Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 21

Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 21
Farsæl starfsmannapólitík Einn góðan veðurdag var hringt í Konfem frá ÅF, ráðgjafarfyrirtæki sem Konfem-félagarnir þekktu vel til en höfðu aldrei starfað með. ÅF kom umbúðalaust að erindinu og vildi kaupa fyrirtækið til að gera að brúarhönnunardeild hjá sér. Samn- ingar tókust og niðurstaðan varð eins konar Öskubuskuævintýri Sig- urðar Pálma og félaga. „Þetta reyndist mjög farsæl lausn og mér líkar afar vel að starfa í ÅF. Við vorum 10 starfsmenn í brúar- hönnunardeildinni þegar ég kom hingað 2013 en erum nú yfir 30 í spennandi og þróttmiklu starfsum- hverfi. Stærstu verkefnin eru brýr í nýja hraðbrautakerfinu við Stokk- hólm. Starfsmannapólitík fyrirtækisins er til fyrirmyndar. Markvisst er unnið að því að ráða ungt fólk til ÅF og í starfsmannahaldinu er maður af írönskum uppruna sem aðstoðar innflytjendur sem fá hér vinnu. Við ráðum vinnutímanum að miklu leyti sjálf og fyrirtækið nýtir reynslu og þekkingu eldri starfsmanna svo lengi sem þeir vilja sjálfir vinna. Hér er engum vísað á dyr vegna ald- urs, elsti starfsmaðurinn á Stokk- hólmskontórnum er 82 ára og sýnir ekki á sér fararsnið!“ Sigurður Pálmi og Kristjana Krüger Níelsdóttir frá Akureyri hafa komið sér vel fyrir í Sollentuna á höfuðborgarsvæði Svíþjóðar. Dóttir þeirra, Rannveig, er sálfræð- ingur og býr með fjölskyldu sinni í Ástralíu. Synirnir tveir eru fjöl- skyldumenn í Stokkhólmi; Níels Hólm hagfræðingur og starfar í banka en er jafnframt því tennis- þjálfari; Magnús Múli er ráðgjafi hjá sænska umboðinu fyrir BMW- bíla. Ekkert verkefni á Íslandi ÅF er með skrifstofur, starfs- menn og verkefni víða um álfur en hefur ekki drepið niður fæti á Ís- landi, enn sem komið er að minnsta kosti. Kjell Windelhed jarðverk- fræðingur þekkir hins vegar vel til jarðgangagerðar á Íslandi og tekur þátt í norrænu samstarfi við upplýs- ingamiðlun og samráð á því sviði. Hann segir að jarðgangaverkefni séu mun fleiri í núna í Svíþjóð en nokkru sinni fyrr, reyndar svo mörg að erfitt sé að fá þjálfaða og reynda gangagerðarmenn til starfa. „Undir Stokkhólmi er unnið að margvíslegum jarðgöngum fyrir bíla, jarðlestir, frárennsli og strengi fyrir rafmagn og fjarskipti. Það þarf reyndar að skipuleggja betur þetta ganganet, sem er ekkert smáræði að umfangi. Ef hægt væri að sjá göngin í þversniði liti landið undir fótum okkar út eins og svissneskur ostur! Jarðgangagerð í stórborg er sér- lega vandasöm í mörgu tilliti. Við verðum að gæta þess að hafa göngin vatnsþétt til að lækka ekki grunn- vatnsyfirborð með tilheyrandi af- leiðingum á yfirborði jarðar og halda akbrautum í göngunum þurr- um í nafni umferðaröryggis. Hávaði og jarðhræringar tengdar spreng- ingum geta valdið ónæði og svo er vandasamt að flytja bergmulning burt um stræti í stórborgarumferð- inni. Við lítum hins vegar á þetta allt saman sem áskoranir og viðfangs- efni til að leysa en alls ekki sem vandamál!“ Höfuðstöðvar Hátt til lofts og vítt til veggja hjá ÅF í Stokkhólmi. Stórhýsi Aðalstöðvar ÅF í Stokkhólmi eru mikil bygging. Starfsmenn þar eru nær eitt þúsund, þar af yfir 30 í brúarhönnunardeild. Hönnun Sigurður Pálmi við mannvirki sem Konfem Byggkonsult, fyrirtæki sem hann tók þátt í að stofna árið 2001, hannaði í Stokkhólmi. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 Góð næring í amstri dagsins ENGIN HVÍTUR S Spennandinýjungar rúsinur möndlur trönuber H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nærandi millimál … er létt mál Hreint skyr eða grjónagraut er tilvalið að taka með í nesti. Bragðgott og saðsamt með stökkum toppi sem gerir millimálið þitt enn girnilegra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.