Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 20
20 fimmtudagurinn 18. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR Verslunin Krummaskuð varð til í maí 2012 og var dekur- verkefni Sigrúnar Ingu Ævars- dóttur á meðan hún nam lög- fræði. Sigrún rekur verslunina ásamt eiginmanni sínum, Birgi Óttari Bjarnasyni. Hún segir segir upplifunina innandyra skipta mestu máli, hvort sem fólk kaupir hjá henni vörur eða ekki. „Ég opnaði ekki búð til að græða peninga, ég vildi bjóða upp á ein- hverja upplifun. Mér þykir óskap- lega vænt um búðina og það sést þegar inn er komið. Hér er fallegt umhverfi og gott andrúmsloft, bæði fyrir þá sem kaupa eitthvað eða ekki. Upplifunin, lýsingin, lyktin, litasamsetningar og tónlistin. Þetta skiptir allt máli,“ segir Sigrún Inga sem finnst desember langskemmti- legasti tími ársins. „Það er gaman að fá bæjarbúa í búðina og það er mér hjartans mál að vera jákvæð og gera það besta fyrir bæinn okkar. Minn draumur er að Hafnargatan verði flott verslunargata sem bæjar- búar geta verið stoltir af. Það gerist ekki nema bæjarbúar taki þátt og styðji við verslun hér. Við erum ein af nýjustu verslununum við Hafn- argötuna og fólk mætti taka betur á móti nýjum verslunum. Huga- farið skiptir svo miklu máli.“ Vegna mikilla anna í öðrum störfum Sig- rúnar Ingu og Birgis hafa þau því miður ekki lengur tíma til að reka verslunina. „Okkur langar ekki að loka henni, við viljum selja hana.“ Þröngar gallabuxur vinsælar Sigrún Inga segist vera stoltur Reykjanesbæingur og hefur trú á því að hér verið flottur miðbær í framtíðinni. „Ég er í menningar- ráði Reykjanesbæjar og mínar áherslur eru miðbærinn og að byggja hann upp. Ýmislegt hér sem mætti gera betur.“ Fáar verslanir í Reykjanesbæ selja herrafatnað og Sigrún Inga segist vilja að það sem hún selji sé í boði í bænum. „Áherslur í versluninni eru dömu- og herrafatnaður, en þó að miklum hluta til fatnaður fyrir herra á öllum aldri. „Mömmunum með unglingsdrengina finnst gott að koma til okkar. Umhverfið er þægi- legt og þjónustan góð. Ég legg líka mikið upp úr sniðum og tel að mitt starfsfólk sé gott í að hjálpa til við val á því. Við þurfum að hafa þekk- inguna. Alltof margir sem klæðast því sem þeim er rétt. Strákar eru líka að verða miklu meðvitaðri um þetta. Þröngar og mjúkar galla- buxur seljast mikið núna - og víðar skyrtur við.“ Mamman mikill hönnuður Sigrún Inga kemur úr fjölskyldu þar sem mikið er um íslenska hönnun. Móðir hennar, Helga Steinþórsdóttir, á Mýr design merkið og systur hennar eru einn- ig miklir hönnuðir. Til að mynda hafi þau tekið til sölu textílvörur hönnuðarins Sveinbjargar sem hafi verið tekið mjög vel. „Þetta er eitt af þessum hornum í búðinni sem ég ákvað að gera. Svo er Mýr de- sign í búðinni, hönnunin hennar mömmu, hún er alltaf að verða um- fangsmeiri. Ef ég gæti bara verið með vörurnar hennar mömmu þá myndi ég gera það. En þær höfða ekki endilega til allra þó að þær höfði til flestra. Mýr design á eftir að enda sem sér búð, fötin eru svo vinsæl. Þetta eru nánast einu fötin sem ég klæðist og vegna þess að þetta höfðar svo vel til mín. Það er ekki bara af því að hún er mamma mín,“ segir Sigrún Inga og hlær. Með brot af því besta Sigrún Inga er mjög opin fyrir því bæta við einhverju sem henni finnst fallegt í verslunina og finnst skemmtilegt að bjóða upp á. „Ég hef líka alltaf verið opin fyrir ein- hverju nýju. Stundum virkar það og stundum ekki. Við erum með mjög góð verð og ég fæ marga viðskipta- vini frá höfuðborgarsvæðinu. Það má segja að við séum með brot af því besta af því að við verslum við helstu heildsölur í Reykjavík. Við erum bara með skandinavísk merki í herradeildinni og mér finnst þau vönduð sem endast vel.“ Henni finnst fylgja því svo mikil vinna að fara til Reykjavíkur að versla fyrir jólin. „Hér færðu stæði beint fyrir framan verslanirnar og góða og persónulega þjónustu, nægt pláss og nægan tíma.“ Sígild snið sem endast lengi Eiginmaður Sigrúnar Ingu, Birgir, segir hún vera höfuð herradeildar- innar. „Hann vinnur mikið hérna og hefur algjörlega bjargað mér þegar mér dettur eitthvað í hug. Búðin var lokuð í hálfan dag þegar við fluttum hana á milli tveggja staða við Hafnargötuna. Við erum bæði í fullu starfi og því er einn- ig gott að fá mömmu hingað til að hjálpa og ég er með ofboðslega gott starfsfólk. Annars gengi þetta ekki upp,“ segir Sigrún Inga. Helga kemur þarna inn í umræðuna. „Það er líka lúxus fyrir mig að vera með mínar vörur í svona flottri búð. Kjólarnir eru vinsælastir og jakkarnir. Þetta er sígildur fatnaður sem gengur í mörg ár. Sniðin eru sígild og ég er smámunasöm á efni og litasamsetningar. Svo er ég með kjólameistara sem eru snillingar í að búa til snið sem endast. það skiptir miklu máli fyrir einhvern í minni stöðu.“ Sigrún bætir við: „Mamma setur langflestar flík- urnar í þvottavél og þurrkara til að tryggja að gott sé að þrífa fötin. Þannig föt vill fólk í dag.“ -viðtal pósturu olgabjort@vf.is ■■ Vegna mikilla anna hjá eigendum er verslunin Krummaskuð til sölu: Upplifunin í versluninni mikilvægust Fitjabakka Njarðvík ódýrt bensín Fitjabakka 2-4 Básinn Vatnsnesvegur 16 Starfsfólk Olís óskar Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.