Morgunblaðið - 30.06.2017, Page 24
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ákveðið flækjustig er samfara því að
stækka golfvöll á svæði sem skil-
greina á sem friðaðan fólkvang. Það
einfaldar heldur ekki málið ef um-
rætt svæði er að hluta til á við-
kvæmu svæði og óröskuðu hrauni,
jafnvel einstöku.
Þetta hefur þó verið viðfangsefni
þeirra sem standa að undirbúningi
að uppbyggingu útivistarsvæðis og
stækkun golfvallar Oddfellowa á
Urriðavelli við Heiðmörk. Áhersla
hefur verið lögð á að stíga létt til
jarðar og hafa vandvirkni að leiðar-
ljósi með vernd og nýtingu til úti-
vistar og fræðslu í huga. Hugsanlega
er verkefnið nú að komast í gegnum
nálarauga umhverfissjónarmiða og
náttúruverndar.
Torfærur á leiðinni
Fyrir um áratug var fyrst hafist
handa við undirbúning að stækkun
Urriðavallar. Fljótt varð ljóst að
ýmsar torfærur voru á leiðinni og
hafa menn þurft að fara fram og til
baka með pappíra sína og skissur.
Að málum hafa komið margir sér-
fræðingar og nú er komið að Garða-
bæ að ákveða hvort af framvindu
getur orðið. Ákvarðanir um sjálfa
framkvæmdina bíða þess að stimpl-
ar verði komnir á alla pappíra.
Nokkrir einstaklingar í Odd-
fellowhreyfingunni keyptu jörðina
Urriðavatn árið 1946 og gáfu hana
síðan Styrktar- og líknarsjóði Odd-
fellowa þegar hann var stofnaður á
miðjum sjötta áratugnum, en sjóð-
urinn er í eigu íslensku Oddfellow-
reglunnar. Landið náði frá Reykja-
nesbraut upp í upplandið við Heið-
mörk. Fyrirtækin í Kauptúni eru til
dæmis á þessu landi og sömuleiðis
íbúðahverfið í Urriðaholti.
Vilji er til að hafa á svæðinu í
framtíðinni gott aðgengi fyrir ýmsa
útivist með gerð göngu-, hjóla- og
reiðstíga og upplýsingar um náttúru
og menningarminjar yrðu aðgengi-
legar. Þá er áhugi á að fjölga golf-
brautum úr 18 í 27, en í Urriðaholti
rekur Golfklúbburinn Oddur öfluga
starfsemi. Golfvöllurinn liggur frá
Ofanbyggðarvegi eða svokölluðum
Flóttamannavegi í austurátt.
Formaður Styrktar- og líknar-
sjóðs Oddfellowa er Steindór Gunn-
laugsson, en þeir Ingjaldur Ásvalds-
son, Júlíus Rafnsson og Hlöðver
Kjartansson hafa verið í forsvari við
þróun útivistarsvæðisins. Ráðgjafar-
fyrirtækið Alta, undir leiðsögn Hall-
dóru Hreggviðsdóttur fram-
kvæmdastjóra og öðru starfsfólki
þess, hefur unnið náið með þeim fé-
lögum, en Alta sérhæfir sig m.a. í
skipulags- og umhverfismálum.
Hefði ekki áhrif á verndargildi
Víða hefur verið leitað faglegra
ráða. Svo virðist sem nú hafi fundist
leið sem ætti að sætta sjónarmið, á
grunni álits Náttúrufræðistofnunar
Íslands á þessum ráðagerðum, en
fyrir liggur mat á verndargildi svæð-
isins frá stofnuninni. Náttúrufræði-
stofnun veitir umsögn um gildi nátt-
úruminja, samkvæmt náttúru-
verndarlögum. Þegar mat Náttúru-
fræðistofnunar á verndargildi
náttúruminja svæðisins lá fyrir, var
niðurstaðan sú að fækka brautum
innan Urriðakotshrauns og fara ekki
inn á óraskað hraun.
Nú er miðað við að þrjár holur
verði á svæði sem kallað er Flata-
hraun án þess að spilla hraunmynd-
unum. Flatahraun er mjór geiri af
flötu hrauni innan úfins hraunsins,
þar sem gróðurþekja er yfir öllu.
Þar gróðursettu Oddfellowar fyrir
meira en hálfri öld aðallega furu og
greni, en lundinum hefur lítið verið
sinnt hin síðari ár. Sjálfsáning þess-
ara ágengu tegunda er nú mikil og
Með golfvöll í gegnum nálarauga
Í áratug hefur verið unnið að breyttri nýtingu í Urriðaholti Auknir möguleikar til útivistar og
27 holu golfvöllur Mikilvæg umsögn Náttúrufræðistofnunar Framkvæmdir yrðu afturkræfar
Urriðaholt Séð yfir golfvöllinn, fremst eru klúbbhús og bílastæði, en síðan má sjá hvernig golfbrautirnar liðast um svæðið. Fyrirhuguð stækkun yrði í
Flatahrauni hægra megin ofan við miðja mynd þar sem Oddfellowar gróðursettu furu og greni fyrir meira en hálfri öld og undir háspennulínum til hægri.
Minjar Víða í hrauninu eru merkar náttúru- og menningarminjar og þar má
lesa marga kafla í jarðsögu Íslands. Áhersla verður lögð á fræðslu.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
„Áður en lengra er haldið þurfa að liggja fyrir skýr og
formleg svör við því hvort sú nýting sem áformuð er í
hrauninu stenst lög um náttúruvernd og friðun,“
segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ. Í
aðalskipulagstillögu sem nú liggur fyrir bæjarstjórn
er hraunið skilgreint sem opið svæði, en Líknar- og
styrktarsjóður Oddfellowa hefur komið athugasemd-
um á framfæri um nýtingu hluta svæðisins fyrir golf-
brautir og stíga.
„Við höfum sýnt því áhuga að fá ákveðna vernd á
hraunið og það gæti þá verið verndarflokkurinn fólk-
vangur. Í því sambandi þurfum við formleg svör um
það hvort Umhverfisstofnun samþykkir að tiltekinn fjöldi golfbrauta sé í
slíkum fólkvangi. Lagt hefur verið í mikla vinnu af hálfu Oddfellowa, sem
meðal annars hafa fengið Náttúrfræðistofnun til aðstoðar. Allt er það af
hinu góða, en við verðum að fá skýr svör við öllum spurningum og hafa
vissu fyrir því að þarna sé ekki verið að ganga á náttúruna og eyðileggja
verðmætar náttúruminjar. Ef sýnt er fram á slíkt og verndin er tryggð
hef ég persónulega ekkert á móti golfbrautum þarna,“ segir Gunnar.
Hann segir að unnið verði úr athugasemdum við tillögu að aðalskipu-
lagi á næstu vikum og hlutaðeigendur fái málefnaleg svör í ágúst.
Skýr og formleg svör liggi fyrir
GUNNAR EINARSSON, BÆJARSTJÓRI Í GARÐABÆ
Gunnar
Einarsson