Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 20

Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 20
Atli Rúnar Halldórsson atli@sysl.is Ólafsfirðingurinn Sigurður Pálmi Randversson tók árið 2001 þátt í að stofna brúarhönnunarfyrirtækið Konfem Byggkonsult AB í Stokk- hólmi ásamt fjórum félögum sínum. Þeim vegnaði vel, reyndar svo vel að þegar eitt stærsta verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki Svíþjóðar, ÅF, ákvað að stofna brúarhönnunardeild í aðalstöðvum sínum nokkrum árum síðar valdi ÅF álitlegasta kostinn í stöðunni og keypti einfaldlega Kon- fem með húð og hári og gerði að brúarhönnunardeild sinni. Nú starfar Sigurður Pálmi á nær þúsund manna vinnustað í Stokk- hólmi, í brúarhönnunardeild yfir 30 starfsmanna. Konfem ávaxtaðist sem sagt ágætlega og Ólafsfirðing- urinn unir hag sínum afar vel. ÅF er stórveldi í verkfræði og ráðgjöf, líka á sænska vísu, með þús- undir starfsmanna í Svíþjóð og um víða veröld. Í þeim ranni fæst starfs- fólk við margt merkilegt sem varpað er ljósi á að hluta eftir heimsókn á dögunum með sérstakri áherslu á vaxtarsprotann í brúarhönnunar- deildinni ÅF-Konfem. „Framtíðin“ er orðin nútíð! „Mörg þróunar- og tækniverkefni á dagskrá hjá okkur flokkast undir það sem fólk flest talar um sem „framtíðarmúsík“ en þau eru miklu frekar nútíð en framtíð. Á götum Gautaborgar eru til dæmis á annað hundrað sjálfkeyrandi ökutæki, lið- ur í stærstu tilraun veraldar með bíla án bílstjóra í borgarumferð. Í bílstjórasætunum situr samt fólk sem fylgist með og getur gripið inn í. Þetta er samstarfsverkefni okkar i ÅF, Volvo-bílaverksmiðjanna, borgarstjórnarinnar í Gautaborg og sænskra samgönguyfirvalda. Þróun- in er ótrúlega ör og á fleygiferð. Sér- fræðingar á vegum okkar koma ekki bara að tæknilegri hönnun bíla og búnaðar heldur spá þeir líka í sam- félagsáhrif og lagalega stöðu, trygg- ingamál og margt fleira.“ Martin Jonsson er svæðisstjóri innviðauppbyggingar í Austur- Svíþjóð í sænska verkfræði- og ráð- gjafarfyrirtækinu ÅF í Stokkhólmi, félagi sem stofnað var 1895 og er nú með yfir 9.000 starfsmenn heima og heiman. Verkefni ÅF eru fjölbreytt og sum svimandi stór í sniðum, á hvaða mælikvarða sem er. Fyrir- tækið kemur til dæmis mjög víða við sögu í gríðarlegri uppbyggingu sam- göngumannvirkja í Svíþjóð: hrað- brauta, hraðlestarkerfa, jarðganga og brúa. ÅF hannar líka tæknibúnað í far- símum frá Ericsson og Nokia og starfar með japanska fyrirtækinu Denso að því að þróa skynjara fyrir bíla til að gera ökumenn óþarfa. Hönnun sjálfra bílanna og búnaðar- ins í þeim er einn liður í því að gera þá sjálfkeyrandi, hönnun samgöngu- mannvirkja er annar liður, skynj- arar og fjarskiptabúnaður sá þriðji og svo mætti áfram telja. ÅF-menn líta á hvern þátt sem hluta af heildarmynd. ÅF er á kafi í öllu saman og miklu meira til og kemur að verkefnunum sem sjálf- stæður og óháður ráðgjafi. Í þróunarferli umferðar án bíl- stjóra er allt undir: fjölskyldubílar, strætisvagnar og flutningatæki af ýmsu tagi, til dæmis vörubílar sem flytja efni úr námum. Ef náma- vinnsla og flutningar verða sjálfvirk er hægt að gera einfaldari jarðgöng og leggja minna í loftræstingu en ef þar væri fólk við störf og á ferð. Svo myndu tækin ganga allan sólar- hringinn og lítið kæra sig um matar- og kaffipásur, hvað þá um hvíldar- og svefnstundir. Það kallast hag- ræðing og sparnaður svo um munar. Samgönguverkefni sem um munar Þrjú risavaxin samgönguverkefni eru í gangi eða við það að fara í gang í Svíþjóð um þessar mundir og ÅF kemur að þeim öllum með rann- sóknum, mati á umhverfisáhrifum, undirbúningi, hönnun, verkefnis- stjórn eða framkvæmdaeftirliti. Í Gautaborg er unnið að jarðlestar- kerfi í 6 km göngum með nýjum brautarstöðvum. Í jaðri Stokkhólms standa yfir framkvæmdir við hrað- braut sem hönnuð er fyrir 120.000 bíla á sólarhring og tengir saman norður- og suðursvæði borgarinnar. Leiðin er 21 km, þar af 18 km í jarð- göngum, og 10 brýr verða reistar. Þetta er stærsta og dýrasta sam- gönguverkefni sænskrar sögu til þessa og er kostnaðaráætlun upp á jafnvirði um 340 milljarða íslenskra króna. Síðast en ekki síst ber að nefna áform um nýtt hraðlestarkerfi sem á að tengja saman Stokkhólm, Málm- ey og Gautaborg. Fyrsti áfanginn verður tekinn í gagnið 2028, 150 km milli Järna og Linköping, þar af 20 km í jarðgöngum og 200 brýr! Lestir munu bruna þar á yfir 320 km hraða á tvöföldu spori. Kostnaðaráætlun fyrir verkefnið í heild hljóðar upp á jafnvirði 3.000 milljarða íslenskra króna. Stofnuðu eigið hönnunarfyrirtæki Fjórir Íslendingar eru í hópi 1.000 starfsmanna ÅF í höfuðstöðvunum í Stokkhólmi, þar á meðal er tækni- fræðingurinn og brúarhönnuðurinn Sigurður Pálmi Randversson frá Ólafsfirði. Hann lærði húsasmíði á Akureyri og starfaði þar sem slíkur en flutti til Stokkhólms 1981, vann fyrst við smíðar en settist fljótlega á skólabekk og lærði tæknifræði með brúarhönnun sem sérsvið. Að námi loknu fékk hann vinnu hjá verk- fræði- og ráðgjafarfyrirtækinu Bro- konsult AB, sem fékkst við að hanna bæði hús og brýr. „Ég teiknaði eingöngu hús fyrstu árin en 1992 skall á kreppa í Svíþjóð og nýsmíðar húsa lögðust af að miklu leyti. Við snerum okkur þá að því að hanna brýr fyrir bíla og járn- brautir. Það hefur verið fag mitt síð- an þá. Brokonsult farnaðist vel framan af en svo gerðist það af ýms- um ástæðum á árinu 2001 að leiðir skildu. Við tókum okkur saman, fimm starfsmenn, og stofnuðum eig- ið brúarhönnunarfyrirtæki, Konfem Byggkonsult AB. Við vorum tólf starfandi í Konfem þegar flest var, þar af sjö eigendur. Viðskiptavinir komu til okkar án þess við hefðum neitt fyrir því að kynna okkur eða auglýsa. Við feng- um verkefni fyrir stærstu bygg- ingarverktaka Svíþjóðar, ríkið og sveitarfélög. Starfsemin gekk mjög vel en þegar á leið höfum við dálitlar áhyggjur af framtíðinni og því að yngja upp á vinnustaðnum. Bæki- stöðvarnar voru í úthverfi en þangað vildi ungt fólk helst ekki koma til starfa. Það horfði frekar til mið- bæjarsamfélagsins. Við fengum fá- einar fyrirspurnir um samstarf eða sameiningu við önnur fyrirtæki en aldrei nógu spennandi til að málin væru rædd frekar.“ Öskubuskuævintýri Ólafsfirðings  Sigurður Pálmi Randversson stofnaði brúarhönnunarfyrirtæki í Stokkhólmi 2001  Er nú deild í einu stærsta verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki Svíþjóðar, ÅF  Hafa hannað fjölda mannvirkja Ljósmyndir/Atli Rúnar Halldórsson. Stórvirki Kjell Windelhed jarðverkfræðingur og Sigurður Pálmi Randversson brúartæknifræðingur við teikningu af nýju, risavöxnu hraðbrautarverkefni. Vinna hjá ÅF Rut Kristjánsdóttir og Óskar Bragi Guðmundsson eru bygg- ingaverkfræðingar og Ásdís Ólafsdóttir samgönguverkfræðingur. Þægindi og falleg hönnun Eikjuvogur 29 Opnunartími: 104 Reykjavík - S:781-5100 Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.