Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 Honeywell borðviftur, gólfviftur og turnviftur – gott úrval. Hljóðlátar viftur í svefnherbergi. Viftur sem gefa gust á vinnustaði. Sími 555 3100 www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Gott úrval af gæðaviftum frá Honeywell. Margar stærðir og gerðir. Nánari upplýsingar hjá Donna ehf. vefverslun www.donna.is „Ég hef ekki orðið var við átökin með beinum hætti en maður heyr- ir meira af sírenuvæli og tekur eftir að eitthvað er í gangi,“ segir Sverrir Ásmundsson í samtali við Morgunblaðið. Hann býr í Árós- um ásamt konu sinni og tveimur dætrum, í útjaðri þess svæðis sem nú er skilgreint sem sérstakt eftirlitssvæði. „Ég hef ekkert séð til þessara hópa. Ég fer nú oft og versla í Bazar Vest, en verð ekki var við neitt. Þetta náttúrlega gerist helst á kvöldin og ég er ekkert á þvælingi þarna á þeim tíma,“ seg- ir Sverrir. Mikil fjölmiðlaumfjöllun „Það er rosalega mikið fjallað um þetta í fréttum. Það sést á fréttunum að þetta er ástand sem maður á ekki að venjast hérna, en þetta er líka blásið upp, held ég. Ég fór þarna í Bazar Vest morg- uninn eftir að síðasta skotárás var gerð þarna á bílastæðinu og varð ekki var við að neitt væri öðruvísi. Verslunarmennirnir í Bazar Vest kvarta reyndar undan minnkandi aðsókn síðan þetta byrjaði,“ segir Sverrir. Hvað aðgerðir lögreglu varðar telur Sverrir að almennt séu íbú- ar ánægðir með að lögreglan taki fast á glæpagengjunum. „Það á eftir að koma í ljós hvernig lög- reglan mun umgangast þennan rétt. Þetta er rosalega öflugt tæki og það er náttúrlega bæði hægt að nota hann á réttan hátt og mis- nota,“ segir Sverrir, sem óttast að aðgerðir lögreglu muni helst trufla íbúa hverfisins sem eru dökkir á hörund. Heyra skothvelli „Við höfum heyrt skothvelli og síðan heyrir maður sírenurnar koma á fullu,“ segir Áslaug S. Árnadóttir, sem býr rétt neðan við Bispehaven-svæðið ásamt eig- inmanni sínum og tveimur börn- um. Að öðru leyti segir Áslaug að hún verði lítið vör við átökin og fái flestar fréttir af þeim í gegn- um danska fjölmiðla. „Þetta er svolítið sérkennilegt, við sitjum hérna heima hjá okkur aðeins neðar í hverfinu, alveg örugg og svo eru einungis 300 metrar í alls konar vitleysu, sem maður les svo um í blöðunum dag- inn eftir. Það er óhugnanlegt að hugsa til þess, en lífið gengur þó sinn vanagang hjá okkur,“ segir Áslaug. „Við foreldrarnir í götunni stöndum hérna úti á kvöldin á meðan krakkarnir leika sér og það eru allir sammála um að það sendir enginn krakkana eina í búðina lengur. Það eru líka nokkrar konur sem eru hættar að fara í búðina hérna upp við Bispe- haven. Þeir standa þar fyrir utan á kvöldin þessir drengir og það er nóg til þess að fólk hefur ekki áhuga á að fara þarna uppeftir. Það er eitthvað allt annað sem stýrir þessum strákum heldur en skynsemi. Svo eru þeir með vopn sem gerir það að verkum að þeir eru gjörsamlega óútreiknanlegir. Mér finnst allt í lagi að þeir séu að skjóta hver á annan, en á meðan þeir eru að gera þetta úti á götu þar sem við hin erum líka – það er það sem fólk er hrætt við,“ segir Áslaug. Innflytjendur aðlagast illa Hún telur að íbúasamsetning hverfanna þar sem átökin eiga sér stað sé slæm og að yfirvöld í Árósum þurfi að gera betur í því að hjálpa innflytjendum í borg- inni út á vinnumarkaðinn. „Við erum að tala um áratuga mis- heppnaða aðlögun innflytjenda að samfélaginu. Öll stefnan hefur gjörsamlega klikkað. Þessir strákar eru að stórum hluta aldir upp á heimilum þar sem foreldr- arnir hafa ekkert verið að fara í vinnu og hafa aðallega umgengist aðra sem eru í sömu aðstæðum.“ Áslaug segir yfirvöld í Árósum þurfa að gera betur í að hjálpa innflytjendum í borginni út á vinnumarkaðinn, til þess að þeir aðlagist samfélaginu betur. Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Hálfgerð óöld hefur verið í Árósum á Jótlandi upp á síðkastið. Í þessari rúmlega 260 þúsund manna borg, sem alla jafna er nokkuð friðsæl, hafa þó nokkrar skotárásir, hnífs- stungur og hópslagsmál átt sér stað síðan í lok maí. Flest atvikin hafa gerst í hverfum í vesturhluta borg- arinnar, þar sem framboðið af ódýru húsnæði er mest og hlutfall innflytj- enda hæst. Þetta er bein afleiðing þess að glæpagengið Loyal to Familia, sem á bækistöðvar á Norðurbrú í Kaup- mannahöfn, hefur ákveðið að færa út kvíarnar til Árósa. Það hefur vakið litla kátínu þeirra sem nú þegar hagnast af því að stunda glæpsamleg athæfi þar í bæ og þá einna helst Black Army, gengis sem á uppruna sinn í Óðinsvéum á Fjóni en skaut rótum í Gellerup-garðinum í Brabrand-hverfinu í Árósum á síð- asta ári. Sérstakt eftirlitssvæði Nýjasta útspil lögregluyfirvalda á Austur-Jótlandi til að sporna við átökum gengjanna er að setja upp sérstakt eftirlitssvæði (d. visitation- zone) í vesturhluta borgarinnar. Sér- staka eftirlitssvæðið er afmarkað svæði, þar sem lögreglan hefur rétt til þess að gera líkamsleit á ein- staklingum eða leita ítarlega í öku- tækjum án þess að hafa fyrir því rök- studdan grun, eins og alla jafna þarf. Þetta er gert til þess að reyna að uppræta vopnaburð borgara og leggja hald á ólöglega hnífa, skot- vopn eða vopn af öðru tagi. Danska lögreglan hefur haft þetta úrræði frá árinu 2004 og hefur frá þeim tíma beitt því oftar en 130 sinn- um, oftast þó í mun skemmri tíma en nú er áætlað í Árósum. Ráðgert er að vesturbær borgarinnar verði skil- greindur sem sérstakt eftirlitssvæði fram til 24. júlí. Svæðið nær yfir hverfin Brabrand, Grimhøj og Skjoldhøj auk hluta Åbyhøj- og Hasle-hverfanna. Vilja breyta hverfunum Hlutar hverfanna sem um ræðir hafa verið skilgreindir af yfirvöldum sem „sérlega viðkvæm búsetu- svæði“. Þar á meðal eru Gellerup- og Toveshøj-svæðin í Brabrand- hverfinu og Bispehaven-svæðið í Hasle-hverfinu. Þessi svæði eiga það sameiginlegt að þar eru mörg stór fjölbýlishús og ódýrt húsnæði, sem hefur leitt til þess að tekjulágir hóp- ar, þar á meðal innflytjendur sem eru að ná fótfestu í Danmörku, at- vinnulausir og margir aðrir sem standa höllum fæti félagslega hafa hópast saman á litlu svæði. Stóru fjölbýlishúsin sem einkenna þessi svæði voru byggð í töluverðum flýti um árið 1970 til að mæta húsnæðis- skorti í Árósum. Í Árósum, eins og víða annars staðar, hafa yfirvöld áttað sig á því að íbúasvæði sem þessi, stórar fjölbýlis- húsabyggðir í útjaðri borga, leiða af sér margvísleg félagsleg vandamál. Reynslan hefur verið slæm. Því er unnið að því að breyta ásýnd hverf- isins. Fimm stór fjölbýlishús í Gell- erup og Toveshøj verða rifin á næst- unni og í stað þeirra verða byggðar íbúðir sem henta fjölskyldufólki með hærri tekjur en almennt gengur og gerist í hverfinu. Auk þess verður ásýnd svæðisins fegruð og þá stendur til að ný léttlest tengi svæðið betur við miðborgina, sem er miðpunktur atvinnu- og menningarlífs í Árósum. Gengjaátök í vesturhluta Árósa  Vesturhluti borgarinnar sérstakt eftirlitssvæði lögreglu til 24. júlí  Raskar daglegu lífi íbúa  Glæpagengi frá Kaupmannahöfn reynir að ná fótfestu  Skotárásir, hnífstungur og hópslagsmál Ljósmynd/Giang Pham Bazar Vest Þessi verslunarkjarni er miðpunktur Gellerup-hverfisins. Þar hefur skotum ítrekað verið hleypt af. Svæðið er skilgreint sem sérlega viðkvæmt. Morgunblaðið/Arnar Þór Ingólfsson Bispehaven Gengið Loyal to Fam- ilia hefur hreiðrað um sig hér. Börnin fara ekki ein út í matvörubúð  Íslendingar í vesturhluta Árósa Áslaug S. Árnadóttir Sverrir Ásmundsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.