Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is
Baðvö
rur
HOTELREKSTUR
ALLT Á EINUM STAÐ
Fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús,
veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mér finnst hrikalega gam-an að vera skógarleika-stjóri, en því miður erþetta starf aðeins hluta-
starf. Þó hefur þetta verið heilmikil
törn hjá mér núna síðustu dagana
fyrir leikana,“ segir Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir þegar hún er spurð út í
allsérstakt starfsheiti sitt, en hún
skipuleggur Skógarleika sem verða í
Furulundi í Heiðmörk á morgun,
laugardag 1. júlí.
„Skógarleikarnir eru öllum opn-
ir og ókeypis, einstakt tækifæri fyrir
fjölskyldur til að verja saman
skemmtilegum degi. Við erum með
þessum degi að reyna að opna skóg-
inn fyrir fólki, svo fólk átti sig á töfr-
um og ævintýrum hans. Við erum líka
að gefa fólki kost á að kynnast starfi
þeirra sem vinna í skóginum,“ segir
Finna og bætir við að Skógræktar-
félag Reykjavíkur standi fyrir skóg-
arleikunum sem eru núna haldnir í
þriðja sinn, en þetta sé annað árið
sem hún sinni starfi skógarleika-
stjóra.
„Ég vinn þetta í samstarfi við
skógræktina, en hugmyndin kviknaði
fyrir nokkrum árum að hafa keppni í
klassískum skógarhöggsgreinum.
Það er hefð fyrir slíkum keppnum í
öðrum löndum og starfsmenn hjá
Skógrækt Reykjavíkur höfðu farið á
slíkar keppnir og þá langaði að prófa
að gera þetta hér heima. Í fyrsta
skiptið vissu frekar fáir af þessu en
við höfum verið að byggja þetta upp
og í fyrra var miklu betri mæting,
enda er þetta ótrúlega skemmtilegt
og sannarlega ævintýraleg upplifun,“
segir Finna og bætir við að ekki taki
einvörðungu skógarhöggsmenn af
Reykjavíkursvæðinu þátt í keppninni
heldur komi nokkrir af öðrum land-
svæðum, aðallega af Suðvesturland-
inu.
Eini sérmenntaði í trjáklifri
Finna segir að skógarhöggs-
mennirnir séu verulega spenntir fyrir
skógarleikunum og fullir af keppnis-
skapi.
„Þetta eru mjög sérhæfðar
keppnisgreinar, fáir hafa séð skógar-
höggsmenn keppa í þessum íþróttum
sem tengjast þeirra starfi. Það er
mjög gaman að fylgjast með fólki
sem er með svona sérhæfða þekkingu
og kunnáttu, þeir keppa í greinum
sem tengjast daglegum störfum
þeirra, til dæmis að afkvista trjábol. Í
þessum keppnisgreinum skiptir öllu
máli að kunna að vinna með verkfær-
in, hvort sem það er keðjusög eða exi,
og tileinka sér færni í því. Þetta eru
hættuleg verkfæri sem krefjast bæði
kunnáttu og styrks þegar þeim er
beitt.“
Hún segir að í skógaríþrótt-
unum sé aðeins ein liðakeppni, í bola-
rúlli, en þar fyrir utan sé einvörðungu
um að ræða einstaklingskeppni.
„Hver grein verður keyrð áfram,
keppt í einni grein í einu og verð-
launaafhending verður strax að
hverri grein lokinni, þannig að strax
er ljóst hver sigrar í einstökum grein-
um. Almenningur tekur ekki þátt í
keppninni sjálfri en eftir að keppni
lýkur getur fólk fengið að prófa sig
áfram, til dæmis í axarkasti. Ég próf-
aði það, og það er ekkert grín! Þetta
eru mjög þungar axir og það þarf
ákveðna tækni til að kasta í mark.
Þetta er meira en að segja það.“
Fleira verður í boði fyrir gesti en
að fylgjast með keppni og reyna sig
við exi, til dæmis ætlar Orri arboristi
að sýna trjáklifur í línu.
„Orri er eini Íslendingurinn sem
getur með réttu kallað sig arborista,
því hann er sérmenntaður í því að
klifra í trjám. Hann ætlar að sýna
gestum listir sínar í því. En hann ætl-
ar líka að keppa í sporaklifrinu þar
sem keppendur nánast hlaupa upp
tré í sérstökum skóm með sporum, en
þá er tímataka.“
Hvers vegna lekur harpex?
Fjölmargt verður í boði fyrir
fjölskyldufólk, skógarbóndinn og eld-
smiðurinn Þórarinn Svavarsson ætl-
ar að hamra heitt járn yfir logandi
eldi og kynna hið forna handverk.
Teepee-tjald verður reist og þar
verður hægt að kjarna sig undir seið-
andi stemningu.
„Tálgunarmeistarinn Benedikt
Axelsson ætlar að leiðbeina gestum
með að tálga í tré og hann mun nýta
ferskt efni úr skóginum. Hann ætlar
að sýna krökkunum hvernig á að
halda á hníf við tálgun og hvernig á
að beita honum. Ólafur Oddsson ætl-
ar að vera með upplifunargöngu um
skóginn, hann bendir á hvernig trén
hegða sér, til dæmis hvers vegna lek-
ur harpex úr stofni grenitrjáa. Hver
er tilgangurinn með því? Hann setur
þetta fram á svo skemmtilegan hátt,
gerir þetta að upplifun, og maður sér
skóginn í nýju ljósi,“ segir Finna og
bætir við að gestum verði boðið í
grillveislu þar sem skógarbrauð á
priki, pylsur og annað góðgæti verð-
ur grillað yfir varðeldi og rjúkandi
ketilkaffi verður einnig á boðstólum.
Skógarleikarnir standa frá
klukkan 13-17 á morgun, laugardag.
Gestir fá að reyna sig í axarkasti
Skógarhöggsmenn ætla
að leiða saman hesta sína
á morgun, laugardag, á
skógarleikum í Furulundi
í Heiðmörkinni og keppa í
hefðbundnum skógar-
höggsgreinum svo sem
axarkasti, sporaklifri,
bolahöggi og afkvistun
trjábola. Einnig verður
kennsla í tálgun, heitt
járn hamrað og boðið upp
á upplifunargöngu um
skóginn. Að lokum verður
grillað yfir varðeldi.
Axarkast Það er alls ekki eins einfalt og það lítur út fyrir að vera.
Eldsmiðja Skógarbóndinn og eldsmiðurinn Þórarinn Svavarsson hamrar heitt járn yfir logandi eldi og kynnir hið forna handverk.
Drumbar Bæði þarf kunnáttu og leikni til að fara með áhöld í skógarhöggi.
hússins er Jón Gunnar Þórðarson,
hreyfihönnuður er Guðmundur Elí-
as Knúdsen og Sara Hjördís Blön-
dal sér um búninga.
,,Mín er borgin myrk sem blý ...“
segir á einum stað í ljóðabálki
Gerðar Kristnýjar, Drápu, en ljóð-
saga sú á sér stað í myrkviðum
höfuðborgarinnar og hefst nóttina
sem myrkusinn kemur til borgar-
innar. Þessa draumkenndu og
karnivalísku borgarsögu hefur nú
Götuleikhús Hins hússins sett
saman í gjörning undir heitinu
Myrkusinn kemur í bæinn, og verð-
ur hann sýndur í dag föstudag
klukkan 12.30 á Bernhöftstorfu í
miðbæ Reykjavíkur. Gjörningurinn
er líflegur, inniheldur ljóðlist, dans,
eldspúun og sirkus.
Í tilkynningu kemur fram að ljóð
Gerðar Kristnýjar hafi heillað les-
endur um allan heim og fyrir þau
hafi hún meðal annars fengið Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin og
verið tilnefnd til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs.
Leikstjóri gjörnings Götuleik-
Atriðið er öllum opið, enda fer
það fram undir berum himni á
Bernhöftstorfunni og um að gera
fyrir vegfarendur að njóta.
Myrkusinn sprettur fram á Bernhöftstorfunni
Götuleikhúsið setur Drápu Gerðar á svið í dag
Myrkus Ævinlega má búast við líflegu leikhúsi þar sem Götuleikhúsið er.