Morgunblaðið - 30.06.2017, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Marta María
martamaria@mbl.is
Hvernig er þinn fatastíll?
„Það er varla hægt að skilgreina
hann, hann er síbreytilegur. Blanda
ýmsu saman og kaupi það sem mér
þykir flott hverju sinni. Leita oftast í
það að klæðast gallabuxum, peysu/
skyrtu og flottum skóm annars er ég
líka gjarnan bara í íþróttafötum
hversdags.“
Hvaða tískutímabil er í mestu
uppáhaldi hjá þér?
„1950’s í Hollywood og 70’s tíma-
bilið.“
Klæðist þú litum eða ertu alltaf í
svörtu?
„Nei, alls ekki alltaf í svörtu, ég
laðast að hvítu og bláu svona oftast
og einnig finnst mér mjög fallegt að
vera í rauðu.“
Uppáhaldsflíkin þín?
„Í augnablikinu fer ég ekki úr
Nike Tech fleece-hettupeysunni
minni, hún er svo ótrúlega stór og
þægileg en annars verður uppá-
haldsflíkin mín að vera rauður sam-
festingur sem mamma átti og notaði
þegar hún var á mínum aldri en ég
er enn að bíða eftir tilefni til þess að
nota hann.“
Kaupir þú notuð föt?
„Já, ef ég sé eitthvað sem mér
finnst flott. Geri reyndar lítið af því
Bestu kaupin án efa
Louis Vuitton-taska
Anna Ýr Johnson Hrafnsdóttir, lögfræðinemi og flugfreyja
hjá Icelandair, segist vera allt of góð við sig þegar kemur að
fatakaupum og leyfi sér yfirleitt meira en hún ætti að gera.
Morgunblaðið/Hanna
Morgunblaðið/Hanna
Sportleg Hér er hún í strigaskóm
frá All Saints, svörtum buxum úr
Zöru og skyrtu frá Anthropologie.
Hlýleg Í vetr-
arúlpu með
Gucci tösku.
Töff Rifnar
gallabuxur eru í
uppáhaldi.
Glamúr Í dag
kaupir Anna Ýr
færri og vand-
aðari flíkur.
Fylgihlutir Louis
Vuitton er í
miklu uppáhaldi.
SJÁ SÍÐU 54