Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Mygla er mikilvægur
hluti alls lífs og aðferð
náttúrunnar við að
brjóta niður lífræn efni.
Þetta skulum við hafa í
huga þegar við bölvum
myglu. En þrátt fyrir
að einhver mygla sé
eðlileg er hægt að stýra
því hvort hún fær að
grassera í húsakynnum
með tilheyrandi tjóni.
Umræða um myglu hljómar
stundum eins og þetta séu náttúru-
hamfarir, að samfélagið eigi að taka
á þeim og tryggingafélög eigi að
tryggja hús fyrir þessari „óværu“.
Hætta á myglu er alltaf til staðar og
verður ekki útrýmt, frekar en árstíð-
um eða kolefnisbindingu plantna.
Það sem við getum aftur á móti gert
er að hanna og byggja hús rétt, svo
að hætta á myglu sé lágmörkuð.
Ekki er síður mikilvægt að tryggja
fagmennsku við umhirðu og við-
skipti með húsnæði, þannig að tjónið
af óábyrgri notkun og ónógu viðhaldi
flytjist ekki yfir á nýja eigendur. Það
fyrra er gert með réttri hönnun og
framkvæmdum, studdum virku eft-
irliti, en það síðara með ábyrgri fast-
eignasölu, viðhaldi og ráðgjöf á líf-
tíma húsanna.
Hiti og loftraki eru lykilþættir
sem ráða því hvernig myglu farnast
en þó að það, ásamt hönnun, skapi
grundvöll myglu hafa aðrir þættir
áhrif á umfang hennar og hvort tjón
og heilsuskaði hlýst af.
Eftir að hús er risið þurfum við
ekki síst að horfa á umhverfið.
Hvernig við sinnum húsunum okkar
og hvernig við styðjum við ábyrga
húseignarstefnu.
Ábyrgð á forvörnum og fyrir-
byggjandi viðhaldi liggur þar af leið-
andi víða, t.d. hjá hönnuðum hússins,
meisturum fagiðna við byggingu
hússins, byggingarstjóra, eftirlits-
aðilum sem koma að hönnun og
framkvæmd, eigendum að tryggja
rétt viðhald, notendum að umgang-
ast húsið rétt og viðgerðar- og við-
haldsaðilum. Með byggingareglu-
gerð frá 2012 var sjónum beint að
hönnun og byggingaframkvæmdum
en hér vil ég ræða ábyrgð þriggja að-
ila þar fyrir utan sem skipta máli:
fasteignasala, þeirra sem sjá um
eftirlit með byggingum og loks verk-
fræðistofa sem sinna greiningu á
myglu í húsnæði.
Við fasteignakaup situr fasteigna-
sali beggja vegna borðsins, þ.e. fyrir
hönd bæði seljanda og kaupanda, en
ég tel það ekki ganga upp. Kaupandi
verður að fá að vita um allar at-
hugasemdir sem fram hafa komið
um húseignina og því er nauðsynlegt
að einhver annar gæti hagsmuna
kaupandans en seljandans og sjái
jafnframt um að fagleg úttekt á hús-
næðinu fari fram. Þannig má tryggja
að gallar flytjist ekki á milli eigenda,
án þess að það end-
urspeglist í verði eign-
arinnar. Slíkt skilar
ábyrgari húsnæðis-
rekstri og viðhaldi.
Við höfum tvöfalt
eftirlitskerfi þar sem
allir eiga að vera lög-
gildir og tryggðir sem
halda utan um hönnun
á byggingum og sjá
um byggingafram-
kvæmdir, auk þess
sem opinbert eftirlit
fylgist með á öllum
stigum framkvæmda frá aðal-
uppdráttum að lokaúttekt. En þrátt
fyrir það virðist brotalöm á því að
tryggja skilgreinda ábyrgðarkeðju.
Ef galli eða skemmd finnst í húsum
er erfitt að finna þann ábyrga í þessu
kerfi og húseigandinn situr uppi með
skaðann. Þrátt fyrir vitneskju um
byggingaraðferðir sem ekki virka
eða frágang sem uppfyllir ekki kröf-
ur virðist oft lítið aðhafst. Vitað er
um dæmi þar sem byggingaverktak-
ar hafa notað efni sem hefur ekki
verið CE-merkt þrátt fyrir kröfu í
lögum eða reglugerð eftir því sem
við á um slíkt og einnig að myglaðar
byggingareiningar hafi verið lokaðar
af í nýbyggingum. Í báðum tilfellum
hafa úttektaraðilar komið að verk-
unum en ekki gert athugasemdir og
hér eru því brotalamir á ferlinu. Ný-
legar fréttir herma að opinberar
byggingar liggi undir skemmdum
vegna myglu og annarra galla sem
virðast hafa komið til vegna slakra
gagna og lélegs frágangs sem ekki
náðist að stöðva með eftirliti verk-
kaupa eða opinberra aðila. Ef ekki er
rétt byggt og reglubundið viðhald
sparað er viðbúið að illa fari og þá er
illa farið með opinbert fé.
Eftir sameiningu Iðntæknistofn-
unar Íslands og Rannsóknarstofn-
unar byggingariðnaðarins í Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands hefur dregið úr
óháðum byggingarannsóknum hjá
henni. Í staðinn hafa verkfræðistof-
ur séð um þessa vinnu í auknum
mæli, sem er þá pöntuð af þeim sem
þurfa. Hér er ekki efast um að verk-
fræðistofur búi yfir sérþekkingu
hvað varðar mat á myglu og bygg-
ingargöllum og geti komið með ráð-
gjöf um viðhald, loftræstingu og val
á byggingarefni. En kostnaðarsöm
úttekt er ekki á allra færi og það
væri óskandi að verkfræðistofur
byðu upp á úttektir tengdar húsnæð-
iskaupum á sanngjörnu verði (eða að
slíkar úttektir yrðu fastur þáttur í
fasteignaviðskiptum), frekar en að
vera kallaðar til eftir á þegar tjónið
er ljóst og nýir eigendur nauðbeygð-
ir til að henda góðum peningum á
eftir slæmum.
Fyrirkomulag fasteignamála þarf
að vera þannig að ábyrg hönnun,
framkvæmd og umönnun bygginga
sé verðlaunuð og að tjón af fúski og
hirðuleysi lendi hjá þeim sem þá
ábyrgð bera.
Mygla og húsin okkar
Eftir Eirík
Þorsteinsson
» Fasteignamál þurfa
að vera þannig að
ábyrg hönnun, fram-
kvæmd og umönnun
bygginga sé verðlaunuð
og að tjón af fúski lendi
hjá þeim sem þá ábyrgð
bera.
Eiríkur Þorsteinsson
Höfundur er gæða- og fasteignastjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Kæru vinir.
Þar sem ég hef
ákveðið, eftir að hafa
þjónað í nærri 23 ár,
að láta af störfum
sem heiðurskonsúll
Íslands í Gdansk 5.
júlí næstkomandi er
það löngu tímabært
fyrir mig að senda
kveðjur og þakkir til
vina minna á Íslandi.
Ég hef alltaf litið
á það sem mikil-
vægasta hlutverk
mitt sem konsúll að
gera Pólland vinsælla á Íslandi og
Ísland vinsælla í Póllandi. Þetta
er ástæðan fyrir því að ég samdi
árið 1998, með góðri aðstoð vinar
míns, Friðriks Gunnarssonar
konsúls, bókina Myrkur örvænt-
ingar – Birta vonar, sem byggði á
sögu Dabrowa-Laskowski-
fjölskyldunnar og sýndi hina
flóknu stöðu Póllands.
Ég tel að Íslendingar gætu haft
mikinn áhuga á einkennum
pólsku þjóðarinnar, svo sem róm-
antík, frelsisást og það hvað hún
er opin. Á hinn bóginn hefur það
hlutverk að auka vinsældir Ís-
lands og Íslendinga í Póllandi –
sem ég kalla „Íslandisma“ til
styttingar – orðið að helsta keppi-
kefli mínu sem konsúll og meg-
inhlutverk. Af þeim sökum hef ég
á síðustu tveimur áratugum ritað
og birt í Póllandi fjölda greina og
viðtala um Ísland og einnig að-
stoðað við skipulagningu op-
inberra viðburða sem tengjast Ís-
landi.
Í gegnum þau störf
hef ég stöðugt látið þá
skoðun í ljós að þó að
landið sé fagurt og
störfin sem þar bjóðast
áhugaverð verðskuldi
það helst athygli og
virðingu hvernig hinir
innfæddu Íslendingar
náðu á 20. öldinni að
breyta samfélagi sínu í
eitt það farsælasta sem
fyrirfinnst, með sterkri
menningararfleifð.
Með þessum skila-
boðum læt ég af því langtíma
starfi mínu, sem ég hef sinnt með
dyggri aðstoð Aleksöndru, eig-
inkonu minnar, að vinna í þágu Ís-
lands í Póllandi.
Hjartans þakkir enn á ný, kæru
Íslendingar, og njótið góðrar
gæfu.
Ritað í Gdansk/Sopot
27. júní 2017,
dr. Stanislaw Dabrowa-
Laskowski,
aðalkjörræðismaður.
Kveðjubréf
til Íslendinga
Stanislaw
Laskowski
»Ég tel að Íslend-
ingar gætu haft mik-
inn áhuga á einkennum
pólsku þjóðarinnar, svo
sem rómantík, frelsisást
og það hvað hún er opin.
Gríðarlegt misræmi
er milli þess hvernig
kísilver í Helguvík
var kynnt í skýrslum
áður en það var
byggt og svo þess
hvernig kísilver Unit-
ed Silicon í Helguvík
er í raun.
Hér nefni ég sér-
staklega til sögunnar
skýrslu sem unnin
var af Stakksbraut 9
ehf. og kom út 2014, en Vífill
Harðarson er í forsvari fyrir þetta
fyrirtæki sem á vormánuðum 2012
keypti lóðina Stakksbraut 9 í
Helguvík til þess að hanna, reisa
og reka þar kísilverksmiðju. Hins
vegar er það skýrsla sem unnin
var af Tomahawk Development á
Íslandi sem kom út ár-
ið 2008 en þeir keyptu
hlut í lóðinni. Ósam-
ræmið milli þessara
skýrslna og raunveru-
leikans í dag er svo að
ég finn mig knúinn til
að vekja athygli á því,
og þó er ósamræmið
svo mikið að í þessari
grein ætla ég aðeins
að taka fyrir misræmi
hvað varðar sjón-
mengun og hráefni. Af
nægu öðru er síðan að
taka.
Mikil sjónmengun
Í umfjöllun um húsnæðið í þess-
um skýrslum kemur fram að bygg-
ingin átti að vera lágreist og sjón-
mengun nánast engin. Þess í stað
reis síðan 38 metra hátt ferlíki.
„Sjónmengun frá Kísilverksmiðj-
unni í Helguvík verður mjög lítil
þar sem flest hærri mannvirki
verksmiðjunnar verða byggð á
neðra svæði lóðarinnar. Verk-
smiðjan mun varla verða sjáanleg
frá Keflavík en í kafla 6.6 eru
myndir sem sýna útlit verksmiðj-
unnar og hversu sjáanleg verk-
smiðjan verður frá nokkrum stöð-
um í nágrenninu,“ segir í skýrslu
Stakkabrautar 9. Ekkert af þessu
stóðst. Þar var því einnig haldið
fram að hæsta byggingin á svæð-
inu verði 25 metrar á efri stalli. Sú
bygging sem blasir við okkur í
Reykjanesbæ er mun hærri, eða
allt að 38 metrar. Hvert sem þú
ferð út frá Reykjanesbæ sérð þú
verksmiðjuna blasa við þér. Á
Reykjanesbrautinni, horft til norð-
urs, blasir hún við eins og stórt
gímald við hlið Snæfellsjökuls og
fjallgarðsins á Snæfellsnesi. Þegar
þú kemur sjóleiðina út á Faxaflóa
þá sést þessi verksmiðja og stend-
ur á berginu eins og eldflaug á eld-
flaugarpalli. Þessi sjónmengun var
ekki kynnt fyrir bæjarbúum og er
algjörlega óásættanleg. Kísilver
United Silicon í Helguvík er ófyr-
irgefanlegt fordæmi um hvernig
fögur loforð eru gefin og þau síðan
öll svikin.
Og áfram vitna ég í skýrslu
Stakkabrautar 9: „Viðmið um áhrif
ásýndar er lýst í lögum um nátt-
úruvernd […] Í grein 35 er fjallað
um hönnun mannvirkja þar sem
fram kemur að hönnun bygginga
og annarra mannvirkja skuli gæta
þess að þau falli sem best að svip-
móti lands. Annars byggist mat á
sjónrænum áhrifum að mestu á
viðmiðum og skoðunum almenn-
ings.“ Skipulagsstofnun sendi bréf
til bæjaryfirvalda í lok janúar þar
sem gerðar voru athugasemdir við
að byggingarnar væru ekki í sam-
ræmi við matsskýrslu. Þá er það
þáttur Reykjanesbæjar í þessu
ferli því það kemur svo í ljós að
byggingarfulltrúinn skrifar upp á
þessa breyttu byggingu. Síðan seg-
ir bæjarstjórnin að þeir hafi ekki
vitað um þetta og bygging-
arfulltrúinn er látinn taka leyfi frá
störfum sem hann síðar breytir í
uppsögn úr starfi sínu. Nú til-
kynnir Reykjanesbær eftir beiðni
frá Skipulagsstofnun að það sé
ekki hægt að krefja fyrirtækið um
að lækka byggingarnar þegar
teikningar hafi verið stimplaðar af
byggingarfulltrúa bæjarfélagsins.
Sem sagt það er allt í lagi að
stunda fúsk, en ef það kemst upp
um fúskið þá er það látið standa
óhaggað United Silicon í vil.
Illa hugsað um hráefnið
Í skýrslunni er talað um flutning
hráefnisins og þar segir að við
uppskipun hráefnis verður notast
við „grabba“ sem mokar hráefni
upp úr lestum skips og niður í Síló
sem síðan fæðir færiböndin sem
flytja hráefnið í hráefnisgeymslur.
Í skýrslunni er þetta allt svo sett í
fallegar umbúðir þar sem allur
flutningur hráefnis á að vera í lok-
uðu ferli til þess að rykmengun
verði sem minnst. Nú liggur við-
arkurl sem notað er við brennslu
ofnsins í stórri hrúgu óvarið fyrir
vatni og vindum. Þetta kurl fýkur
yfir allan móann og stingur í stúf
við berjalyng, blóðberg og er ein-
faldlega sóðaskapur af þessu. Hrá-
efnisgeymslurnar, sem eru tvær,
eru stálgrindur sem lokað eru með
iðnaðardúk og í góðum vetrarhvelli
í vetur tættist dúkurinn af helm-
ingi þessara bygginga svo nú eru
þessar geymslur einnig opnar fyrir
veðri og vindum eins og viðar-
kurlið. En hvað má annað vera
þegar verksmiðjan er enn þá á
byggingarstigi fjögur sem er nán-
ast fokhelt? Niðurstaða mín eftir
að hafa rýnt í þessa skýrslu er að
verksmiðjan í skýrslunni er allt
önnur verksmiðja en sú sem Unit-
ed Silicon reisir síðan. Það eru svo
margir þættir sem lýst er í þessari
skýrslu sem ekki standast skoðun.
Þessar skýrslur eru forsendan fyr-
ir því að United Silicon fær bygg-
ingar- og starfsleyfi. En eftir
stendur: Hver ber ábyrgð á þessu,
því bygging þessarar verksmiðju
United Silicon hlýtur að vera á
ábyrgð einhvers? Er það á ábyrgð
United Silicon, er það á ábyrgð
Umhverfisstofnunar, er það á
ábyrgð Skipulagsstofnunar, er það
á ábyrgð Reykjanesbæjar eða er
það á ábyrgð fjárfesta? Ég hvet
alla til að lesa báðar skýrslurnar
og taka síðan bíltúr inn í Helguvík
og dæma síðan hversu trúverðugar
þær eru. Þær eru vel aðgengilegar
á netinu.
Blekkingar við uppbyggingu United Silicon
Eftir Þórólf Júlían
Dagsson »Nú tilkynnir Reykja-
nesbær eftir beiðni
frá Skipulagsstofnun að
það sé ekki hægt að
krefja fyrirtækið um að
lækka byggingarnar
þegar teikningar hafi
verið stimplaðar af
byggingarfulltrúa bæj-
arfélagsins. Þórólfur Júlían Dagsson
Höfundur er stjórnarmaður
Pírata á Suðurnesjum
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Skiptu um lit!
iGreen V4.02.005
umgjörð
kr. 14.900,-
Með iGreen umgjörðum getur þú útbúið
þá litasamsetningu sem þú vilt.