Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 92
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 181. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Heitustu piparsveinar landsins
2. Gísli Friðjónsson skattakóngur...
3. Erfiðar seinni níu hjá Ólafíu...
4. Lést vegna læknamistaka
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kartöfluæturnar er nýtt íslenskt
verk eftir Tyrfing Tyrfingsson sem
verður frumsýnt á Litla sviði Borgar-
leikhússins í september. Áður hefur
Borgarleikhúsið sýnt eftir hann leik-
ritin Bláskjá og Auglýsingu ársins
ásamt stuttverkinu Skúrinn á slétt-
unni, en Tyrfingur starfaði sem hús-
skáld Borgarleikhússins 2014 og
2015. Í Kartöfluætunum fjallar Tyrf-
ingur um venjulega en jafnframt
skrautlega íslenska fjölskyldu sem
tekst á við meðvirkni, stjórnsemi og
baráttuna við að lifa af. Örvænting,
skömm, sektarkennd, leyndardómar
og lygi koma við sögu og er þessum
tilfinningum lýst með húmor og stíl
sem einkenna höfundinn. Ólafur Egill
Egilsson leikstýrir og leikarar eru Atli
Rafn Sigurðarson, Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Gunnar Hrafn Kristjáns-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir og Vala
Kristín Eiríksdóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Nýtt íslenskt verk
eftir Tyrfing í haust
Tónskáldið Atli Örvarsson hefur tekið
sæti í bandarísku kvikmyndaakademí-
unni sem velur Óskarsverðlaunahafa og
tilnefningar. Frá þessu greinir hann á
Facebook-síðu sinni. Samkvæmt er-
lendum miðlum bauðst alls 744 lista-
mönnum frá 57 löndum innganga í aka-
demíuna þetta árið. Akademían hefur
sætt ámæli fyrir einsleitni síðustu ár,
en árið 2016 voru 92% með-
lima hvít og 75% karlkyns.
Fráfarandi forseti akademí-
unnar, Cheryl Boone
Isaacs, vildi auka fjöl-
breytnina og þannig
eru tæplega 40%
nýrra meðlima kon-
ur og 30% dökk á
hörund.
Tekur sæti í kvik-
myndaakademíunni
Á laugardag og sunnudag Norðlæg átt, 5-10 en hægari vestlæg
eða breytileg átt sunnan heiða. Skýjað með köflum og víða skúrir.
Hiti 8 til 15 stig, mildast á Suðurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlægari í dag en í gær og þéttari skúrir
seinnipartinn, en úrkomulítið á Austfjörðum. Hiti 8 til 18 stig að
deginum, hlýjast á Austurlandi.
VEÐUR
„Þetta hefði alveg getað
farið á hvorn veginn sem er,
en heilsan hefur alltaf verið
í fyrirrúmi. Ég hefði hvorki
andlega né líkamlega verið
tilbúin að takast á við af-
leiðingarnar ef ég hefði far-
ið of fljótt af stað,“ segir
Harpa Þorsteinsdóttir, sem
vann sér sæti í EM-hópnum
og er farin að skora á ný fyr-
ir Stjörnuna eftir að hafa
fætt annað barn sitt fyrir
fjórum mánuðum. »4
Gat farið á hvorn
veginn sem er
„Það er óljóst hvað tekur við hjá mér
núna. Ég er bara að fara yfir stöðuna.
Einn af möguleikunum sem koma til
greina er að spila á Íslandi í sumar,“
sagði knatt-
spyrnumað-
urinn Sölvi
Geir Ottesen
sem er nú án
félags eftir að
hafa gert
starfsloka-
samning
við taí-
lenska
liðið
Bur-
iram.
»1
Hvað gerir Sölvi
Geir Ottesen?
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir lék á 74 höggum eða
þremur höggum yfir pari á fyrsta
hring KPMG-risamótsins í golfi í Ill-
inois í Bandaríkjunum í gær. Hún fór
vel af stað en missti dampinn þegar á
leið. Ljóst er að Ólafía Þórunn verður
að leika vel í dag til þess að komast í
gegnum niðurskurðinn svo hún geti
leikið seinni hringina tvo. »1
Ólafía Þórunn er í erf-
iðri stöðu í Illinois
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Ólafur Vigfússon og María
Anna Clausen, sem eiga og reka
veiðivöruverslunina Veiðihornið í
Síðumúla í Reykjavík, eru lengstum
í versluninni en þegar dag tekur að
stytta bregða þau undir sig betri
fætinum og fara í fluguveiði í heit-
um sjó á fjarlægum slóðum. Fiska-
búr með skrautfiskum kemst næst
lýsingu þeirra á umhverfinu, en
næst á dagskrá er fimm hjóna ferð í
Kyrrahafið.
Ólafur og María hafa veitt lax og
silung saman á Íslandi í nær 40 ár.
Fyrir nokkrum árum ákváðu þau
að slaka á veiðinni heima á sumrin,
einbeita sér að rekstrinum og
kanna fjarlægari mið utan helsta
veiðitímabilsins hérlendis.
Bandarískir vinir þeirra komu
þeim á bragðið á framandi stöðum.
„Fyrir um sjö árum fórum við með
þeim í einfalda veiði á bonefish eða
silfurbogga við Bahamaeyjar og
síðan höfum við fært okkur upp á
skaftið og farið lengra og víðar,“
segir Ólafur.
Hafa farið víða
Þau hafa meðal annars farið í
veiðiferðir í Karíbahafið, Mexíkó-
flóa, Indlandshaf og nú síðast í
Kyrrahaf en í haust hafa þau skipu-
lagt fimm hjóna ferð til Kíríbatí eða
Jólaeyjar. „Við erum venjulega á
veiðum í viku,“ segir María og bæt-
ir við að með veiðileyfinu fylgi
gjarnan bátur, leiðsögumaður og
gisting í landi.
Jólaeyja er afskekkt rétt sunnan
við miðbaug í Kyrrahafinu. Þegar
flogið er þangað frá Havaí er farið
yfir daglínu. „Havaí er 10 tímum á
eftir okkur en Jólaeyja er 14 tímum
á undan okkur,“ útskýrir Ólafur.
Aðeins er eitt flug á viku þangað
frá Havaí, vél millilendir á leið til
Fídji. Lagt er af stað á hádegi á
þriðjudegi og komið um miðjan dag
á miðvikudegi eftir þriggja tíma
flug. „Þarna er mjög góð veiði og
margar tegundir,“ segir María.
Ólafur og María leggja áherslu á
að veiði sé alltaf jafnskemmtileg,
jafnt á Íslandi sem í útlöndum.
„Munurinn er 20 gráður á celsíus,“
segir Ólafur og kímir. „Það er tölu-
verður munur að standa léttklædd í
sólinni í ylvolgum sjónum,“ áréttar
María. Þau segja líka gott að lengja
sumarið með því að fara til heitari
svæða á haustin, en næsta ferð
verður í lok október. Fiskarnir séu
líka sterkari en hérlendis, fjöl-
breytnin meiri og svo sé allt annað
að stunda sjónveiði en veiði þar sem
kastað sé upp á von og óvon. „Þú
sérð fiskinn, þar sem þú kastar en
kastar ekki eitthvað í blindni,“ seg-
ir María. „Það er allt annar heimur
að veiða í söltum, heitum sjó,“ botn-
ar Ólafur.
Í slag við stóra skrautfiska
Skipuleggja
veiðiferðir á
fjarlæga staði
Í Indlandshafi María Anna og Ólafur með Peach Face, eina tegund af Triggerfish, sem er við Seychelles-eyjar.
Veiði Við Jólaeyju má fá Giant Trevally, sem geta orðið 200 pund að þyngd. MBera virðingu fyrir … »18