Morgunblaðið - 30.06.2017, Page 43
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Fólk sem almennt
rýnir í útgefið efni
ríkiskerfa, hérlendis
sem erlendis, lítur á
vefsíður og vefsetur
opinberra stofnana og
ráðuneyta sem hluta
útgefins efnis. Löng
hefð er fyrir því að
sagnfræðingar, blaða-
menn, háskólaborg-
arar og almennir rýn-
endur nálgist útgefið efni af þessu
tagi sem frumheimildir og geri
kröfu um klassíska nálgun við
framsetningu þess og áreiðanleika í
tíma.
Áreiðanleiki í tíma snýst, auk
framsetningar og forms, um að-
gengileika, rithátt, heimildatraust
og gáttir, þ.e. hvaða leiðir má fara
til að nálgast heimildir og vinna úr
þeim. Við almenna rýni, t.d. þegar
lesin eru sagnfræðirit af ýmsum
toga, sést berlega að ábyrg vinnu-
brögð skipta máli við heimildavinnu
og lærist leikmönnum á þessu sviði
smámsaman að temja sér virðingu
fyrir þessu í sögulegu samhengi.
Sem dæmi má taka að út var gef-
in bók hérlendis fyrir tæpum tveim
árum sem gefur í skyn og heldur
fram að ákveðið erlent ríki hafi
unnið íslenskum borgurum talsvert
tjón um miðbik síðustu aldar. Leit-
aði undirritaður til tveggja ríkis-
skjalasafna erlendra til að nálgast
heimildir um viðfangsefnið. Gerði
ég þetta því að þótt bókin setti sig í
sagnfræðiham þá var heimilda-
vinna fremur rýr, að mínu mati.
Komst ég að því að af nógu var
að taka hjá báðum
skjalasöfnum og fékk
svör innan viku við fyr-
irspurn minni frá
skjalasöfnunum. Þegar
ég rýndi í vefsetur
þessara skjalasafna
gat ég treyst þeim
áreiðanleika og tíma-
línu sem fyrr er á
minnst. Af persónu-
legum og faglegum
ástæðum vil ég ekki til-
greina nánar bókina
eða þau ríki sem í hlut
eiga, þar sem viðfangsefnið snýst
um faglega ábyrgð ríkis en ekki
efnistök og úrvinnslu einstakra rit-
höfunda.
Ekki er um einstakt tilvik að
ræða varðandi samskipti mín við
opinberar efnisveitur, hérlendis
sem erlendis. Sem dæmi má nefna
hef ég átt samskipti við skjalasafn
íslenska lýðveldisins og danska
konungsríkisins varðandi leit mína
fyrir tæpum tveim árum að skjal-
inu fræga sem undirritað var á
Kópavogsfundinum sumarið 1662.
Sem leikmaður hef ég smám-
saman lært virðingu fyrir því sem
ég í daglegu tali nefni skjalavald
(Document Authority). Þetta orð
fyrirfinnst ekki í orðabókum hér-
lendis en hentar mjög vel til að
hjúpa ákveðið hugtak, bæði innan
hugtakafræði málfræðinnar svo og
innan merkingarfræði heimspek-
innar. Hef ég tekið eftir að fleiri
hafa tekið þetta orð upp og spái að
það muni rata í orðabækur innan
aldar.
Fræg er sú sögusögn þegar Ottó
von Bismarck gaf út tilskipun þess
efnis að umtalsvert magn úreltra
skjala prússneska ríkisins, sem
geymd voru í tveim risastórum
vöruskemmum, yrðu brennd til að
rýma fyrir nýjum og minnka skrif-
ræðisbáknið. Þegar hann að nokkr-
um tíma liðnum innti eftir hvernig
gengi, var svarað „það hefur tekið
langan tíma að afrita gögnin herra
ríkiskanslari“.
Að öllu gríni slepptu þá setur að
manni ugg þegar skriffinnar ís-
lenska lýðveldisins eru unnvörpum
að skipta út vefsetrum útgefins
efnis og brjóta t.d. umfangsmikla
heimildavinnu og tilvísanasmíði
fræði- og leikmanna sem rita um
opinber mál og menningarþróun
lýðveldisins. Alþingi, forsetaemb-
ættið og nú síðast stjórnarráðið
hafa öll á um það bil ári skipt út
vefsetrum sínum fyrirvaralaust
með skaðlegum afleiðingum bæði
fyrir þá sem vísa í útgefið efni rík-
isins svo og fyrir virðingu ríkisins
út á við.
Ég geri mér ljóst að fyrir meg-
inþorra almennings er hér léttvægt
erindi á ferðinni og er það vel. Það
er mín reynsla sem heimspekingur
og menningarrýnir að því minna
sem almenningur þarf að velta fyr-
ir sér álitamálum af þessum toga,
því betra starf erum við rýnendur
og vinna. Sjálfur þarf ég að eyða
umtalsverðum tíma á næstu mán-
uðum að endurvinna heimildatilvís-
anir og þó að ég kvarti hér yfir því
opinberlega, gleðst ég í laumi.
Reynslan hefur kennt mér að ef
maður endurleitar heysátuna finn-
ur maður hina nálina. Að öllu háði
slepptu þá er vel úr vegi að draga
fram tvo aðra fleti á því þegar op-
inber vefsetur skipta út framsetn-
ingu útgefins efnis.
Annað atriðið tengist þeim fleti
sem upp kom þegar undirritaður
tók þátt í vefverkefni fyrir eina
stofnun og lét þá verða mitt fyrsta
verk að eldri vefurinn var rekinn
áfram um hríð á undirléni þar sem
rýnendur gátu nálgast eldri heim-
ildir áfram og var tryggt að t.d.
greinargerðir, skýrslur og bók-
menntaverk héldu sér hvað tengla
varðar. Skilst mér að sá undirvefur
hafi síðar verið tekinn niður, von-
andi af faglegri ábyrgð.
Hitt atriðið er framsetning efnis
og þar kemur aftur til reynsla und-
irritaðs sem fyrrum fagmanns bæði
í umbroti tímarita og vefforritun.
Algengt er að fínu vefsetrin sem
lýðveldið skartar nú, séu framsett
með hreyfiforritun, illa læsilegum
leturgerðum, litaflögri og hlaup-
andi þáttum (elements) í framsetn-
ingu sem gera setrin oft mjög
ólæsileg fyrir stóran hluta borgara
sem oft nálgast tölvuskjái með mis-
munandi sjón- og leshæfileikum.
Þetta er ekki algilt, en svo ég leyfi
mér gróf orð, þá finnst mér að rík-
isvefir eigi ekki að minna á glans-
tímarit og tískufyrirbæri, heldur
fágaða, klassíska og umfram allt
áreiðanlega nálgun.
Vefsetur ríkisins eða glanstímarit?
Eftir Guðjón E.
Hreinberg » Að öllu gríni slepptu
þá setur að manni
ugg þegar skriffinnar ís-
lenska lýðveldisins eru
unnvörpum að skipta út
vefsetrum útgefins efnis
Guðjón E. Hreinberg
Höfundur er heimspekingur.
Stór hluti landsmanna hefur haft
mjög takmarkaðan aðgang að geð-
læknum/sálfræðingum, en núna eru
nokkur fyrirtæki farin að bjóða upp
á fjarþjónustu; ráðgjöf og meðferð á
myndfundum með öruggum hætti í
gegnum netið. Snemma á árinu tók
heilbrigðisráðherra við áskorun þús-
unda einstaklinga til stjórnvalda
þess efnis að fella sálfræðiþjónustu
nú þegar undir greiðsluþátttöku-
kerfi Sjúkratrygginga Íslands. Von-
andi fer eitthvað að gerast í þeim
málum.
Alexandra.
Velvakandi Svarað í síma 569-
1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Sálfræði-
þjónusta
Geðheilsa Samkvæmt Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni eru 35-50%
þeirra sem þurfa sálfræðiþjónustu
án hennar fyrst og fremst vegna
skorts á aðgengi.
Ölvaldsstaði I
í Borgarbyggð
Jörðin er án bústofns véla og án
framleiðsluréttar.Á jörðinni er gamalt
íbúðarhús steinsteypt á einni hæð,
Einnig er þokkaleg vélaskemma.
Jörðin er í svokallaðri Ölvaldsstaða-
torfu og er um 46 ha að stærð.
Jörðin á veiðirétt í Gufuá og Hvítá.
Eignin getur verið laus við kaup-
samning.
Furugrund, Kópavogi
Vel staðsett þriggja herbergja íbúð í
fjölbýli við Furugrund 56 í Kópavogi.
Íbúðinni fylgir rúmgott herbergi í
kjallara með aðgengi að baðherb-
ergi með sturtu. Íbúðin er á annarri
hæð og skiptist í tvö svefnherbergi,
stofu, eldhús og gang. Gólfefni par-
ket og flísar. Góðar svalir. Þvottahús
er í íbúðinni og einnig sameiginlegt
þvottahús í kjallara. Ágæt geymsla
fylgir íbúðinni. Íbúðin er laus við
kaupsamning.
Deildarás 2, Reykjavík.
Eldra einbýlishús töluvert endurnýj-
að 130,6 m2 á 2 hæðum ásamt 38,8
m2 bílskúr. Húsið er timburhús og
skiptist í; neðri hæð sem er baðher-
bergi, stofa og útbyggð borðstofa
eða skáli sem tengist eldhúsi með
borðkrók. Á efri hæð sem er rishæð
er miðrými eða skáli og út af því 4
rúmgóð svefnherbergi. Húsið er eins
og áður segir töluvert endurnýjað
þó vanti uppá frágang. Lóðin er frá-
gengin 1097 m2 með stórum palli.
Brekkuheiði 3,
Brekkuskógi,
Vel um gengið glæsilegt sumarhús
í Brekkuskógi frá SG Húsum á Sel-
fossi. Tvö svefnherbergi, samliggj-
andi stofa og eldhús, baðherbergi
og geymsla. Hitaveita. Góð verönd.
Húsið stendur á 5.000 m2 kjarrivax-
inni lóð í u.þ.b. 10 mín. aksturs-
fjarlægð frá Laugavatni. Mjög fallegt
umhverfi á glæsilegum útsýnisstað.
Ýmis konar afþreying og nátturú-
perlur í næsta nágrenni. Eign sem
vert er að skoða.
Kópnesbraut 9,
Hólmavík.
Vel staðsett mikið endurnýjað íbúðar-
hús á þremur hæðum. Á aðalhæð er
stofa, herbergi, eldhús og snyrting.
Í kjallara, sem er lítið niðurgrafinn,
eru tvö herbergi og baðherbergi.
Risið er eitt rými. Húsið hefur verið
nýtt í ferðaþjónustu yfir sumarið.
Eins og áður hefur komið fram er
húsið mikið endurnýja og mikil
staðarprýði.
Stekkur, Kjalarnesi.
Einbýlishús á 8,7 hektara spildu
nr. fjögur úr Esjubergi á Kjalarnesi.
Húsið er 155,9 m2 timburhús á
steyptum grunni byggt árið 1996.
Íbúðarhæðin er 138,4 m2 og 17,5 m2
geymsla í kjallara. Mikið hefur verið
plantað af trjám í landið. Glæsilegt
útsýni er yfir Reykjavíkurborg. Heitt
og kalt vatn frá Orkuveitu Reykja-
víkur.
Brúarhvammur
í Bláskógabyggð
Brúarhvammur er rétt austan við
Geysir í Haukadal. Um er að ræða
lélegan húsakost og 6 ha eignar-
land. Mjög áhugaverð staðsetning
t.d. fyrir ferðaþjónustu.
Stóra-Knarrarnes
Vatnsleysuströnd
Jörðin, Stóra-Knarrarnes, austurbær
er, u.þ.b. 40 ha. Land jarðarinnar
liggur að hluta til að sjó. Bygging-
ar eru eldra íbúðarhús frá 1932 úr
steini, auk viðbyggingar frá 1960
úr timbri, alls rúmlega 100 m2, auk
þess gömul hlaða sem í dag er nýtt
sem geymsla. Íbúðarhúsið hefur
verið klætt að utan. Gler, pípulögn
og rafmagn hefur verið töluvert
endurnýjað. Húsið er kynnt með
rafmagni. Staðsetning er mjög góð
samgöngulega. Húsakostur er í dag
nýttur fyrir ferðaþjónustu.
Lyngás Borgarbyggð.
Lyngás sem er smábýli byggt út
úr jörðinni Arnarstapa í Borgar-
byggð á 27.529 m2 eignarlandi
sem er að mestu gróið með fjöl-
breyttum gróðri. Íbúðarhúsið sem
er timburhús er á einni hæð alls 158,3 m2 þar af bílskúr 65,5 m2, byggingarár
2003. Verönd á tvo vegu við húsið. Rafmagnskynding (gólfhiti) og kalt vatn
frá samveitu. Þriggja fasa rafmagn. Áhugaverð eign sem m.a. gæti hentað
fyrir ferðaþjónustu. Akstursfjarlægð frá Borgarnesi tæpar 15 mínútur. Skipti
koma til greina á minni eign í Borgarnesi eða Akranesi. Mögulega hægt að
kaupa af nágranna bændum samliggjandi viðbótarland ef það hentar.
Veitingahús í Selvogi,
Ölfusi.
Veitingahúsið T-Bær stendur á
eignarlóð úr landi Torfbæjar. Veit-
ingahús með m.a. útiaðstöðu fyrir
húsbíla. Allir sem fara í Stranda-
kirkju keyra fram hjá T-Bæ. Góður
húsakostur með mjög áhugaverða
staðsetningu.
Auðbrekka I,
Hörgársveit.
Á jörðinni er ekki annar húsakostur
en hlaða byggð 1960 stærð um
211 m2. Land jarðarinnar er ofan
þjóðvegar u.þ.b. 25 ha og auk þess
umtalsvert fjalllendi. Jörðin er í 16
km fjarlægð frá Akureyri.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími 550 3000
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / fasteignir.is /mbl.is/fasteignir/
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
Magnús Leopoldsson lögg. fasteignasali, 892 6000,
magnus@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir hdl og lögg. fasteignasali gsm. 899 5600
maria@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími 550 3000
sjofn@fasteignamidstodin.is