Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 74

Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 74
74 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, iðjuþjálfi og eigandi fyrirtæk-isins Félagsfærni – lesblinda, er fimmtug í dag. Hún vinnurfulla vinnu á barna- og unglindageðdeild Landspítalans – BUGL, en sinnir fyrirtæki sínu síðdegis og um helgar. „Ég er búin að vera með námskeið í lesblindu frá 2005 en fyrstu námskeiðin í PEERS-félagsfærni verða næsta haust og heimasíðan er komin í loftið. Við á BUGL erum búin að vera með þessi PEERS- félagsfærni námskeið og þau hafa reynst mjög vel. Þau eru fyrir 12 til 18 ára en lesblindunámskeiðin eru fyrir fólk á öllum aldri.“ Guðrún ætlar að halda sérstakt afmælismót í golfi í dag hjá Golf- klúbbi Kópavogs og Garðabæjar, GKG, og mæta yfir 20 manns á mót- ið. „Ég kynntist golfinu árið 2015 og er orðin alveg forfallin. Ég gat ekki hugsað mér afmælisdaginn minn án þess að taka smá golfleik. Svo verður 60-70 manna veisla um kvöldið.“ Golfið er ekki eina íþróttin sem Guðrún stundar því hún æfir einnig handbolta, crossfit og svo er hún á fullu að hjóla. Hún fór í kringum landið á Wow air-mótinu í síðustu viku. „Ég hjólaði með Hjólakrafti en þá hjóluðu saman 80 unglingar og 30 fylgiliðar og við tókum hring- inn á 59 tímum. Við leggjum af stað á sama tíma og einstaklingskepp- endurnir, sólarhring á undan hópliðunum og sluppum því við óveðrið og komumst alla leið. Veðrið var samt ekki gott og mun verra en þeg- ar ég tók þátt í þessu í fyrra.“ Guðrún er í sambúð með Jóhanni T. Steinssyni. Börn hennar eru Benedikt Rafn, Ágúst Már og Helga Jóna Guðjónsbörn og hún á þrjú barnabörn, eitt þeirra er nýfætt. Hjólreiðakappinn Guðrún með Hjólakrafti á ferð í kringum landið. Heldur afmælismót í golfi hjá GKG Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir er 50 ára Þ órey Edda Elísdóttir fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík 30.6. 1977 en ólst upp í Hafnarfirði: „Lang- amma mín, Ráðhildur Björnsdóttir, var úr Álftaverinu og á sumrin fór ég þangað með henni, eða ömmu, eða foreldrum mínum.“ Þórey ólst upp í Hvömmunum í Hafnarfirði og gekk í Öldutúns- skóla. Með grunnskóla- og hálfri framhaldsskólagöngu stundaði hún áhaldafimleika hjá fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði og keppti með landsliði Íslands í um fimm ár: „Ég fór í FG, lauk þar þremur náms- brautum og tók síðan hlé til að skoða mig um í Kaliforníu, hjá móðursystur minni sem þá var þar búsett. Þá hafði ég lagt stund á stangarstökk og fékk að æfa þar með háskólaliði í nokkra mánuði.“ Þórey Edda Elísdóttir verkfræðingur – 40 ára Hjólreiðafólk í einni kös Fjölskyldan tekur sér hvíld frá hjólunum. F.v.: Ingi, Þórey Edda, Guðmundur og Bragi. Afrekskona kom sér fyrir á Hvammstanga Á toppi tilverunnar Guðmundur og Þórey Edda einhvers staðar í Ölpunum. Reykjanesbær Manúel Nói Guðna- son fæddist 31. júlí 2016 á Heilbrigðis- stofnun Suður- nesja kl. 16.41. Hann vó 3.360 g og var 51 cm á lengd. Foreldrar hans eru Guðni Oddur Jóns- son og Jóhanna Ósk Kristinsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Hver er Þinn uppÁHalDs Djæf? EK TA ÍSLENSKUR FRÁ EMMES SÍ S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.