Morgunblaðið - 30.06.2017, Side 25
lúpínan er byrjuð að stinga sér nið-
ur.
Edwin Roald golfvallahönnuður
var fenginn til að móta nýjar til-
lögur, sem tækju mið af mati Nátt-
úrufræðistofnunar. Edwin byggir
tillögur sínar á nýrri hugsun um fjöl-
nota útivistarsvæði, um gagnkvæm-
an ávinning kylfinga, annars útivist-
arfólks og umhverfis. Náttúrufræði-
stofnun var fengin til að rýna nýju
tillögurnar og var niðurstaðan sú að
það hefði ekki áhrif á verndargildi
svæðisins að þróa golfbrautir og úti-
vistarstíga í Flatahrauni. Nátt-
úrufræðistofnun bendir einnig á að
ef vernda eigi hraunið, þá sé nauð-
synlegt að koma í veg fyrir frekari
útbreiðslu þessara ágengu tegunda
eins og furu, grenis og lúpínu.
Önnur stækkun mun svo liggja
undir háspennulínunum sem hug-
mynd er um að hverfi og/eða fari í
jörð. Línuvegurinn sem nú er yrði
einnig nýttur undir golfbrautir. Þá
eru hugmyndir um að færa æfinga-
völl, sem kallaður er Ljúflingur, úr
hjarta golfvallarins á svæði í grennd
við skátaskála sem er suðaustan við
núverandi golfvöll. Skátarnir hyggja
á flutning að Grunnuvötnum. Nýr
Ljúflingur myndi tengjast nýju
brautakerfi vallarins.
Með breyttri nýtingu og nýjum
teikningum hefur tekist að koma 27
holum fyrir á landsvæðinu sam-
kvæmt grófri útfærslu. Jafnframt
hefur verið hugsað fyrir stígum til
útivistar í kringum golfvöllinn, en
einnig innan hans og er hugmyndin
að þarna verði fjölnýtanlegt úti-
vistarsvæði.
Íþróttamannvirki í fólkvangi
Sú hugmynd sem nú er uppi er í
raun afturkræf, sem er breyting frá
þeim hugmyndum sem áður voru í
gangi. Fjöldi náttúru- og menning-
arminja er á þessu svæði og hafa
þær verið kortlagðar með það í huga
að setja upp skilti um jarðfræði,
minjar og gróður.
Þá leitaði Garðabær í fyrra til
Umhverfisstofnunar með þá spurn-
ingu hvort heimilt væri að vera með
íþróttamannvirki inni á friðlýstu
svæði eins og fólkvangi. Svarið var
jákvætt, slíkt væri heimilt, ef vernd-
argildið er áfram tryggt, samanber
skíðasvæðið í Bláfjallafólkvangi.
Nýja útfærslan tryggir það.
Oddfellowar kynntu verkefnið á
íbúafundi í Garðabæ í vor ásamt
fulltrúum frá Náttúrufræðistofnun,
Alta og Edwin Roald, þar sem þeim
mun hafa verið vel tekið. Styrktar-
og líknarsjóður Oddfellowa hefur
nýlega lagt fram formlega beiðni um
breytingu á aðalskipulagi Garða-
bæjar þess efnis að þarna verði fólk-
vangur með fjölbreytta útivistar-
stíga og golfbrautir.
Morgunblaðið/Ófeigur
Kylfingar Anna Sólveig Snorradóttir undirbýr pútt á eggsléttri flöt í hraunjaðrinum á Evrópumóti áhugamanna í golfi kvenna á Urriðavelli í fyrra.
Júlíus Rafns-
son er einn
þeirra sem
unnið hafa að
undirbúningi
stækkunar
svæðisins í
Urriðaholti,
en hann er
jafnframt
fyrrverandi
forseti Golfsambandsins. Spurð-
ur hvers vegna Styrktar- og
líknarsjóður Oddfellowa sé að
skipuleggja útivistarsvæði fyrir
almenning á eigin landi svarar
Júlíus að það sé einfaldlega af
hugsjón. „Sú skoðun er uppi
meðal margra Oddfellowa að
uppbygging Urriðavallar og
þessa einstaka svæðis sem fjöl-
breytts og einstaks útivist-
arsvæðis, sé meiri háttar heilsu-
efling fyrir alla sem hafa áhuga á
útivist,“ segir Júlíus.
„Við höfum lagt okkur öll fram
um að gera vel. Nú liggja fyrir
hugmyndir að útivistarsvæði fyr-
ir almenning, sem unnið hefur
m.a. verið í samstarfi við fagfólk
og stofnanir. Ég minnist þess
ekki, og er ég þó sæmilega
tengdur í íþróttinni, að golfvöllur
hafi farið í gegnum jafnflókið
ferli og mikið nálarauga og við
höfum gert síðasta áratug. Nú
liggur ákveðin útfærsla fyrir og
vonandi verður hún samþykkt .“
Júlíus nefnir að 1. ágúst verða
120 ár frá því að Oddfellow-
hreyfingin tók til starfa hér.
Hugsjónastarf
og heilsubót
FLÓKIÐ FERLI Í MÖRG ÁR
Júlíus
Rafnsson
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Við bjóðum glæsilegt úrval
trúlofunar- og giftingahringa í
gulli, hvítagulli, rauðagulli, rósagulli,
platínu með eða án demanta.
14 kt gull og hvítagull
með demöntum
14 kt hvítagull með demöntum14 kt hvítagull með demöntum
14 kt rósagull með demanti14 kt gull/hvítagull
með demöntum
14 kt gull með demöntum
CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Skoðið glæsilegt úrval á acredo.is og carat.is
Trúlofunarhringir
Giftingarhringir
Demantsskartgripir