Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Útsöluverð
5.998
verð áður 11.995
stærðir 36-41
Útsöluverð
2.998
verð áður 5.995
stærðir 36-41
30-70%
afsláttur
Útsalan er hafin
Munið þið eftir því þegar JR Ewing kom þreyttur heim úr vinnunni og
reykspólaði inn í stofu til að fá sér drykk á heimabarnum? Smartland mæl-
ir kannski ekkert sérstaklega með dagdrykkju en því er ekki að leyna að
heimabarir líkt og þessi hér frá ByOn eru mikið heimilisprýði. Um er að
ræða sænska hönnunarvöru, en fyrirtækið var stofnað 1999. Þessi guð-
dómlegi heimabar er úr svartlökkuðu stáli og með speglahillum. Vagninn
er á hjólum og því má ferja hann milli herbergja eftir stemningu hverju
sinni. Vagninn fæst í Snúrunni.
Tími fyrir drykk?
hérna heima en alltaf gaman að fara
í flottar vintage-búðir erlendis.“
Hvað gerir þú við föt sem þú ert
hætt að nota?
„Ég hef verið dugleg að selja
þau á netinu, en annars gef ég
systur minni eða vinkonum
eða fer með þau í Rauða
krossinn.“
Uppáhaldsverslunin á Ís-
landi?
„Ég versla lítið sem
ekkert á Íslandi, ég
vann í NTC í nokkur ár
og keypti þá öll mín
föt þar. En í dag er
ZARA mín go to-búð
og fer sjaldan tóm-
hent þaðan út.“
En í útlöndum?
„Ég get ekki valið eina,
en ætli það sé ekki Free
People, Anthropologie,
Abercrombie & Fitch og
ZARA sem ég leita mest í.
Síðan auðvitað fullt af búð-
um sem ég hef alls ekki efni
á.“
Verslar þú mikið á netinu?
„Já, ég á það til að versla á
netinu, sérstaklega yfir vetr-
artímann. Þá er ég ekki að
fljúga og kemst lítið í búðir
erlendis. Ég held ég versli
svona flest á asos.com.“
Bestu kaup sem þu hefur
gert?
„Ég var að kaupa mér
hrikalega flottan sundbol á
netinu sem ég er spennt að
nota í sumar, en mín allra
bestu kaup verða að vera mín fyrsta
Louis Vuitton-taska, ég gat ekki
hætt að brosa eftir þau kaup og 20
dollara „leðurjakki“ úr Forever21
sem hefur fylgt mér næstum upp á
dag síðustu árin.“
Mesta tískuslysið þitt?
„Ég man ekki eftir einu sérstöku
tískuslysi nema kannski grænar
gallabuxur úr teygjuefni sem ég not-
aði mikið eitt sumarið og jú uppháir
sokkar við pils sem var í tísku fyrir
nokkrum árum.“
Uppáhaldsaukahlutur?
„Mér finnst ég aldrei eiga nóg af
klútum og treflum.“
Hvað er á óskalistanum fyrir sum-
arið?
„Það er margt og mikið á óskalist-
anum en það sem stendur upp úr
fyrir sumarið eru ný sólgleraugu og
seðlaveski sem ég er búin að hafa
augun á í svolítinn tíma.“
Í hvaða borg finnst þér skemmti-
legast að versla?
„Ætli það sé ekki Köben, London
og NY.“
Hvernig er þín kauphegðun?
„Ég er frekar góð við mig þegar
það kemur að fatainnkaupum og
leyfi mér oftast meira en skyn-
samlegt er en með tímanum hef ég
lært að kaupa mér frekar færri og
vandaðri flíkur heldur en fleiri sem
endast síður.“
Ef þú ynnir milljón í happdrætti,
hvað myndir þú kaupa í fataskápinn?
„Mig langar í einhverja flotta úlpu
fyrir veturinn, svo væri ekki leið-
inlegt að eignast fallega Chanel-
tösku.“
Morgunblaðið/Hanna
Þægindi
Anna Ýr á
strigaskó við
öll tækifæri.
Skvísluleg
Anna Ýr er
hrifin af opn-
um skóm.
Frjálsleg Hér er
Anna Ýr í hvítum
bol úr Zöru, bux-
um úr Gottu og
Tory Burch skóm.