Víkurfréttir - 18.12.2014, Blaðsíða 64
64 fimmtudagurinn 18. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Málfundafélagið Faxi var stofnað 10. október 1939 og fagnar því 75 ára
afmæli um þessar mundir. Tímamótunum
verða gerð ítarleg skil í jólablaði Faxa sem
kemur út á morgun og verður dreift inn á
öll heimili í Reykjanesbæ. Þá liggur blaðið
frammi í öðrum sveitarfélögum á Suður-
nesjum.
Það voru sex félagar í Keflavík sem stofn-
uðu Málfundafélagið Faxa en markmið með
félaginu var að þjálfa félagsmenn í ræðu-
mennsku og rökræðum. Fundir voru haldnir
til skiptis á heimilum félagsmanna. Fljótlega
fjölgaði félagsmönnum í tólf og þeir hafa
verið tólf allar götur síðan.
Aðeins 47 félagsmenn frá upphafi
Þó félagið sé orðið þetta gamalt, þá halda
félagsmenn einnig trú við félagið lengi. Á
þessum 75 árum þá telja félagsmenn þó að-
eins 47 félaga. Sá félagi sem hefur setið lengst
í félaginu, og situr enn, er heiðursfélaginn
Gunnar Sveinsson fv. kaupfélagsstjóri. Hann
hefur verið Faxa-félagi í samtals 60 ár.
Helgi Hólm er einn Faxa-félaga og hann var
jafnframt ritstjóri Faxa í 15 ár. Hann segir
í samtali við Víkurfréttir að nú standi Mál-
fundafélagið Faxi á nokkrum tímamótum en
fjórir félagar séu að hætta, enda komir á átt-
ræðisaldur, og tími kominn á að rýma fyrir
yngri mönnum.
Stofnuðu blað til að bregðast
við umræðuskorti
Málfundafélagið Faxi hafði ekki starfað
lengi þegar það ákvað að stofna blaðið Faxa.
Helgi segir það hafa verið vegna þess hversu
mönnum þótti þá lítill fréttaflutningur af
svæðinu. Þá, eins og nú, horfi stóru miðlarnir
ekki langt út fyrir póstnúmerið 101. Um-
ræðan um það sem var að gerast á svæðinu
var það lítil að ráðist var í útgáfu Faxa fyrir 74
árum. Útgáfan hefur gengið í gegnum hæðir
og lægðir. Oft komu allt að 10 blöðum á ári
og fór niður í eitt blað en vilji er til þess nú
að blöðin séu þrjú til fjögur á ári. Hér áður
var Faxi seldur í lausasölu en hefur síðustu ár
verið dreift án endurgjalds og byggir afkomu
sína á auglýsingum.
Faxi hefur mikið söfnunargildi og er víða til
innbundinn og er mikil heimild um liðna
tíma inn í framtíðina. Hin síðari ár hefur
Faxi fetað þá braut að gefa ákveðnum málum
mikið pláss í blaðinu og þar er minnst stórra
tímamóta. Þannig hefur blaðið skrifað um
stórafmæli fyrirtækja og stofnana þar sem
sagan er rakin í máli og myndum.
Þrjú til fjögur blöð á ári
Helgi tekur undir að útgáfa Faxa hafi oft
verið mikil hugsjón, en alltaf hafi verið stefnt
á að láta auglýsingar standa undir kostnaði
við útgáfuna. Efni blaðsins er mikið til unnið
í sjálfboðavinnu. Eðvarð T. Jónsson hefur
verið ritstjóri Faxa síðustu níu ár og segir
Helgi að hann hafi getað einbeitt sér að því
að skrifa Faxa og hafi unnið mikið og gott
starf. Jólablað Faxa sem kemur út á morgun,
föstudag, sé þó síðasta blað Eðvalds. Hann
hefur mörg önnur járn í eldinum í útgáfu-
málum og því mun nú nýr ritstjóri taka við
Faxa á nýju ári. Blaðið Faxi heyrir undir blað-
stjórn sem kosin er af Málfundafélaginu Faxa
og oftast hefur ritstjórinn einnig verið einn
af Faxafélögum.
-mannlíf pósturu vf@vf.is
■■ Málfundafélagið Faxi fagnar
75 ára afmæli:
Fannst lítið fjallað
um Suðurnes og
stofnuðu fjölmiðil
Í prentsmiðjunni Stapaprenti, sem hefur séð um umbrot og prentun Faxa síðustu tvo ára-
tugi. F.v.: Eðvarð T. Jónsson ristjóri Faxa, Svavar Ellertsson prentsmiðjustjóri og Helgi Hólm
frá Málfundafélaginu Faxa sem gefur út samnefnt blað. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Iðavellir 4b - 420 0303
Radíonaust
Norðurtúni 2 - Reykjanesbær
sími 421 3787
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og
farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Tannlæknastofa
Kristínar Geirmunds og
Kristínar Erlu Ólafsdóttur
Tannlæknastofan
Skólavegi 10
Tannlæknastofan
Tjarnargötu 2
Vökvatengi
421 4980
Þvottahöllin
RISS