lítið að gera að vetri til eins og
var síðasta vetur á hótelinu, á þeim
20 árum sem hún hefur starfað hjá
hótelinu.
„Það vantar alla Íslendingatraffík-
ina. Það er mjög dýrt að fljúga hing-
að, en dýrasta flugfarið kostar um 50
þúsund krónur fram og til baka. Fyr-
irtæki virðast til dæmis fara frekar
til útlanda með árshátíðir og fundi,“
segir Auður í samtali við Morgun-
blaðið. »32
Bókanir undir væntingum
Veturinn fyrir austan sá versti í 20 ár Vantar Íslendinga
Verktakar á vegum Orku náttúrunnar eru að
ljúka við að moka og dæla aur og seti upp úr
Andakílsá til að hjálpa ánni að hreinsa sig og
skapa skjól fyrir laxinn sem kemur úr hafi á
næstu dögum. Gripið er til aðgerðanna vegna
umhverfisslyss sem varð í vor þegar gífurlegt
magn af seti fór niður í farveg árinnar um leið
og vatni var hleypt úr inntakslóni Andakílsár-
virkjunar. »6
Nýjar eyrar fjarlægðar og hyljir hreinsaðir fyrir laxinn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Óvenjuleg aðgerð í Andakílsá í Borgarfirði
Síðastliðnar
vikur hafa skot-
árásir, hníf-
stungur og
slagsmál gengja
sett svip sinn á
daglegt líf íbúa
í vesturhluta
Árósa í Dan-
mörku, eftir að
glæpagengi frá Kaupmannahöfn
hélt innreið sína í borgina.
Fjölmargir Íslendingar búa í
Árósum og verða þeir varir við
aukna viðveru lögreglu á svæð-
unum sem um ræðir, en vestur-
hluti borgarinnar hefur verið
skilgreindur sem sérstakt eftir-
litssvæði lögreglu. »30
Gengjaátök setja
svip sinn á Árósa
Fjölga þarf ferðum, lengja þjónustu-
tíma og almennt gera strætó að betri
valkosti almennings í samgöngum
eigi farþegum að fjölga á næstu ár-
um. Þetta segir Jóhannes Rúnar
Svavarsson, forstjóri Strætó bs.
Könnun Capacent Gallup leiðir í ljós
að árið 2014 voru 4,8% allra ferða á
höfuðborgarsvæðinu með almenn-
ingssamgöngum. Markmið sveitarfé-
laganna er að þær verði 8-9% árið
2022 en kunnugir telja að slíkt gerist
þó ekki nema þjónustan verði bætt.
Þá fyrst séu almenningssamgöngur
„alvöruvalkostur“.
Jóhannes Rún-
ar segir að ef eigi
að fjölga farþeg-
um þurfi að þétta
ferðatíðni, sem
óhjákvæmilega
leiði af sér meiri
launakostnað.
Mikilvægt sé
samt að auka
þjónustuna svo
fólk geti treyst
henni – sem leiði svo væntanlega af
sér í framtíðinni fjölgun farþega til
samræmis við sett markmið. »6 & 38
Traust þjónusta leiði
til fjölgunar farþega
Strætó Er alltaf
á leiðinni.