Víkurfréttir - 22.12.2016, Side 16
16 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@vf.is
Búið er að tryggja rekstur Bjargar-
innar, geðræktarmiðstöðvar Suður-
nesja, út árið 2017. Sú staða kom upp
fyrir um ári síðan að útlit væri fyrir að
vegna niðurskurðar hjá Reykjanesbæ
þyrfti að loka Björginni um mitt þetta
ár. Með samstilltu átaki einstaklinga,
félagasamtaka, sveitarfélaga og ríkis-
ins var lokuninni afstýrt. Nú síðast á
dögunum var undirritaður samningur
um tveggja milljóna króna styrk frá
Rauða krossinum til Bjargarinnar. Að
sögn Díönu Hilmarsdóttur, forstöðu-
konu Bjargarinnar, er nú unnið að
því hörðum höndum að tryggja að
reksturinn verði til framtíðar. Hún er
bjartsýn á að það takist. Díana tók við
forstöðu Bjargarinnar fyrr á árinu eftir
að forveri hennar, Hafdís Guðmunds-
dóttir, lést eftir stutta en erfiða baráttu
við krabbamein. Áður hafði Díana
starfað hjá Björginni frá árinu 2014.
Björgin er athvarf þar sem veitt er
endurhæfing og eftirfylgd fyrir fólk
með geðheilsuvanda. Að sögn Díönu
er athvarfið fyrir einstaklinga sem
flestir eru á endurhæfingarlífeyri og
örorku, eru annað hvort í hlutastarfi
eða óvinnufærir. „Endurhæfingin er
einstaklingsbundin og helsta mark-
miðið með henni er að aðstoða
einstaklinginn til sjálfshjálpar. Ein-
staklingar eru hér í endurhæfingu í
skemmri eða lengri tíma, allt eftir því
hvar þeir eru staddir. Frá okkur fara
þeir svo í nám, út á vinnumarkaðinn
eða á örorku ef heilsa þeirra er slík,“
segir hún. Mikil áhersla er lögð á að
rjúfa félagslega einangrun einstakl-
inga hjá Björginni og efla sjálfstæði
þeirra sem þangað leita og draga úr
innlögnum á stofnanir. Díana segir
starfið hjá Björginni mjög gefandi og
þá sérstaklega að geta hjálpað fólki
til sjálfshjálpar. „Það er yndislegt að
fá að fylgja fólki og sjá það byggja sig
upp, ná bata og geta gert það sem það
vill, hvort sem það er nám, vinna,
sjálfboðastarf eða annað. Mér finnst
yndislegt að geta verið til staðar fyrir
fólkið mitt.“
Þörf á öðrum geðlækni
Pétur Hauksson, geðlæknir, kemur í
Björgina einu sinni í viku og er hann
eini geðlæknirinn sem starfar á Suður-
nesjum. Díana segir mikla ásókn í
tíma hjá honum og að fyrir hafi komið
að töluverð bið myndist eftir tíma. Því
sé ekki vanþörf á að fá annan geðlækni
til starfa á Suðurnesjum.
Starfið hjá Björginni hefur þróast
frá stofnun árið 2005 og hefur fjöldi
þeirra sem þangað sækja þjónustu
aukist jafnt og þétt síðan. Aðspurð
að því hvort farið sé eftir fyrirmynd
annars staðar frá við starfið í Björg-
inni segir Díana nokkrar stofnanir
hér á landi fást við svipuð verkefni
og Björgin. „Ég vil þó leyfa mér að
segja að það sé enginn staður eins og
Björgin starfræktur hér á landi.“
Björgin vinnur einnig að því að auka
þekkingu almennings á geðheil-
brigðismálum. Björgin var á sínum
tíma með verkefni sem hét Geðveik
hönnun, félagar í Björginni gáfu út
ljóðabók og föndruðu ýmislegt sem
var svo selt til styrktar Björginni. Ár-
lega var farið í göngu á alþjóða geðheil-
brigðisdaginn þann 10. október hér
í Reykjanesbæ ásamt fleiru. Björgin
hefur tekið þátt í listasýningum og
núna síðast List án landamæra þar
sem myndir eftir einstaklinga í Björg-
inni voru á veggjum í húsnæði Mið-
stöðvar símenntunar á Suðurnesjum
að Krossmóa 4.
Óvissan erfið
Síðastliðið ár hefur verið mjög þungt
í skauti vegna óvissu með starfsemi
Bjargarinnar, að sögn Díönu. „Við
vorum undirmannaðar stóran hluta
árs og þurftum því miður að draga
úr ákveðinni þjónustu um tíma. Nú
erum við fullmannaðar á nýjan leik
með öflugt starfsfólk sem er stútfullt af
hugmyndum fyrir Björgina og starfs-
semi hennar. Við höfum hugsað okkur
að koma annað slagið með fróðleik í
formi pistla eða greina inn á heima-
síðu Bjargarinnar www.bjorgin.is með
það að markmiði að okkar fólk sem
og aðstandendur og almenningur lesi
sér til fróðleiks og upplýsinga til að
draga úr fordómum og vanþekkingu
á geðrænum vanda. Það er verið að
vinna í heimasíðunni okkar hörðum
höndum, gera hana aðgengilega fyrir
alla, að fólk geti leitað sér upplýsinga
um geðsjúkdóma á síðunni og þau úr-
ræði sem eru í boði í samfélaginu. Við
erum með ýmislegt á takteinunum
þannig að endilega fylgist með okkur.“
Díana segir mjög mikilvægt að auka
þekkingu almennings á geðheil-
brigðismálum, bæði til að fólk skilji
að fólk með geðrænan vanda er eins
og hver annar. Einnig sé brýn þörf
á að fólk fái fræðslu á mannamáli
um það hvernig geðsjúkdómar virka.
„Það hefur verið ákveðinn stimpill
á fólki með geðsjúkdóma í gegnum
tíðina og einnig á Björginni, að það
sé svo veikt fólk hér. Ef einstaklingur
fótbrotnar þá fer hann í gifs og þarf
hækjur. Einstaklingur sem glímir við
andleg veikindi hefur þann möguleika
að koma í Björgina og fá sitt gifs og
sínar hækjur hér,“ segir Díana. Hún
segir vanta meira hér á Suðurnesjum
að einstaklingar með geðrænan vanda
og sömuleiðis með skerta starfsgetu
fái tækifæri á vinnumarkaði til að sýna
hvað í þeim býr. „Flestir þessara ein-
staklinga hafa ekki verið á atvinnu-
markaði um tíma og þurfa tíma til
aðlögunar, fá að byrja í hlutastarfi og
auka við sig hægt og rólega. Sumum
hverjum hentar hlutastarf og öðrum
hentar fullt starf. Það þarf að sýna
skilning og sveigjanleika. Það á ekki
að vera feimnismál þegar maður sækir
um vinnu að maður eigi við geð-
rænan vanda að stríða, það á ekki að
eyðileggja fyrir manni.“
Fólkið sem leitar til Bjargarinnar fær
tilvísanir frá fagaðilum hérna á Suður-
nesjum og höfuðborgarsvæðinu,
meðal annars frá Virk, Vinnumála-
stofnun, Samvinnu, Miðstöð Símennt-
unar á Suðurnesjum, Landspítalanum,
Reykjalundi og frá sveitarfélögunum á
svæðinu. Einnig kemur fólk í Björgina
af sjálfsdáðum eftir að hafa heyrt af
starfinu frá öðrum.
Stofna sjóð til minningar um Hafdísi Guðmundsdóttur
■ Undirritaður var samningur um styrk að upphæð tvær milljónir frá Suðurnesjadeild Rauða krossins til Bjargar-
innar á dögunum. Á myndinni má sjá Hannes Friðriksson frá Rauða krossinum og Kjartan Má Kjartansson,
bæjarstjóra Reykjanesbæjar, við undirritunina, ásamt fólkinu í Björginni. Kjartan þakkaði Hannesi fyrir elju og
dugnað sem hann hefur sýnt við baráttu fyrir áframhaldandi starfsemi Bjargarinnar. Styrkurinn frá Rauða kross-
inum er upp á tvær milljónir og hefur þegar rúmlega einni milljón verið varið til kaupa á ýmsum húsgögnum og
búnaði. Það sem eftir er verður nýtt til að stofna sjóð til minningar um Hafdísi Guðmundsdóttir, fyrrum forstöðu-
konu Bjargarinnar, sem lést á árinu. Úr sjóðnum verða veittir styrkir til menntunar fólks sem sótt hefur Björgina.
„Það á ekki að
vera feimnismál
þegar maður
sækir um vinnu
að maður eigi við
geðrænan vanda
að stríða, það á
ekki að eyðileggja
fyrir manni“
Hjá Björginni, geðræktarmiðstöð Suðurnesja, hefur líðandi ár verið
erfitt vegna óvissu um framhald starfseminnar en nú horfir til bjartari
tíma. Díana Hilmarsdóttir, forstöðukona Bjargarinnar, segir mikilvægt
að uppræta fordóma gagnvart andlegum veikindum.
ENGINN STAÐUR EINS OG
BJÖRGIN
Díana Hilmarsdóttir, forstöðu-
kona Bjargarinnar, ásamt Emil
N. Ólafssyni. VF-mynd/dagnyhulda