Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.2014, Qupperneq 64

Víkurfréttir - 18.12.2014, Qupperneq 64
64 fimmtudagurinn 18. desember 2014 • VÍKURFRÉTTIR Málfundafélagið Faxi var stofnað 10. október 1939 og fagnar því 75 ára afmæli um þessar mundir. Tímamótunum verða gerð ítarleg skil í jólablaði Faxa sem kemur út á morgun og verður dreift inn á öll heimili í Reykjanesbæ. Þá liggur blaðið frammi í öðrum sveitarfélögum á Suður- nesjum. Það voru sex félagar í Keflavík sem stofn- uðu Málfundafélagið Faxa en markmið með félaginu var að þjálfa félagsmenn í ræðu- mennsku og rökræðum. Fundir voru haldnir til skiptis á heimilum félagsmanna. Fljótlega fjölgaði félagsmönnum í tólf og þeir hafa verið tólf allar götur síðan. Aðeins 47 félagsmenn frá upphafi Þó félagið sé orðið þetta gamalt, þá halda félagsmenn einnig trú við félagið lengi. Á þessum 75 árum þá telja félagsmenn þó að- eins 47 félaga. Sá félagi sem hefur setið lengst í félaginu, og situr enn, er heiðursfélaginn Gunnar Sveinsson fv. kaupfélagsstjóri. Hann hefur verið Faxa-félagi í samtals 60 ár. Helgi Hólm er einn Faxa-félaga og hann var jafnframt ritstjóri Faxa í 15 ár. Hann segir í samtali við Víkurfréttir að nú standi Mál- fundafélagið Faxi á nokkrum tímamótum en fjórir félagar séu að hætta, enda komir á átt- ræðisaldur, og tími kominn á að rýma fyrir yngri mönnum. Stofnuðu blað til að bregðast við umræðuskorti Málfundafélagið Faxi hafði ekki starfað lengi þegar það ákvað að stofna blaðið Faxa. Helgi segir það hafa verið vegna þess hversu mönnum þótti þá lítill fréttaflutningur af svæðinu. Þá, eins og nú, horfi stóru miðlarnir ekki langt út fyrir póstnúmerið 101. Um- ræðan um það sem var að gerast á svæðinu var það lítil að ráðist var í útgáfu Faxa fyrir 74 árum. Útgáfan hefur gengið í gegnum hæðir og lægðir. Oft komu allt að 10 blöðum á ári og fór niður í eitt blað en vilji er til þess nú að blöðin séu þrjú til fjögur á ári. Hér áður var Faxi seldur í lausasölu en hefur síðustu ár verið dreift án endurgjalds og byggir afkomu sína á auglýsingum. Faxi hefur mikið söfnunargildi og er víða til innbundinn og er mikil heimild um liðna tíma inn í framtíðina. Hin síðari ár hefur Faxi fetað þá braut að gefa ákveðnum málum mikið pláss í blaðinu og þar er minnst stórra tímamóta. Þannig hefur blaðið skrifað um stórafmæli fyrirtækja og stofnana þar sem sagan er rakin í máli og myndum. Þrjú til fjögur blöð á ári Helgi tekur undir að útgáfa Faxa hafi oft verið mikil hugsjón, en alltaf hafi verið stefnt á að láta auglýsingar standa undir kostnaði við útgáfuna. Efni blaðsins er mikið til unnið í sjálfboðavinnu. Eðvarð T. Jónsson hefur verið ritstjóri Faxa síðustu níu ár og segir Helgi að hann hafi getað einbeitt sér að því að skrifa Faxa og hafi unnið mikið og gott starf. Jólablað Faxa sem kemur út á morgun, föstudag, sé þó síðasta blað Eðvalds. Hann hefur mörg önnur járn í eldinum í útgáfu- málum og því mun nú nýr ritstjóri taka við Faxa á nýju ári. Blaðið Faxi heyrir undir blað- stjórn sem kosin er af Málfundafélaginu Faxa og oftast hefur ritstjórinn einnig verið einn af Faxafélögum. -mannlíf pósturu vf@vf.is ■■ Málfundafélagið Faxi fagnar 75 ára afmæli: Fannst lítið fjallað um Suðurnes og stofnuðu fjölmiðil Í prentsmiðjunni Stapaprenti, sem hefur séð um umbrot og prentun Faxa síðustu tvo ára- tugi. F.v.: Eðvarð T. Jónsson ristjóri Faxa, Svavar Ellertsson prentsmiðjustjóri og Helgi Hólm frá Málfundafélaginu Faxa sem gefur út samnefnt blað. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson Iðavellir 4b - 420 0303 Radíonaust Norðurtúni 2 - Reykjanesbær sími 421 3787 Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða! Tannlæknastofa Kristínar Geirmunds og Kristínar Erlu Ólafsdóttur Tannlæknastofan Skólavegi 10 Tannlæknastofan Tjarnargötu 2 Vökvatengi 421 4980 Þvottahöllin RISS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.